
Bandaríska fyrirtækið Valve hönnuðar Steam þjónustunnar og Half-Life leikjanna hafa lagt sitt á vogarskálarnar til að hjálpa vinum okkar í Japan sem hafa gengið í gegnum margar hörmungar nýlega og þurfa alla hjálp sem fólk getur veitt.
Valve býður uppá hatta pakka fyrir persónur Team Fortress 2 skotleik þeirra og rennur allur ágóðinn til Bandaríska Rauða Krossins sem er að vinna í Japan við hjálparstörf.
Mann Co. býður uppá is “Humanitarian’s Hachimaki” á $7.99, “Benefactor’s Kanmuri” á $19.99 og síðan “Magnanimous Monarch” fyrir þá sem eru rausnalegir og kostar hann $99.99. Hattarnir virka á alla klassana í leiknum, en það er ekki hægt að skipta þeim út eða nota í crafting.
Pakkarnir verða á boðstólnum til 6. Apríl og eins og áður hefur komið fram rennur allur ágóðinn óskipt til Bandaríska Rauða Krossins og munu fjármunirnir koma að góðum notum í Japan. Einnig er síðan hægt að gefa beint á heimasíðu Rauða Krossins hérna hérna.
Það er ekki annað hægt að hrósa Valve og öðrum fyrirtækjum sem eru að leggja sitt að mörkunum til að hjálpa fólki á harmfarasvæðunum í Japan.
Kv.
GameTíví
Heimild: Joystiq



Sniðugt