- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for February, 2011

DC Universe fær fyrstu DLC uppfærsluna

DC Universe Online fékk sýna fyrstu stóru uppfærslu PC/Ps3 í síðustu viku sem Catwoman var stór hluti af. Hérna er hluti af því sem er innifalið í uppfærslunni:

  • New Batcave Raid – 8 players will have the opportunity to infiltrate and retake Batman’s Inner Sanctum, which has been overrun by OMAC and the Dark Knight’s own corrupted technology. Fight alongside Batman against Brother Eye!
  • New Appearance Items – Earn a Harlequin Clown suit or a Cherub disguise through a variety of holiday activities.
  • Goddess of Love Alert – Join up with 3 others to decide the epic battle between Devotion and Scorn once and for all.
  • New Races – Can you catch Catwoman as she leaps across buildings in Gotham City?
  • New Collections – All new collection sets will allow players to continue finding these hidden items.
  • New Themed Missions – Enjoy various missions that will challenge the player in combat, jumping, and much more.
  • A New Bane Duo – Another Duo has been added for your enjoyment! Pair up with another player and take on Bane for a chance at great loot.
  • New PvP Ring Event – Available on both PvP and PvE servers, Heroes and villains race to either save or steal valuable bags of diamonds from armored vans.
  • An Auction House – Players may now buy and sell tradeable items on a Broker in The Watchtower and Hall of Doom.
  • New Armor – Make your way to the Gotham Museum and help Catwoman to receive pieces of brand new Mayan armor!

Uppfærslan er um 2GB að stærð og nóg er að ræsa upp leikinn til að hún byrji að niðurhalast. Á PS3 er fyrst er sótt 122MB plástur og síðan ræsist leikurinn upp og þá mun hann sækja aðalskránna sem er um 2Gb að stærð og inniheldur mikið af efni fyrir leikinn sem ætti að auka endingatíma hans talsvert, enda bráð nauðsynlegt fyrir MMORPG leiki að fá reglulegar uppfærslur fyrir leikmenn, Hún kostar ekki krónu fyrir þá sem eru að pæla.

Kv.
GameTíví

Dead Space 2: Severed kemur 1. Mars

Hinn hryllingsfengni leikur Dead Space 2 frá Eletronic Arts á von á nýrri innspýtingu í vikunni þegar að hann fær sitt fyrsta sögubyggða DLC efni og kallast það Severed, sem myndi þýðast sem aflimun sem er líklega mjög viðeigandi miðað við efnið.

Þessi DLC pakkin mun taka leikmenn í gegnum drungalega sögu Gabe Weller sem aðdáendur ætta að mun frá Dead Space: Extraction Nintendo Wii leiknum sem fékk HD uppfærslu með útgáfu Dead Space 2 og er fáanlegur á PS3 og PSN í dag. Sagan mun spila að hluta samhliða sögu DS2 og fylla meira uppí baksögu leiksins og þess hryllings sem var í The Sprawl og mun skýra hvernig það byrjaði.

Muna bara að kíkja ekki á þetta fyrir en þið eruð búin með aðalsögu leiksins.

Dead Space 2: Severed verður fáanlegt á Xbox Live Marketplace og PlayStation Network þann 1. Mars og mun kosta 560 MSP / $6.99.

Kv.
GameTíví

Sunnudags trailer skammturinn

Þá fer Febrúar að ljúka og Mars að byrja sem mun færa okkur marga spennandi leiki, svo það er um að gera að slaka á og gæða sér á nokkrum góðum trailerum á meðan beðið er. Við erum með meiriháttar pakka þessa viku og ættu allir vonandi að finna eitthvað fyrir sig.

Risa skotleikurinn Killzone 3 fyrir PlayStation 3 kom út í miðri vikunni sem er að enda og eru margir þar á meðal okkar búnir að bíða lengi eftir þessum leik. Hann byggir á öllu sem gerði síðasta leik góðan ásamt að bæta stjórnunina og spilun. Ef að þú átt PS3 og fílar skotleiki þá geturðu ekki klikkað á Killzone 3. Við látum trailerinn sannfæra ykkur betur.

Við fylgjum strax á eftir með síðari skotleik vikunnar sem er hinn ýkti Bulletstorm sem kom út á PC/PS3/Xbox 360 og er gerður af þeim sömu og gerðu Painkiller leikina og gefin útaf Epic Games hönnuðum Unreal og Gears of War leikjanna.

inFamous 2 heldur áfram að heilla og nýjasti trailerinn fer í gegnum þá erfiðu valkosti sem Cole stendur fyrir og undirstrikar hve erfitt það getur verið að reyna að gera hið rétta. Leikurinn mun koma út í Júní á PS3.

Hinir Sænsku félagar okkur í DICE halda áfram að stríða okkur með upplýsingum um skotleik þeirra Battlefield 3 og eru búnir að gefa út nýjan trailer sem heldur áfram að gefa út lítil myndbrot af leiknum í undirbúningi fyrir stærri sýningu síðar.

Góðir flugleikir eru sjaldgæfir í dag sérstaklega á leikjavélunum. Ace Combat serían hefur verið tengt mikið PlayStation frá byrjun og gengið vel og er nýja leiknum ætlað að hrista aðeins uppí þessu með harðara looki og alvarlegri tóni í spilun í Ace Combat: Assault Horizon.

Við erum með hérna stutt sýnishorn út væntanlega opna sandbox leiknum Prototype 2 sem á að koma út á næsta ári. Það er skemmtileg tenging við Penny-Arcade vef teiknimyndasöguna.

Við höldum áfram að slefa yfir Crysis 2 skotleik Crytek og EA sem á að koma út núna í Mars á PC/PS3/Xbox 360. Nýji trailerinn heldur áfram yfirlitinu yfir sögu leiksins og sýnir okkur nokkur kunnuleg andlit úr fyrri leikjum.

Við endum þetta á mjög flottu sýnishorni úr aksturleik EA í Need For Speed seríunni sem er hin hliðin af bílaleik þeirra. SHIFT 2: Unleashed snýst um að endurspegla raunverulegri og harðari spilun. Þeir hafa eytt mikklum tíma að gera leikinn eins raunverulega eins og er og hafa unnið náið með ökumönnum til að gera útlit leiksins og spilun eins raunverulega og hægt er. Við leyfum ykkur að dæma hve vel það tókst upp.

Kv.
GameTíví

Atari þakkar fyrir sig með fríu DLC fyrir TDU2

Atari og Eden Game hafa sagt að þeir muni gefa fyrsta DLC efni leiksins Test Drive Unlimited 2 frítt til að þakka fyrir og biðjast afsökunnar á vandamálunum sem hafa plagað leikinn síðan að hann kom út.

Þeir gáfu út opið bréf til notendanna og fylgir það hérna fyrir neðan.

“Þakka ykkur fyrir áframhaldandi stuðning og athugasemdir. Samfélag okkar er meiriháttar og hefur hjálpað okkur að miða strax vel á að finna helstu vandamálin, og höfum við náð langt með að leysa það í væntanlegum uppfærslum fyrir leikinn.

Við erum þakklát fyrir þolinmæði ykkar í þessu máli og við viljum tilkynna að við munum gefa fyrsta DLC pakka leiksins frítt fyrir alla til að segja takk fyrir okkur.

The Exploration Pack inniheldur bílana Lancia Stratos version Rallye og 1969 Dodge Charger sem opnast fyrir með að finna bílflök í leiknum.

Við erum komin með lagfæringar á þessum vandamálaum hér fyrir neðan og er uppfærslan komin í loftið á PC og mun koma fljótlega fyrir PS3 og Xbox 360 þegar að það hefur farið í gegnum prófannir þeirra.

Issues Fixed:

*Logging into the game has been improved
*Once into the game the online network experience is now much more stable in all areas
*Save games no longer corrupt
*Existing corrupted save games will be repaired in many cases
*Friends lists are now populated
*Invites now work correctly
*Clubs have been brought back online
*Exploits to gain money have been fixed
*Casino access has been improved
*Players will no longer lose money because of the Casino bug

Liðið eyðir mikklum tíma í að fylgjast með viðbrögðum notenda okkar, svo ekki hika að pósta þeim á opinbera spjallborð TDU2 leiksins og við hlökkum til að sjá ykkur á Ibiza.”

Það er jákvætt að sjá hvernig Eden Games og Atari eru að bregðast við þessari pínu erfiðu fæðingu á þessum metnaðarfulla bílaleik og er það flott að sjá þá gefa notendum sýnum frítt efni á meðan og vera að koma með snöggar uppfærslur til að koma leiknum í rétt horf og leyfa fólki að halda áfram að kanna heiminn og spila við aðra.

Kv.
GameTíví

Uppfært: Modern Warfare 3 væntanlega kynntur í næstu viku

Uppfært: Kotaku birti í kvöld viðtal við talsmann frá Activision sem sagði að fréttirnar um að þeir myndu kynna næsta Modern Warfare 3 leik væru ekkert annað en gabb og kæmu ekki frá þeim. Vefsíða tengd þessu spratt upp nýlega með teljara sem gaf til kynna kynningu í næstu viku, að auki höfðu fréttamenn fengið pakka í pósti sem vísaði í persónur fyrri leikja.

“Það virðist vera miklar spekúleringar um næsta Call of Duty verkefni. Verum með það á hreinu að við erum ekki að fara að kynna neitt,” sagði talsmaðurinn í viðtali við Kotaku.

Það er spurning hver er að gabba hvern?

Upprunalega fréttin:

Games Developers Confrence 2011 fer að hefjast í San Fransisco, og munu þar leikjaframleiðendur koma saman og ræða leikjahönnum og tækni sem þeir eru að vinna af og ræða hvernig er hægt að þróa iðnaðinn þeirra áfram.

Call of Duty aðdáendur eiga von á glaðningi í á þeirri ráðstefnu ef að má marka teljara á vefsíðunni www.findmakarov.com sem er að telja niður í næstu viku eimmit þegar GDC ráðstefnan er í gangi og er talið að á Miðvikudags morgun munu koma út fréttir um Modern Warfare 3.

Þeir sem spiluðu Call of Duty: Modern Warfare 2 muna eftir því að Vladimir Makarov var maður sem skildi þig eftir í skítnum eftir hið umtalaða No Russian borð þar sem að Bandaríkjamönnum er kennt um hryllilegt fjöldamorð á flugvellinum og leiðir til stríðs á milli Rússa og þeirra.

Eftir allt þetta er vægt tekið til orða að leikmenn eru vægast fúlir við hann og vilja ekkert frekar en að smella kúlu á milli eyrnanna á honum, og það er ekki ólíklegt að þeir fái séns á því loksins.

Svo það er spurning um að taka frá Nóvember eins og venjulega til að gera sig kláran fyrir Modern Warfare 3 sem ætti að koma út yfir PC/Xbox360/PlayStation 3.

Við munum færa ykkur nánari fréttir af leiknum strax og við verðum með meira.

Kv.
GameTíví

Heimild: Kotaku

iPad 2 kynnt 2. Mars?

Eurogamer og fleiri hafa verið að birta fréttir um að boðskort hafa verið send út fyrir viðburð hjá Apple þann 2. Mars.

Orðrómurinn er búin að vera í nokkurn tíma að þá muni Apple svipta hulunni af iPad 2 spjaldtölvu þeirra sem hefur mikið verið rætt um síðustu vikurnar.

Fjörið á að hefjast Miðvikudaginn 2. Mars kl.18:00 að Íslenskum tíma.

Samkvæmt boðskortinu sem var sent út, sýnir það stóra dagatalslega númer 2 tölu með orðunum “komið og sjáið hvað árið 2011 mun verða þekkt fyrir”

Uppí hægra horninu er síðan búið að skafa aftur og virðist vera eins og iPad fyrir neðan það.

Viðburður Apple mun gerast í San Francisco borg í Yuerba Buena Center for the Arts sem er stutt frá þar sem að Games Developers Confrence verður haldin í næstu viku.

Þar munu helstu leikjaframleiðendur hittast og ræða hönnum leikja og ástand iðnaðarins, og yrði það gott útspil hjá Apple að kynna iPad 2 þá og undirstrika leikjamöguleika hennar.

Apple’s iPad 2 event takes place in San Francisco at the Yuerba Buena Center for the Arts – it’s pretty close to where the Game Developers Conference is being held next week.

Kv.
GameTíví

Ubisoft slakar á DRM kröfunum með AC:Brotherhood

DRM eða Digital Rights Management er hlutur sem er mikilvægur útgefendum til að berjast gegn tölvuleikja þjófnaði, en getur stundum verið hausverkur fyrir löglega notendur leikja.

Þegar að Assasins Creed 2 kom út á PC fyrir nokkru, skartaði hann DRM kerfið sem krafðist að þú værir ávallt nettengdur þegar að leikurinn væri spilaður, þetta var í mörgum Ubisoft leikjum á þessum tíma.. Þetta gat verið hausverkur, ef að þú t.d byggir ekki á stað með stabílt netsamband, eða hreinlega værir ekki með netið nema þegar þú komst í gott Wi-fi samband. Margir notendur bölvuðu Ubisoft og netþjónustu sinni þegar að netið hikstaði og leikurinn sparkaði þér út án þess að vista árangurinn.

Klárlega hefur Ubisoft lagt við hlustir því að þeir hafa sagt að nýjasti leikur þeirra í seríunni Assassin’s Creed: Brotherhood sem kemur í Mars á PC/Mac muni ekki lengur nota þetta kerfi, heldur halda í það sem er mjög algengt í dag og það er að þú þarft að vera nettengdur í byrjun þegar að leikurinn er keyrður uppí fyrsta sinn.

Augljóslega til að spila netspilun leiksins við aðra, segir það sig sjálft að þú þarft að vera með nettengingu, en kosturinn er að saga leiksins er algerlega netlaust fyrirbæri eftir uppsetninguna. Svo í versta falli ef að fólk er það ílla statt að vera ekki með netið, þá er hægt að betla greiða af vinum eða ömmu sinni og laumast á netið í ferðavél eða burðast með jálkinn til ömmu gönmlu og smella í sambandi í routerinn og bjóðast til að gera henni góðverk á heimilinu í leiðinni og vinna sig í áliti og ekki sakar heldur þegar kemur að næsta jólapakka!

Assassin’s Creed: Brotherhood kemur út þann 18. Mars í Evrópu og degi áður í Bandaríkjunum.

Við vorum hrifnir af leiknum þegar að hann kom í lok síðasta árs á PS3/Xbox 360 og gáfum honum 8.5 og hvetjum alla sem líkaði fyrri leikir að skella sér á þennan.

Kv.
GameTíví

Heimild: VG24/7

Ubisoft orðnir eitthvað skrítnir eða bara með góðan húmor?

Frakkar eru að eðlisfari pínu spes en yndilegir og eru kvikmyndir og önnur skemmtun frá þeim oft pínu öðruvísi en við eigum að venjast. Þegar við sáum þetta sýnishorn þá var horft á hvern annan og spurt hvort að þetta hlyti ekki að vera grín. Eftir nánari athugun kom í ljós að svo var ekki, og það líklega gerir þetta bara fyndnara en á rangan hátt.

Fljótlega mun koma út leikurinn We Dare fyrir Nintendo Wii og PlayStation 3 Move hreyfitæknina. Það er pínu forvitnilegt að sjá að Kinect hreyfitækni Microsoft fær ekki að njóta leiksins, það yrði forvitnilegt að sjá hvað myndi gerast með tækni þar sem að þú ert fjarstýringin bókstaflega, líklega 18+++ leikur og bannaður alls staðar.

Hvað leikurinn snýst um er eitthvað sem við hreinlega bara hikum að fara nánar útí. Við segjum bara að þetta er partíleikur sem okkur hefði grunað að ætti meira heima í fullorðinpartíi og fyrir aftan lokuð tjöld hreinlega.

A WIDE AND VARIED RANGE OF 40 FUN AND FLIRTATIOUS GAMES
• Select the mood of your party: Enchanting, Persuasive, Naughty, Adventurous and Brainy.
• Dance to your favourite tunes from film and radio.
• Challenge your mates to a flirty strip-tease.
• Multiplayer up to 4 players.
• A HILARIOUS LIGHT-HEARTED ATMOSPHERE WITH CLEVER CHARACTERS, COY MINI-GAMES AND INTERNATIONALLY POPULAR MUSIC HITS: SUCH AS SEX BOMB, (I’VE HAD THE) TIME OF MY LIFE AND MANY OTHERS!

Amazon í Bretlandi er með leikin til pöntunar og er áætlað að hann komi út þann 11. Mars samkvæmt þeim, það reyndar hljómar óttalega stutt í fyrir leik sem við vissum ekki að væri til fyrir en í gær.

Ubisoft hefur sagt að leikurinn er bara áætlaður fyrir Evrópu markað, spurning hvort að þeir telji að púritanarnir okkar í Bandaríkjunum myndu ekki fatta þetta eða hreinlega móðgast?

Ef að Óli og Sverrir GameTíví bræður myndu dæma þennan er spurning hvort að Ríkislögreglan og Kirkjan myndu segja eitthvað við þessu. En það er spurning hvort að þeir ættu ekki Edduna örugga á næsta ári?

Kv.
GameTíví

The Elder Scrolls V: Skyrim sýndur í fyrsta sinn

Bethesda Softworks hefur gefið út fyrsta sýnishornið úr einum stærsta RPG leik ársins The Elder Scrolls V: Skyrim sem er áætlaður að koma út þann 11.11.2011 á PC/PS3/Xbox 360.

Það er mikið búið að ræða um hvernig leikurinn mun vera og hvernig drekarnir munu spila í gegnum sögu leiksins. Í sýnishorninu fáum við að sjá aðalhetjuna hlaupa undan risastórum dreka áður en hann kemst ekki lengra og þarf að berjast gegn honum.

Við fáum að sjá hinn norðanlega heim Skyrim nánar og persónurnar og borginar sem leikmenn munu rekast á ásamt dýflissum, skrímslum og óvinum til að berjast við ásamt að sjá hetjuna beita göldrum.

Svo virðist sem að Todd Howard og félagar hjá Bethesda Softworks eru á réttri leið með leikinn og ættum við að sjá enn meira úr leiknum á E3 í sumar og þegar nær dregur útgáfunni, það verður pínu erfið bið þessir 9 mánuðir sem eftir eru.

Við getum ekki lýst hve okkur fannst þetta flott, og tónlist Jeremy Soule sem gerði músíkina fyrir TES III: Morrowind og TES IV: Oblivion hann hefur síðan einnig gert tónlist fyrir Dungeon Siege seríuna og Star Wars: Knights of the Old Republic ofl leiki.

Samkvæmt fréttum frá Bethesda er vídeóið úr Xbox 360 útgáfunni og ættu þá PS3 eigendur vita hvað þeir eiga von á, PC útgáfan ætti síðan að vera skrefinu fyrir ofan það líklega.

Við erum búnir að horfa á 720p útgáfuna nokkuð oft og fáum ekki nóg af hvað með ykkur?

Kv.
GameTíví

Bulletstorm DLC á leiðinni

Hinn vel sýrði og skemmtilegi skotleikur Bulletstorm er að koma út i þessari viku og EA og Epic Games notuðu tækifærið að gefa út upplýsingar um niðurhalsefni fyrir leikinn.

The Gun Sonata pakkinn inniheldur þrjú ný borð fyrir Anarchy leikjatýpuna og tvö fyrir Echo týpuna.

Það verða síðan tvennar viðbætur við Leash vopnið og kallast þau the Flamingo og the Pulp.

Gripurinn mun koma út í vor og kosta 800 Microsoft Punkta (£6.85) eða $9.99 / £7.99 á PlayStation 3. Ekkert var minnst á PC útgáfuna við þetta tækifæri.

Þar sem að leikurinn er gefin út af EA þarf að hafa í huga að hann notar Online Pass kerfið þeirra. Þeir sem kaupa leikinn nýjan geta nýtt kóða í bæklingi leiksins til að fá aðgang af sex bónus Echo borðum og Quicksilver leash. Ef að þú kaupir leikinn notaðan þarf að versla Bulletstorm Online Pass fyrir 800 MS Points eða £7.99.

Við erum frekar spenntir fyrir þessum leik og minnir hann okkur mikið á gamaldags skotleikina sem við spiluðum oft og er góð upphitun fyrir meistaran Duke Nukem í Maí.

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer