Við ræddum um fyrir nokkrum dögum að PSN kerfi Sony lægi niðri og líklega ástæður fyrir því, í gær staðfesti Sony svo í fréttatilkynningu hvaða ástæður lægju að baki niðurtíma PSN þjónustunnar og hvað væri framundan.
Svo virðist sem að hakkarar hafi komist inní netkerfi Sony í síðustu viku og haft frjálsar hendur og aðgang að notendaupplýsingum PSN notenda.
Á meðal þeirra upplýsinga sem stolið var:
- Nöfn
- Heimilisföng
- Land
- Netfang
- Afmæli
- PlayStation Network/Qriocity leyniorð og aðgangsupplýsingar og /PSN online ID.
Sony telur ekki að hakkararnir hafa náð kreditkorta upplýsingum fólks, en geta ekki 100% staðfest að þau hafi ekki lekið út í leiðinni. Þó eru líkur að þeir hafi náð kreditkorta númerunum og gildistímanum en ekki öryggiskóðanum sem þau til aukis öryggis á netinu í viðskiptum.
Það eru 10 dagar síðan að hakkararnir komust fyrst inní kerfi Sony og 7 dagar síðan að Sony slökkti á Playstation Network og Qriocity þjónustunum til varnar frekari innrásar í kerfi þeirra á meðan þeir rannsökuðu innbrotið. Sony brást snögglega við réð utanaðkomandi öryggisfyrirtæki til að hefja tafarlausa rannsókn og hvernig hægt væri að tryggja öryggi kerfisins.
Til öryggis fyrir notendur sem hafa skráð kreditkort sín á t.d Bandaríska PSN kerfinu þá borgar sig að fylgjast með yfirlitunum á næstunni til öryggis og skoða þær færslur sem eru á því eftir einverju óvenjulegu og þá hafa samband við kortafyrirtækið ykkar. Við erum ekki að reyna að hræða ykkur, það er ekki endilega líklegt að þetta hafi gerst, en það borgar sig alltaf að fara varlega og ekki falla fyrir neinum tölvupóstum á næstunni sem virðast vera frá Sony eða PlayStation og eru að biðja um upplýsingar um ykkur. Við mælum síðan með að breyta aðgangsupplýsingum ykkar strax og að PSN þjónustann fer í loftið aftur.
Það er visst áhyggjuefni um hvaða aðrar upplýsingar hafa lekið út frá Sony, það hefur verið vitað í nokkurn tíma að PS3 vélin sendir frá sér talsvert af upplýsingum um vélina, hvaða leiki er verið að spila, hvernig tæki eru tengd við USB og HDMI raufar vélarinnar ásamt fleiri upplýsingum. Visst áhyggjuefni er hvort að þessar upplýsingar séu tengdar saman í gagnagruni Sony og að þegar að notendupplýsingum okkar var stolið fór þetta með því?
Í sambandi við netleiki eins og DC Universe Online og Free Realms sem hafa eins og allt annað verið óspilanlegir síðan að PSN fór niður er Sony með áætlanir tengdar þeim og öðru sem verða kynntar fljótlega. Það á síðan eftir að koma í ljós hvað verður gert fyrir PSN+ áskrifendur.
Við mælum með að þið kíkið á PlayStation bloggið og lesið ykkur nánar til um þetta og við munum færa ykkur nánari fréttir af stöðu PSN þjónustunnar og hvenær hún fer aftur í loftið og aðrar þær upplýsingar sem við komumst að.
Kv.
GameTíví
Heimild: PlayStation Bloggið og Kotaku
Nýleg comment