- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Platinum Games færa okkur Anarchy Reigns

Platinum Games sem gerðu leiki eins og Madworld á Wii og síðan Bayonetta og Vanquish á PS3 og Xbox 360 munu næst koma með handa okkur leikinn Anarchy Reigns á PS3/Xbox360 næsta haust.

Leiknum er lýst sem þriðju persónu fjölspilunar slagsmálaleik. Hann lofar fjölbreyttri spilun í gegnum netið og mun færa leikmönnum hinar ýmsu áskoranir þar á meðal Tag Team Battles og Battle Royale.

Atsushi Inaba sem hefur unnið að leikjum eins og Okami, Vanquish og Madworld leiðir framleiðslu leiksins á meðan Masaki Yamanaka sem vann að Marworld, God Hand og Resident Evil 4 leiðir gerð leiksins.

“There are plenty of ‘versus multiplayer games’ where gamers face each other down the barrel of a gun,” Yamanaka says of his directorial debut. “Anarchy Reigns is unique in that allows a large number of players to go fist to fist in online multiplayer battles. The challenge of creating a brawler like this is second to none, but neither is the gameplay. The thrill of victory and the agony of defeat are both amped far beyond what you would ever experience in a shooter. I’m making this the game that I have always wanted to play, and I won’t stop until that goal is met. I hope you all look forward to brawling online.”

Platinum Games er í stuði í augnablikinu og á síðasta ári færði okkar tvo meiriháttar leiki í formi Bayonetta og Vanquish og við hvetjum ykkur að skoða þá ef að þið hafið ekki gert það áður.

Eitt af því forvitnilega sem má sjá er að karakterinn Jack úr Nintendo Wii leiknum Madworld er persónu í þessum nýja leik, Platinum Games segir þó að þessir tveir heimar tengjast ekkert.

Við erum mjög forvitnir að sjá hvernig þessi mun koma út.

Kv.
GameTíví

0 Responses to “Platinum Games færa okkur Anarchy Reigns”


Comments are currently closed.