Við færum ykkur upplýsingar af nýjustu PSN uppfærslu búðiarinnar í Evrópu sem er í góðum fíling þessa vikuna.
Draugabanarnir mæta á svæðið í Ghostbusters: Sanctum of Slime sem er 4 manna co-op hasarleikur.
Swarm er nýr ævintýra og þrautaleikur frá Hothead Studios sem síðast gáfu út á PSN Deathspank leikina, þetta er skemmtilegur leikur sem minnir pínu á gömlu Lemmings leikina. Í Swarm er málið að reyna að koma á leiðarenda sem mest stig, litlum bláum dýrum sem vinna saman og lenda þau vægast sagt í reglulegum hræðilegum dauðsföllum, til allra lukku er nóg af þeim.
Square-Enix gefur út tvenna leiki, á PSP er það The 3rd Birthday sem er leikur í The Parasite Eve seríunni og síðan er það Moon Driver fyrir PS3.
Það er nóg af DLc efni þessa vikuna og fremst í flokki er það loka partur af DLC efni geim hlutverka seríu BioWare, Mass Effect 2. Nýja DLC heitir Arrival.
Need for Speed: SHIFT 2: Unleashed fær nýr DLC sem er hægt að skoða innan leiksins og Tiger Woods kappinn fær eitt það stærsta magn af DLC sem hefur sést í einu á PSN búðinni, svo þeir sem eru í stuði fyrir Tiger Woods 12 ættu að kíkja á þetta en hafa í huga að líklega er sumt af þessu hægt að vinna sér inn á venjulegan hátt í gegnum leikinn sjálfan.
EA og hið Sænska stúdíó DICE hafa sýnt þriðja myndbrotið úr Battlefield 3 skotleiknum sem er áætlaður næsta vetur á PC/PS3/Xbox 360 og virðist ætla að vera sá leikur sem getur skákað Call of Duty seríu Activision sem hefur gengið í gegnum vissa erfiðleika uppá síðkastið, en selst gríðalega vel þó.
Mynbandið er í seríu sem kallast “The Fault Line” og heitir það nýja “Get that Wire Cut” og lítur það meiriháttar vel út og allar hreyfingar og grafík er í hæðsta gæðaflokki og er áberandi að DICE ætlar sér krúnu COD leikjanna. Eins og má sjá á myndbrotinu er myndbrotið tekið úr PC útgáfu leiksins sem DICE hefur eimmit lofað að verði ekkert “leikjavéla port” heldur sannur PC leikur þar sem að engu verður fórnað og að allar útgáfurnar fái að njóta sýn til hins ýtrasta.
Í lok myndbandsins er gefin upp dagsetningin 17. Apríl gefin upp og þá fáum við að sjá 12.mín myndbrot úr sögu leiksins og getum við varla beðið eftir að sjá það, eins og oft áður þá mælum við að smella myndbandi í HD upplausn og horfa nokkrum sinnum á í fullri skjáupplausn.
Við sögðum frá í síðustu viku frá því hvernig leikja fyrirtækið Valve eru í gegnum Team Fortress 2 skotleik þeirra að að styðja á bakvið það mikilvæga hjálparstarf sem fer núna fram í Japan með því að selja höfuðföt fyrir persónur leiksins eins og sést hérna í myndinni fyrir ofan.
Valve hefur tilkynnt á þessum stutta tíma hafa safnast yfir $300,000 Dollarar hingað til sem er um tæpar 35 Miljónir Íslenskar, sem er frábær árangur á svona stuttum tíma.
Take a BOW, TF2 community — because that is an incredible, frankly astounding, amount of money from a dedicated number of gamers, to one heck of a lot of people in some real need right now. Anytime someone gives you guff about something negative in gaming, you go ahead and point them to this post, because here’s some late-breaking damn news: they are wrong and gamers are generous and awesome.
Valve minnti síðan á að það er enn tími til að leggja sitt af mörkunum og rúllar þetta átak til 6. Apríl í næstu viku.
Uppfært: Það er komin lítill traileri fyrir leikinn sem er meira “teaser” en nokkuð annað. Hann má finna neðar í greininni.
Capcom í Evrópu hefur staðfest að nýr Resident Evil leikur er í vinnslu hjá fyrirtækinu Slant Six og heitir gripurinn Resident Evil: Operation Raccoon City og er liða byggður þriðju persónu skotleikur þar sem tvenn 4 persónu lið keppast á móti hverju öðru á sama tíma og þau þurfa að berjast við heilan skara af uppvakningum og önnur “lífræðileg vopn.”
Capcom lofar að auki fjölda mismunandi fjölspilunar keppnis möguleikum sem munu skapa einstaka leikjaspilun. Þrátt fyrir þennan sterka samkeppnis fókus, verður leikurinn líka með einhvers konar einmennings part.
Allt þetta byggist í kringum atburði sem gerast í September 1998 og er það tímabilið sem Resident Evil 2 og Resident Evil 3: Nemesis gerast í, þó ekki því sem eldri Resident Evil leikmenn kannast við. Þessi leikur er endursköpun af atburðum þessa leikja og mun kynna nýja T-Vírus útbreiðslu í borginni, Umbrella Secret Service (leyniþjónusta) og US Spec Ops þurfa að klást við hann. Leon S. Kennedy úr fyrri leikjum snýr aftur ásamt þekktum sögusviðum.
Slant Six fyrirtækið gerði síðast eimmit annan taktískan liða skotleik og var það SOCOM: Confrontation fyrir PlayStation 3.
Raccoon City á að koma út næsta vetur á PS3, Xbox 360, og PC.
Insomniac leikjafyrirtækið hélt sinn þriðja árlega Community Day og kynntu þeir nánar Resistance 3 skotleik þeirra og Ratchet & Clank: All 4 One leikinn sem er eimmit nýkomin í búðir hérna á klakanum.
Resistance 3 skotleikurinn fær 3D stuðning fyrir þá sem eiga glænýtt sjónvarp sem styður þá tækni tækni. PlayStation Move stuðningur verður einnig í boði og ættu þeir sem hafa spilað Killzone 3 eða hinn væntanlega SOCOM: Special Forces að kannast við hvernig spilast. Sharpshooter aukahluturinn sem sést á myndinni fyrir ofan og hann Óli GameTívíbróðir sýndi eimmit í nýlegum GameTíví þætti. Insomniac sagði að þeir hefðu heyrt mjög góða hluti eftir það og voru beðnir af aðdándum þeirra að styðja bæði.
Resistance 3 mun mæta á svæðið núna í September eingöngu á PlayStation 3. Hægt er að fylgjast nánar með félögunum hjá Insomniac Games á Twitter, (leitið af #InsomniacGames fyrir keppnir) og hægt er að smella á Like á þá á Facebook.
Í dag kom út loka DLC (niðurhals efni) fyrir epíska geim leik BioWare fyrirtækisins, Mass Effect 2. Nýja pakkinn sem heitir Arrival er ætlað að brúa bilið á milli ME2 og Mass Effect 3 sem ætti að koma út í lok ársins og klára seríuna.
Á endamörkum vetrarbrautarinnar, eru The Reapers að undirbúa endurkomu sýna. Mun Commander Shepard hafa möguleika að standa á móti svona óvini?
BioWare kynnir í dag Mass Effect: Arrival, spennanndi lokaverkefni Mass Effect 2. Það er hægt að sækja það til niðurhals þann 29. Mars. Mass Effect: Arrival mun innihalda þrenn ný achievements á Xbox 360® og á PC og síðan þrenn ný trophies á PlayStation®3. Þessi pakki mun kosta 560 MS Points á Xbox 360, £5.49 á PlayStation Network og verður fáanlegur á PC fyrir 560 BioWare Points á http://social.bioware.com/page/me2-dlc.
Hérna fyrir neðan er glænýr trailer fyrir pakkan.
Í Mass Effect: Arrival, er Commander Shepard sendur í endamörk vetrarbrautrinnar til að bjarga njósnara sem er talin hafa mikilvægar upplýsingar un væntanlegu innrás The Reapers sem við höfum átt von á frá byrjun Mass Effect.
Við mælum klárlega með að fólk sé búið með Mass Effect 2 leikinn sjálfann og helst DLC pakkana eins og Lair of the Shadow Broker ofl áður en þessi er spilaður, bara svona til að vera með söguna og allt á hreinu áður.
Það er um að gera ef að þið eruð RPG aðdáendur eða bara hafið gaman af frábærum leikjum að smella sér á þennan loka aukapakka fyrir Mass Effect 2 og ef að þið hafið ekki en kíkt á seríuna (skamm, skamm!!) þá er um að gera að bæta úr því. Upprunalegi Mass Effect er fáanlegur á Xbox 360 og PC, og Mass Effect 2 á Xbox 360, PC og PlayStation 3.
Við ætlum að skella okkur í Mass Effect 2 fíling í kvöld og síðan reyna að dreifa huganum fram í árslok til að fá loka leikinn í þessari mögnuðu seríu.
Darkspore leikurinn sem er RPG hliðargrein frá Spore leik Will Wright’s frá árinu 2008 hefur verið seinkað um mánuð og mun núna koma út þann 28. Apríl á PC.
Leikurinn átti upprunalega að koma út 29. Mars næstkomandi og bendir ýmislegt til að Betan sem er búin að vera í gangi hafi haft áhrif á seinkun leiksins.
Maxis framleiðandi leiksins sagði á heimasíðu þeirra að; “við höfum fengið góðar ábendingar um leikinn og hvað mætti betur fara ásamt viðbætum sem ættu heima í leiknum. Við erum nálægt að klára leikinn, en til að færa ykkur sem besta leik mögulegan höfum við ákveðið að taka aðeins meiri tíma og fara eftir ábendingum ykkur,” sögðu framleiðendur leiksins.
Það er síðan lofað auknum Beta prufunum fyrir loka útgáfu leiksins, og er eimmit ein slík byrjuð núna á Steam og er hægt að kaupa leikinn í tilboðs pökkum og sækja Betuna sem rúllar fram á Föstudaginn. Betan samkvæmt Steam er 5.8GB að stærð.
Það er ekki svo langt síðan að Breska leikja fyrirtækið Bizarre Creations leið undir lok, Activision fyrirtækið lokaði því eftir slaka sölu Blur og James Bond: Blood Stone leikjanna. Áður hafði fyrirtækið gert Project Gotham Racing 1-4 fyrir Xbox og Xbox 360 vélar Microsoft og síðan Geometry Wars leikinn sem byrjaði líf sitt sem falinn leikur í Project Gotham Racing 2 og var síðan gefin út stakur.
Hogrocket er nýtt lítið stúdíó sem er í Norð Vestur Englandi og er stofnað af Peter Collier sem vann að James Bond: Blood Stone og The Club, Stephen Cakebreak sem skapaði hinn frábæra Geometry Wars og síðan Ben Ward sem vann að samfélagshlið Bizzarre.
Hogrocket mun í byrjun vinna að leikjum fyrir iPhone/iPad, PC og Mac að sögn Ward.
“Fyrsti leikurinn okkar er í vinnslu, við eigum reyndar eftir að kynna hann. Hafið augun opin fyrir því.”
Hogrocket er annað fyrirtækið sem er stofnað úr rúsum Bizzarre, Lucid Games war nýlega stofnað af fyrrum starfsmönnum fyrirtækisins.
Við erum spenntir að sjá hvað þetta littla fyrirtæki mun gera, sérstaklega með höfund Geometry Wars innanborðs.
Uppfært: Crytek hefur verið að bakka með þennan orðróm og sagt að það sé ekkert í þeim fréttum að DX11 plásturinn sé í vinnslu hjá þeim, þeir sögðu að þegar að ætti væri að ræða myndi það birtast á MyCrysis vefsíðunni. Þeir aftur á móti skutu ekki niður neitt í sambandi við hinn plásturinn sem er sagður í vinnslu og ætti að koma fljótlega.
Skotleikurinn Crysis 2 ætti að fá plástur í vikunni ef að marka má orðróm sem um að nýr plástur sé væntanlegur og bætir við DirectX 11 stuðningi fyrir þá sem eru með nýleg Nvidia eða ATi skjákort sem styðja þá fítusa. Það verður síðan nýr “Advanced Graphics menu” sem mun leyfa fólki að fínstilla leikinn betur að sinni PC vél, án þess að þurfa að nýta forrit frá þriðja aðila.
Fyrir þá sem versluðu leikinn útúr búð verður hægt að nálgast upplýsingar um að sækja plásturinn á heimasíðu leiksins og MyCrysis síðunni. Þeir sem eru með Steam útgáfuna eða EA Downloader þurfa bara að ræsa leikinn upp þar og fá hann sjálfkrafa.
Leikurinn lítur meiriháttar vel út í DirectX 9 og bíðum við spenntir að sjá hvernig hann virkar í DX11.
Að auki við umrædda DX11 plástur þá er Crytek að vinna að öðrum plástri sem gæti komið út áður og á hann að laga hnökra við netspilun leiksins og í leið lokar á sjónræningja sem hafa náð að spila stolnar útgáfur af leiknum á opinberum netþjónum leiksins.
Crysis 2 er búin að rúlla vel af stað og verður gaman að sjá fyrstu sölutölurnar fyrir leikinn, að sögn EA útgefanda leiksins þá hefur hann farið best af stað af öllum leikjum sem þeir hafa gefið út á þessu ári hingað til.
Við erum búnir að spila hann bæði á PC og leikjavélunum og höfum haft mjög gaman af honum, og þið ættuð að geta séð dóm GameTíví bræðra í næsta þætti núna á Fimtudaginn í opinni dagskrá á Skjá Einum kl.19:15.
Í vikulokin nánar á Fimtudaginn næsta kemur út bílaleikurinn SHIFT 2: Unleashed á PC/PS3/Xbox 360. Leikurinn er harður og raunverulegur bílaleikur í anda Gran Turismo seríu Sony.
Leikurinn skartar 145 bílum frá 37 framleiðendum og 36 brautum til að keppa á og byggir á því sem fyrri leikurinn kom með. Hægt verður að keppa á netinu við aðra leikmenn, keppast og metast við vinina með Autolog kerfinu sem birtist í fyrra í Need for Speed: Hot Pursuit og var skemmtileg leið að spila leikinn í samkeppni við vinina. Í leiknum verður hægt að nota glænýtt sjónarhorn sem kallast “Helmet Cam” sem leyfir þér að sjá nákvæmlega það sem þú myndir sjá ef að þú sætir í bílnum og þeyttist eftir brautinni á ógnarhraða. Það verða síðan nætur keppnir sem ætti að fá blóðið að renna talsvert hraðar um líkamann.
Eitt af því sem okkur líkaði svo vel við fyrsta leikinn var tilfinningin fyrir hraðanm á sama tíma nákvæmnin í hvernig bílarnir létu á brautinni og auðvitað Physics partur leiksins í árekstrunum og öll sú nákvæmnis vinna sem hafði verið lögð í allan leikinn. Hægt verður að keppa á Muscle bílum, Retro, brautar keppnum, úthalds keppnum, drifting keppnum og síðan FIA GT3 European Championship allt til hjálpa manni að verða betri og að lokum enda sem FIA GT1 meistarinn.
Hann er byrjaður nú þegar að fá dóma og lofa þeir góðu.
9/10
“The Real Deal”
Official Xbox Magazine
9/10
“Visceral”
PlayStation: The Official Magazine
9/10
“Impeccable”
Electronic Gaming Monthly
EA er búin að gefa út glænýjan trailer fyrir leikinn sem má finna hérna fyrir neðan.
Hérna er síðan Trophy/Achievement fyrir PlayStation 3 og Xbox 360 útgáfur leiksins, og er hægt að rýna í þetta og sjá hverju maður á von. Stiga tölurnar eru fyrir 360 útgáfuna, en að öðru leyti er PS3 dæmið það sama fyrir utan Platinum Trophy sem fæst fyrir að klára leikinn 100%.
Road to Glory – Beaten your first Rival – 10G
Amateur - Reached Driver Level 5 – 10G
Semi-Pro – Reached Driver Level 10 – 10G
Pro – Reached Driver Level 15 – 50G
Veteran - Reached Driver Level 20 – 75G
Proving Grounds – Won JR’s GTR Challenge – 10G
The World is my Oyster – Unlocked the FIA GT1 Branch – 10G
Recommended – Completed an event recommended by a friend – 5G
Cub Scout – Won your first Event Set badge – 10G
The Driver’s battle – Completed an event purely from helmet cam – 5G
In The Zone – Won an Online event from helmet cam – 10G
Going the extra mile – Completed 250 Event Objectives – 25G
Dominator - Beaten all the Rivals – 100G
Works Champion – Beat Mad Mike Whiddett and won the Works Championship – 50G
GT3 Champion – Beat Patrick Soderlund and won the FIA GT3 European Championship – 50G
GT1 Champion – Beat Jamie Campbell-Walter and won the FIA GT1 World Championship – 100G
Day Walker – Mastered every location in day or dusk – 50G
Night Rider – Mastered every location at night – 100G
Bounty Hunter – Earned $10,000,000 total during your career – 20G
King of the Hill – Won your first Driver Duel Championship crown – 10G
Leno would be proud – Have at least one car from each manufacturer in your garage – 10G
Badge Earner – Earned 10 Badges – 5G
Badge Hunter - Earned 50 Badges – 10G
Badge Collector – Earned 100 Badges – 50G
Workaholic – Upgraded 3 vehicles to Works spec – 10G
Nýleg comment