- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for March, 2011

Page 2 of 7

Framtíðar sýn Eve-Online sýnd á Eve FanFest

Um helgina í Laugardagshöllinni í Reykjaví var haldið Eve-Online FanFest, sem er atburður þar sem að starfsmenn CCP fyrirtækisins og leikmenn og aðdáendur leiksins hittast, spjalla saman, ræða leikinn og hver framtíð hans er og auðvitað skemmta sér.

Eitt af því sem CCP kynnti var framtíðar sýn þeirra á hvert þeir vilja fara með leikinn, og þær breytingar sem eru nauðsynlegar bæði fyrir leikmenn sem eru búnir að spila frá byrjun að auki leiðir til að lokka nýja leikmenn inní hyldýpið sem Eve getur stundið verið og gert þeirra reynslu auðveldari og skemmtilegri.

Í sumar mun koma út nýr aukapakki fyrir leikinn sem kallast Incarna sem halda áfram starfi CCP að bæta leikinn jafna út var leikmenn halda sig í New Eden með því að breyta því hvernig Agengts virka svo að leikmenn reyni ekki allir við þá sömu heldur dreifi sér um sólkerfin og minnki álagið á netþjónana. Scannerinn í leiknum mun fá uppfærslu;

A makeover is being given to the in-game scanner with probes now having a longer range, but with a shorter cycle; wormhole explorers can change sub-systems; a new font will replace the old one; a graphical overhaul is being made to how the UI represents targeted ships; and a new server technology is being implemented to help combat lag.

CCP sýndi 3 myndbrot úr leiknum og hvert þeir vilja fara með hann. Það fyrsta er mögulega hvernig Eve-Online á PC og Dust 514 leikjavélar leikurinn getur virkað saman, með að PC leikmenn stjórni dæminu úr geimstöðvum og stjórna skipum sýnum í árásum og hjálpa herjum þeirra á jörðu niðri sem að leikmenn í Dust 514 á leikjavélunum munu spila.

Í fyrsta sinn fljótlega verður hægt að labba um með nýja og endurbætta Avatar sinn í gegnum Geimstöðvar leiksins og munu Captain’s Quarters koma út í sumar í Incarana aukapakkanum, að sögn mun þetta vera hluti að gera reynslu leikmanna raunverulegri og tengja það betur inní heiminn, frá því að að vera fljúgandi geimskip með ynd af Avatar þínum.

At first, players will be limited to solo hangar areas or retire to their chambers which will offer everything from tutorial videos, ship kills, market tickers, recruitment tools, and changes in sovereignty. This will allow new players to use the Captain’s Quarters to be introduces to the game in a much easier manner, that the current introduction to the game and Aura will also be includes in the new tutorial.

NeoCom kerfið verið enn til staðar og leyfir leikmönnum hvar sem er að losa geimskipið sitt frá stöðinni og halda áfram þegar að þeir vilja.

CCP mun með tímanum auka við þetta efni, en í byrjun verður það meira einmennings áður en að fólk getur tengst saman betur.

Hluti af grafísku uppfærslum leiksins og verður það vægast sagt fallegt að svífa um geimmin í kringum þessar stjörnuþoku.

CCP ræddi breytingarnar á hvernig smyggl kerfið mun virka og verða verðmætari hlutir í umferð og mun það auka líkurnar á ólánsömum leikmönnum sem geta endað kvöldið að svífa um í leyfum af geimskipi þeirra eða horfa á frosið lík þeirra svífa um fallegu umhverfi Eve-Online. Með að láta aðra leikmenn skanna smygglara og þá merkja þá sem slíka, verða þeir smygglarar komnir með skotmark á ennið og þurfa að hafa sig fyrir að lifa af.

Neikvæð áhrif frá boosters verða löguð til, byssurnar á geimskipunum fá uppfærslu í grafík og hreyfingum og má sjá það í myndbandinu hérna fyrir neðan. Það ættu margir að að kveikja á laginu sem er notað og er það fyrir þá sem ekki vita, lagið Musculus með goðsagna kennda rokk bandinu HAM frá Íslandi.

Við mælum með að lesa frábæra grein um sögu Eve-Oline hjá PC Gamer og má finna hana hérna.

GameTíví var á svæðinu um helgina á Eve FanFest og verðum við með umfjöllum fljótlega í GameTíví þætti okkar á Skjá Einum og hvetjum við ykkur að kíkja á.

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer VG24/7

Sunnudags trailer Skammturinn

Við ætlum að reyna að vera harðir af okkur og líta frá því að spila Crysis 2 ofurskotleikinn aðeins til að færa ykkur þéttan trailer skammt að venju til að gleðja ykkur á þessum róelega Sunnudegi.

Það er ekki hægt að kvarta undan Mars mánuðinum sem er að enda og erum við vel saddir eftir góðan leikja mánuð og stefnum yfir í aðeins rólegri Apríl Mánuð þar sem að 4 leikir standa sérstaklega uppi að okkar mati og þeir eru SHIFT 2: Unleashed, Mortal Kombat, Portal 2 og síðan Operation Flashpoint: Red River.

Operation Flashpoint: Red River er taktískur skotleikur frá Codemasters fyrirtækinu og mun færa leikmönnum raunverulegan og hasarfenginn skotleik þar sem að eina kúla getur gengið frá þér og það er mikilvægt að vinna með vinunum eða AI gervigreind leiksins ef að þið ætlið að lifa af. Leikurinn kemur út í lok Apríl á PC/PS3/Xbox 360.

Portal 2 þrautaleikur Valve fyrirtækisins er einn af þremur stóru leikjum Apríl mánaðar og eru við búin að taka Operation Flashpoint nú þegar fyrir og hinn er SHIFT 2: Unleashed.

Valve er byrjað að auglýsa leik sinn í sjónvarpi og eru þeir með skemmtilegar auglýsingar og er sú nýjasta rödduð af skemmtilega leikaranum J.K. Simmons sem lék J.J. Jamesson í Spider-Man myndunum. Húmor Portal 2 skín í gegn. Hann leikur Cave Johnson sem er stofnandi Aperture Science fyrirtækisins.

IL-2 Sturmovik er líklega einn af þekktari flugleikjum á PC síðustu 10 árin og Rússarnir sem búa hann til hafa lagt gríðalega vinnu í að gera hann sem nákvæmastan og skemmtilegan. Í gegnum árin bættu þeir hann með nýjum leikjum og aukapökkum. Nýjasti leikurinn í seríunni IL-2 Sturmovik: Cliffs of Dover fer að koma út og mun hann verða mesta breytingin á seríunni í 10 ár og innihalda algerlega nýja grafíkvél með öllum nýjustu augn konfektum sem nútíma grafík býður uppá á sama tíma innihalda harða Simulation tækni sem fær hörðustu flugvélar nörda til að þurka rykið af Joystiq pinnanum á methraða.

Hunted: Demon’s Forge er hasar og ævintýra leikur frá Bethesda Software og mun koma út á PC og PS3/Xbox 360 og er nokkuð forvitnilegur að sjá.

Mortal Kombat slagsmála serían snýr aftur núna í Apríl og erum við vægast sagt spenntir að sjá leikinn snúa aftur til rótanna. Við erum búnir að rúlla í gegnum demóið af leiknum á PSN búðinni og höfum haft mjög gaman af. Eitt af því sem mun gleðja PS3 eigendur mikið er að við munum fá harðnaglann Kratos úr God of War seríunni sem spilanlegan karakter, og er ekki annað hægt að segja að kallinn er í hörkustuði og virðist ætla að tæta í sig alla sem á vegi hans verða.

Í vikunni kom út á PlayStation Network og Xbox Live Marketplace leikurinn Ghostbusters: Sanctum of Slime sem er 4 manna co-op hasarleikur þar sem að þú og vinirnir geta mætt á svæðið til að berjast við drauga og skrímsli. Hann fæst á $9.99 eða 800 Ms punkta.

Kv.
GameTíví

Homefront selur 1. Miljón eintaka fyrstu vikuna

Homefront skotleikurinn frá Kaos Studios, sem segir söguna úr nálægri framtíð þar sem að Sameinuð Kórea gerir innrás í Bandaríkin hefur náð að seljast í 1. Miljón eintök af gripnum fyrstu vikuna í sölu og það eru að auki 1.4 Miljón eintök í umferð.

“Við erum mjög ánægðir með þau sterku viðbrögð við sölu og dreifingar tölum Homefront og við höldum áfram að senda út eintök af leiknum um allan heim” að sögn Brian Farrell yfirmanni THQ fyrirtækisins.

Leikurinn fór beint í fyrsta sætið í sölu í Bandaríkjunum ásamt Bretlandi.

Leikurinn hefur fengið mikkla kynningu í stóru átaki frá THQ og er það mesta sem fyrirtækið hefur nokkur tíman staðið að, svo þeir eru vonandi frekar sáttir við sitt. Sagan segir að leikurinn þurfi að ná 2. Miljónum eintaka í sölu til að skila hagnaði og hjálpa til að það komi framhald af leiknum.

Leikurinn er búin að fá pínu blendna dóma og er með um meðaltal 7.0 í einkun á Metacritic á PC/PS3/Xbox 360.

GameTíví bræðurnir dæmdu gripinn í síðasta þætti og fékk leikurinn 7 í einkun frá Óla og vorum við samála honum með söguna, skemmtilega fjölspilun en að leikurinn sé dregin niður af of stuttri spilun og miðlungs grafík sem er fín en aldrei flott.

Kv.
GameTíví

Heimild: VG24/7

F1 2011 mætir á ráspólinn í September

Codemasters fyrirtækið hefur kynnt næsta Formúlu 1 leik þeirra F1 2011 sem mun koma út þann 23. September og verða fáanlegur fyrir PC, PlayStation 3 og Xbox 360.

Í F1 2011 munu leikmenn vera skoraðir á að verða sannir Formúlu 1 ökumenn og takast á við allar þær áskorannir sem fylgja því að keyra um á ógnarhraða á augnarbliki, þar sem að hver mistök getur kostað ykkur bílinn eða lífið” (þó reyndar ekki í leiknum). Leikurinn mun skarta nýjum og endurbættum fjölspilunnar part ásamt Co-op fjölspilun.

Nýja 2011 tímabilið verður spilanlegt í leiknum með öllum brautunum, liðunum og öllum ökumönnunum þar á meðal núverandi meistara Sebastian Vettel og mun innihalda nýju F1 brautina í Jaypee International Race Circuit í Dehli í Indlandi ásamt endurkomu goðsagnarkenndu Nürburgring brautarinnar í Þýskalandi.

Codemasters hafa gefið út myndbandið að ofan þar sem að Stephen Hood aðalhönnuður leiksins útskýrir hvernig fólk getur tekið þátt í keppni til að prufa leikinn í fyrsta sinn, spjalla við hönnuðina og síðan keppa við þá. Það sem þarf að gera er að hlaða inn Youtube myndbandi þar sem að er lagðar spurningar til hönnuðuna á sem frumlegastan hátt. Hægt er að skoða meira um þetta á FaceBook síðu þeirra.

Við erum mjög spenntir að sjá hæfileikaríku kappana í hjá Codemasters í Birmingham að kmoa með nýja Formúla 1 leik handa okkur, við vonum bara að þeir passi uppá að byrjunar öðruleikarnir sem háðu leikinn í fyrra verði ekki til staðar í nýja leiknum.

Kv.
GameTíví

Heimild: BluesNews

Duke Nukem Forever fær smá seinkun

Duke Nukem Forever og seinkannir eru hlutur sem hafa haldist frekar fast í hendur síðustu árin og í þetta sinn er það engin breyting á.

Leikurinn er í vinnslu hjá Gearbox Studios hönnuða Brothers in Arms og Borderlands leikjanna sem eru að vinna að klára það sem 3D Realms byrjaði á 1997 og gat ekki klárað. Randy Pitchford forstjóri fyrirtækisins birtist á netinu í pínu spauglegu myndbandi og kynnti leikinn sem þeir eru búnir að vinna svo hart að klára, og í miðju myndbandinu er honum bennt á að leikurinn hefur verið seinkað um einn mánið og á núna að koma út þann 10. Júní um allan heim og þann 14. Júní í Bandaríkjunum.

Það er ekki annað en hægt að brosa pínu þegar maður heyrir setninguna “Duke Never Comes Early” sérstaklega ef maður er búin að vera að fylgjast með leiknum í öll árin sem hann hefur verið í vinnslu.2K Games útgefandi leiksins tjáði sig um þetta og lofuðu að þeir myndu ekki taka önnur 15 ár í að klára leikinn heheheh.

Það læddist þó að okkur smá grunur þegar að við sáum þetta myndband, þegar við mundum eftir að 1. Apríl er fljótlega. Við vonum pínu eftir að þetta sé smá húmor hjá Gearbox og að leikurinn komi út í Maí. Það er reyndar ólíklegt, en okkur fannst pínu fyndið að hugsa til þess að leikurinn fengi eina óvænta seinkun áður en að hann kæmi loks út.

En til vonar og vara munum við þó gera ráð fyrir að við fáum loksins að upplifa villt ævintýri Duke Nukem í byrjun sumarsins og skjótandi geimverur í ræmur og tyggjandi smá tyggjógúmmí :)

Við munum áfram þylja í huganum setninguna “Always Bet on Duke” og bíða spenntir eftir að kappinn mæti á svæði og sýni unglömbunum í skotleikja bransanum hvernig á að gera þetta.

Kv.
GameTíví

Heimild: BluesNews

Valve styður við hjálparstarfið í Japan

Bandaríska fyrirtækið Valve hönnuðar Steam þjónustunnar og Half-Life leikjanna hafa lagt sitt á vogarskálarnar til að hjálpa vinum okkar í Japan sem hafa gengið í gegnum margar hörmungar nýlega og þurfa alla hjálp sem fólk getur veitt.

Valve býður uppá hatta pakka fyrir persónur Team Fortress 2 skotleik þeirra og rennur allur ágóðinn til Bandaríska Rauða Krossins sem er að vinna í Japan við hjálparstörf.

Mann Co. býður uppá is “Humanitarian’s Hachimaki” á $7.99, “Benefactor’s Kanmuri” á $19.99 og síðan “Magnanimous Monarch” fyrir þá sem eru rausnalegir og kostar hann $99.99. Hattarnir virka á alla klassana í leiknum, en það er ekki hægt að skipta þeim út eða nota í crafting.

Pakkarnir verða á boðstólnum til 6. Apríl og eins og áður hefur komið fram rennur allur ágóðinn óskipt til Bandaríska Rauða Krossins og munu fjármunirnir koma að góðum notum í Japan. Einnig er síðan hægt að gefa beint á heimasíðu Rauða Krossins hérna hérna.

Það er ekki annað hægt að hrósa Valve og öðrum fyrirtækjum sem eru að leggja sitt að mörkunum til að hjálpa fólki á harmfarasvæðunum í Japan.

Kv.
GameTíví

Heimild: Joystiq

Resident Evil HD pakki á leiðinni

Samkvæmt fréttum frá Japanska tímaritinu Famistu eigum við von 4 blaðsíðna umfjöllum um Resident Evil Revival Selection. Það eru óljósar fréttir á reki eins og er um hvað nákvæmlega þessi titill er, annað en að hann er HD Endurútgáfa af Resident Evil: Code Veronica Director’s Cut sem hefur einnig áður komið út í nokkrum útgáfun og síðan Resident Evil 4 sem er þá að fá enn eina útgáfuna af leik sem margir telja þann besta í seríunni.

Samkvæmt Famitsu mun Resident Evil 4 innihalda Seperate Ways aukaborðin úr PlayStation 2 útgáfu leiksins. Leikirnir munu keyra í HD upplausn en ekki endilega vera endurgerðir eins og Resident Evil leikirnir á Gamecube sem voru endugerðir Resident Evil 1 og 2 með nýrri grafíkvél.

Ágætis munur þarna á ferð.

Revival Selection mun hingað til bara vera með staðfesta útgáfu í Japan á Xbox 360 og PlayStation 3, en Capcom í Evrópu staðfesti við Eurogamer vefsíðuna að þessar útgáfur myndu koma út í Evrópu næsta haust á PSN og Xbox Marketplace, það er ekki víst hvort að við munum kaupa þetta í sitt hvoru laginu eða ekki.

Það er ekki vitað enn hvort að þessi HD útgáfa mun styðja Kinect hreyfitækni Xbox 360 eða Move tækni PlayStation 3. En fólk mun fá Trophies og Achievements stuðning fyrir leikina.

Kv.
GameTíví

Heimild: Giantbomb og mynd frá Eurogamer

EverQuest MMO leikurinn orðinn 12 ára

Það er hálf ótrúlegt að trúa því að MMO-RPG leikurinn EverQuest er orðin 12 ára. Fyrir marga var þetta fyrsti netleikur þeirra og kynnti þá fyrir þeim möguleikum sem voru í boði að spila í undraheimi með vinum og á sama tíma kynnast nýjum vinum, við hugsum tilbaka til leiksins og munum hve harður hann var og svo ólíkur MMO leikjum dagsins í dag, það var mikklu meira að tapa að deyja á þessum tíma en núna.

Þó að Ultima Online kom út 2 árun áður, var EverQuest leikurinn sem náði gríðalegum vinsældum og þegar best var með um 500 þúsund áskrifendur sem var óheyrt áður. World of WarCraft reyndar kom og rústaði þessu meti síðar, en á þessum tíma var þetta mælikvarðinn til að ná árangri með MMO leik.

The Chronomages of Norrath need your help. They’ve felt surges in the fabric of time, and used their magic to investigate those surges. The results of their probes caused portals to open, connecting the present with the ancient days before The Shattering. You’ve been asked to go through the portals, face any challenges you may find, and return to help the Chronomages understand what’s happening.Portals have opened in Sinking Sands, the Moors of Ykesha, Feerott, Thundering Steppes, Antonica, Steamfont, the Enchanted Lands, and Lavastorm. The mages ask that you investigate them all!

Journey through the portals to find the ancient heroes and villains of an age gone by. Reminisce about them. Then kill them and loot them for the really cool items they possess. Hurry before time runs out!

Í tilefni þessum áfanga er gamli klárinn að glæðast á ný með nýjum viðburðum í Norrath. Þeir sem eiga aukapakkana fyrir leikinn munu fá sem mest úr þessum viðburðum en þeir sem skarta Vanilla útgáfu af EverQuest fá eitthvað fyrir sinn snúð líka og er hægt að sjá meira um það hérna.

Til gamans má nefna að EverQuest er búin að fá 17 aukapakka! Geri aðrir betur og kom sá síðasti út í fyrra, pakkarnir hafa bætt við nýjum svæðum, hærra level cap, nýja kynstofna, klassa, lönd, dót og svo margt meira ásamt að leikurinn er enn uppfærður reglulega og í fullu fjöri þrátt fyrir að EverQuest II hafi komið út árið 2004.

Kv.
GameTíví

PSN uppfærsla vikunnar

Evrópska PSN búðin var uppfærð í gær og eins og venjan er og er úr nægu að velja fyrir fólk og úr öllum áttum.

Fyrir þá sem treysta sér ekki alla leið útí búð að kaupa DC Universe Online netleiikinn þá er núna hægt að kaupa netleikinn beint á PSN búðinni. Það eina sem þarf að hafa í huga þó er að það er fyrst 122mb skrá til að sækja úr búðinni og síðan bíður fólks 15GB niðurhal af leiknum, svo það er um að gera að hafa nægt pláss á PS3 vélinni og nægan tíma og niðurhals skammt frá netveitunni. Það fylgir 30 daga spilunar tími með leiknum og síðan er hægt að kaupa auka tíma eftir það beint úr búðinni.

PlayStation 1 leikurinn Resident Evil: Director’s Cut kemur út loksins á Evrópsku PSN búðina og er búið að biðja mikið um hann að sögn Sony. Núna vantar bara Resident Evil 2.

Frá Konami kemur út hliðar skotleikurinn Hard Corps: Uprising og nýtt DLC fyrir leikinn í tilefni þess.

Það er spilanlegt demó af Marvel Pinball og WWE AllStars glímuleiknum sem er hægt að sækja, og líst okkur sæmilega á WWE leikinn enda skartar hann köppum eins og Hulk Hogan, Macho Man Randy Savage, Ultimate Warrior, The Rock og Andre the Giant.

Krúttlegi leikurinn LittleBigPlanet 2 fær slatta af búninga DLC og NFS: Hot Pursuit bílaleikurinn fær þrjá DLC pakka sem bæta við bílum, brautum og Trophies.

Tónlistar leikurinn Rock Band 3 fær Billy Joel píanó lagapakka.

Það eru síðan nokkur tilboð á PSN búðinni sem er þess virði að kíkja á.

Hægt er að sjá listann í heild sinni á Evrópska Playstation Blogginu að venju.

Kv.
GameTíví

Hvernig munuð þið spila Crysis 2?

Í lok þessarar viku kemur út líklega einn af heitari skotleikjum ársins og eitthvað sem margir eru búnir að slefa yfir tilhugsunni að kaupa gripinn og fara með heim á leið og sökkva sér í stórfenglegu grafíkina og spilun. Við erum auðvitað að tala um Crysis 2 skotleik hins Þýska fyrirtækis Crytek sem spruttu fram á sjónarsviðið fyrir nokkrum árum með FarCry leiknum sem kom fólki skemmtilega á óvart með meiriháttar grafík og opinni spilun og fallegri frumskógar eyju.

Eftirvæntingin fyrir leiknum er mikil, og á sama tíma eru væntingar margra mikklar til að sjá hvað hin nýja CryEngine 3 grafíkvélin getur gert, hún var sérstaklega búin til að rúlla á leikjavélum Sony og Microsoft ásamt PC.. Fyrir þá sem spila leiki sýna á PlayStation 3 eða Xbox 360, verður þetta í fyrsta sinn sem þeir komast í snertingu fyrir leiki frá Crytek og það frelsi sem fylgir spiluninni í leikjum þeirra. Það sem flestir hafa þó áhuga á er; “hvernig er grafíkin? Fær hún augun á mér til að bráðna af gleði?”

Hérna fyrir neðan er glænýr og vel heitur trailer úr leiknum sem er gefin út í tilefni að leikurinn er að bresta á í útgáfu í lok þessarar viku og kemur út á PC/PS3/Xbox 360.

Leikmenn fara í spor persónu að nafni Alcatraz sem á dularfullan hátt hefur fengið Nano Suit búningin frá Prophet aðalpersónu fyrri Crysis leiks. Alcatraz er staddur í New York borg og hefst sagan stuttu fyrir rosalega geimveru árás á borgina, leikmenn þurfa að hafa sig allan við að lifa af þessa árás, berjast bæði við geimverur og hermenn sem vilja ná búningnum af þér og reyna síðan að bjarga borginni frá að vera hreinlega eytt.

Það er ekki annað hægt að segja að leikurinn líti stórfenglega út og miðað við fyrstu dómana sem leikurinn er að fá á öllum vélum er hann biðarinnar virði með góða endingu og yfir 10-12 tíma spilun í gegnum sögun og síðan skemmtilegum fjölspilunar parti sem kraftar Nano búningsins koma við sögu þar sem að þú reynir að ganga frá vinum þínum og óvinum. Leikurinn verður með Perks kerfi ekki ólíkt úr Call of Duty leikjunum sem ætti að halda fólki vel við efnið.

Hérna eru nokkrir af dómunum sem komnir eru nú þegar;

Við erum pínu forvitinn yfir áhuga ykkar á leiknum og hvar þið hafið hugsað ykkur að spila leikinn. Verður það í upp djúsaðri PC vél sem mylur alla tölvuleiki eða eldri vél og með grafíkina stillta niður? Eða verður það í sófanum í Xbox 360/PS3 fyrir framan stóra flatskjáinn og með heimabíóið það hátt stillt að þið verðið beðin um að flytja úr hverfinu eftir að þið klárið Crysis 2? Síðan er síðan eftir umræðan um hvort að þið sem skartið nýjustu tækni  í sjónvörpum eða tölvuskjám hvort að leikurinn verður spilaður í 2D eða 3D?

Smá ábending, ef að þið eigið PC vél sem keyrir Crysis og eða Crysis: Warhead aukapakkann vel, þá eigið þið að vera í góðum málum með að spila Crysis 2 í fínum gæðum að sögn Crytek. Það er komin út plástur fyrir leikinn sem lagar nokkra hnökra og mun verða fáanlegur þegar leikurinn er ræstur upp. Crytek er enn að vinna í DirextX 11 plástri fyrir leikinn sem ætti að koma út á næstu vikum.

Endilega tjáið ykkur um hvað ykkur finnst um leikinn og hvernig þið ætlið að njóta leiksins, og fyrir þá sem hafa engan áhuga á honum endilega líka segið okkur hvað heillar ykkur ekki, annað hvort hérna á síðunni hérna undir eða á Facebook síðunni okkar sem er ávallt fullt af hressu fólki og síðan er það auðvitað nýja spjallborðið okkar hérna.

GameTíví bræðurnir mun að sjálfsögðu dæma leikinn fljótlega í þættinum okkar á Skjá Einum fljótlega.

Við erum að setja okkur í startholinn að skjóta geimverur í rústum New York borgar um helgina og reyna að bjarga því sem bjargað getur, hvað með ykkur?

Kv.
GameTíví