Evrópska Playstation bloggið hefur sagt að einmennings demó af Killzone 3 muni verða fáanlegt þann 16. Febrúar (9. Febrúar ef að þú er Playstation Plus áskrifandi).
Langar þér að hoppa inní hasarinn? Killzone 3 kemur ekki út fyrir en 23. Febrúar en við erum að gefa ykkur tækifæri á að hoppa inní “Icy Incursion” borðið sem gerist í miðri sögu leiksins.
Hægt verður að sækja demóið í gömlu góðu 2D og síðan í augna poppandi 3D! Eini munurinn á milli þeirra er að 2D útgáfan hefur co-op en 3D ekki. Bæði demóin munu styðja Playstation Move hreyfitæknina og mun það vera gott tækifæri á að prufa leikinn með þeirri skemmtilegu tækni og fá smá hugmynd um hvernig getur verið að spila allan leikin þannig.
Svo það er lítið annað eftir en að skella a sig þotupakkanum þann 16. Feb (nema að þú er með PS Plus og þá 8.Feb) og svífa um köldu heimskautasvæði plánetunnar Helghan.
Geimhryllingsleikurinn Dead Space 2 er alveg að fara að bresta á hjá okkur og er það með óttafengni væntingu sem við gerum okkur klára að spila framhaldið af einum að mest ógnvekjandi leikjum síðustu ára og þeim sem kom okkur næst í að fara útí búð og redda okkur fullorðinsbleyjum. Þetta er klárlega leikir sem gefa 18+ stimplinum á kassanum gildi og eru svo alls ekki fyrir nein unglömb!
Núna þurfum við að herða í okkur kjarkinn þar sem að framhaldið er að koma út. Leikurinn er byrjaður að fá dóma og hefur hann fengið hingað til;
Það verður bara að segjast að fyrstu dómanir fyrir leikinn eru bara mjög góðir og svo virðist sem að Viceral Games og EA hafi náð að fylgja upprunalega leiknum vel eftir með hepnuðu framhaldi. Sumir dómanir taka ekki fjölspilun leiksins með, þar sem að þegar þær voru skrifaðar voru ekki netþjónarnir komnir í loftið.
Hérna fyrir neðan er stutt myndbrot úr fjölspilun leiksins séð frá sjónarhóli þeirra sem spila sem skrímlin í leiknum.
Fyrir þá sem kaupa Dead Space 2: Limited Edition útgáfuna á Playstation 3 þá er glaðningur þar í formi gamla Nintendo Wii leiksins Dead Space: Extraction í HD búningi með Playstation Move hreyfistuðningi.
Að lokum hafa Viceral Games og Ea sagt að þeir eru að vinna að DLC fyrir leikinn sem kallast Dead Space 2: Severed og er sögudrifið og segir frá Gabe Weller einum af persónunum úr DS: Extraction sem þarf að koma sér og Lexine Mudock til bjargar á The Sprawl þar sem að aðal leikurinn gerist á og eru nokkrir kaflar sem gerast samhliða sögu Dead Space 2.
Ef að marka mátt orðróm frá CVG síðunni og vísar í Opinbera Playstation 3 blaðið að Metal Gear Solid 1-3 eigi von á smá HD andlitsliftingu á næstunni Playstation 3.
Þeir segjast hafa heyrt orðróma um að fyrstu þrír leikirnir séu í röðinni að fá uppfærslu á grafíkinni. Áður hafa leikir eins og God of War, Prince of Persia, Sly Collection og hin væntanlegu Tomb Raider og ICO/Shadow of Colossus söfnin fengið HD uppfærslurnar vanalega með fínum árangri.
Metal Gear Solid 4: Guns of the Patriots mun eiga sitt 3 ára afmæli á PS3 í sumar og það er en nægur tími í að Metal Gear Solid: Rising komi út og er búist við að hann komi ekki fyrr en 2012.
Pakkinn sem kom út fyrir nokkrum árum og innihélt bestu útgáfurnar af Metal Gear Solid 1-3 í einum pakka. Því miður kom hann aldrei út í Evrópu.
Þetta er forvitnilegur orðrómur sem við vonum innilega að sé réttur, Metal Gear Solid leikirnir frá Konami eru einir af bestu leikjunum sem völ er á. Stóra spurningin er auðvitað hvernig þeir myndu höndla MGS1 þar sem að hann kom út á Playstation 1 á sínum tíma.
Ný opin fjölspilunar Beta fyrir skotleikinn Killzone 3 mun hefjast þann 3. Febrúar og rúlla til þess 15. samkvæmt fréttum frá Sony.
Hægt verður að nálgast gripinn frá Playstation búðinni og mun verða í boði að spila þrjár mismunandi fjölspilunar tegundir á netinu og eina utan þess.
Guerilla Warfare styður 16 leikmenn í Team Deathmatch. Warzone snýr aftur úr Killzone 2 og mun styðja 24 leikmenn og bjóða uppá loftukerfi þar sem að 5 handhófskend verkefni eru spiluð. Operations styður 16 leikmenn og er ný viðbóti sem gengur út á verkefni með sterkum söguparti sem liggur í gegnum verkefnin. Botzone er að lokum sem er “Off-line” fjölspilun utan netsins sem er góður staður til að læra á leikinn og hvernig hann virkar á netinu, áður en er hætt sér útí kúlnahríðina.
Hérna fyrir ofan er nýtt vídeó frá borðinu Bilgarsk Boulevard sem ætti að koma ykkur í rétta gírinn fyrir þennan hörku leik.
Eitt borð verður í boði og er það Frozen Dam sem er stórt og speglað borð sem gerist í kringum ísilagða stíflu.
Killzone 3 leikurinn mun síðan koma út þann 25. Febrúar eingöngu á Playstation 3.
Við getum ekki beðið eftir að þessi leikur kemur út og erum hreinlega að telja niður dagan á dagatalinu okkar, hvað með ykkur?
Samkvæmt fréttum sem koma frá LA Times gengur Infinity Ward fyrirtæki ílla að vinna að Call of Duty: Modern Warfare 3 eftir hina mikklu brottför starfsmanna eftir bombuna með deilur stofnenda fyrirtækisins Jason West og Vince Zampella við móðurfyrirtækið Activision og brottrekstur þeirra eftir á. Þeir í dag hafa stofnað Respawn Games og eru að vinna með EA að nýju verkefni ásamt að vera í lagalegum deilum við Activision.
Activision fyrirtækið á að hafa kallað til Sledgehammmer Games og Raven Software til að hjálpa við að gera leikinn kláran fyrir næst komandi Nóvember þegar er búist við að leikurinn komi út í reglulega útgáfu ramma Call of Duty leikjanna síðustu árin.
Sledgehammer á víst að vinna með restina af Infinity Ward að sögu leiksins og reynsluboltarnir í Raven Software eiga að vera að vinna að fjölspilun leiksins með Infinity Ward. Leikurinn á að vera komin langt á leið þótt að hann hafi ekki opinberlega verið kynntur ennþá.
Áhrifin að kalla til Sledgehammer til að aðstoða við gerð Modern Warfare 3 mun hafa dómínó áhrif áfram og neyðir Activision að seinka vinnu við nýja Call of Duty leikinn sem það stúdíó átti að vera að vinna að og átti að vera ný viðbót í Call of Duty vörumerkið ásamt leikjum Infinity Ward og Treyarch sem gerðu eimmit síðast hinn gríðalega vinsæla Call of Duty: Black Ops.
Það er klárt að það er gríðalega mikilvægt fyrir Activision og geta gefið út leik í Nóvember sem styrkir fjárhagsstöðu þeirra, Call of Duty serían er ætlað að vera jafnvægið á móti World of WarCraft og öðrum leikjum Blizzard sem eru hluti af samsteypunni sem er Activision-Blizzard og skila gríðalegum tekjum inní kassan.
Við ættum vonandi að fá að vita meira á næstu vikum og mánuðum og er mjög líklegt að leikurinn verði síðan kyntur á E3 í sumar.
Kotaku birti í dag á vef þeirra mynd af því sem gæti reynst vera hin marg umrædda PSP2 sem á að kynna af Sony eftir 2 daga þann 27. Janúar í Japan.
Það er erfitt 100% að vita hvort að þetta sé enn eitt dæmið up Photoshop sköpun einhvers á netinu eða lekin mynd af lokaútgáfunni. Mynd þessi dúkkaði upp á stórri Japanskri spjallsíðu sem kallast 2ch.
Myndin sýnir vélin sem á að vera PSP2 sem heldur PSPgo stílnum og til hliðar er hægt að sjá 32GB SD minniskort ásamt PSP2 memory stick minniskorti og undir því er stylus penni ekki ólíkur þem sem er notaður á Nintendo Ds lófavélunum.
Það eru tveir analog pinnar á vélinni, eitthvað sem mjög margir kvörtuðu mikið undan að vantaði á upprunalegu PSP vélina.
Eins og Kotaku segir í grein sinni þá er samt frekar líklegt að þetta sé ekki sönn mynd og að vanalega eru myndir frá Sony í gríðalega hárri upplausn þar sem er hægt að skoða hlutina í mikilli nákvæmni. Hvort að þetta er afrit af einhverju dreifibréfi sem yrði dreift þann 27. Janúar á kynningunni á vélinni er einn hlutur.
Óháð sannleiksgildi þessarar myndar, þá er mikil spenna eftir kynningu Sony á PSP2 vélinni og hvað hún mun færa okkur í lófavélum og hvert verður þeirra svar við Nintendo 3DS vélinni sem kemur núna fljótlega á markaðinn. Einnig þarf Sony að mörgu leyti að bæta upp fyrir mörg mistök sem þeir gerðu með PSP sem auðveldaði Nintendo að fara fram úr þeim, síðan er eitthvað sem bæði Ninendo og Sony þurfa að eiga við og það er aukning snjallsíma sem spila tölvuleiki eins og iPhone og Android símanir sem eru mjög vinsælir um þessar mundir.
Það styttist í að við fáum nákvæmari fréttir af þessu, og ef að þessi mynd reynist allgert bull munum við uppfæra fréttina nánar.
Annars er bara að bíða í 2 daga í viðbót eftir kynningu Sony og munum við að sjálfsögðu vera með heitar fréttir frá þeirri kynningu.
Uppfært: Við erum komnir með nýja trailerinn og má finna hann hérna fyrir neðan.
Um helgina lak út trailer fyrir leikinn L.A. Noire sem gaf til kynna að leikurinn myndi koma út þann 17. Maí í Bandaríkjunum. Hann var síðan fljótur að hverfa um allt netið eftir á.
Rockstar hefur sent frá sér fréttatilkynningu í dag sem staðfestir að leikurinn mun koma út þann 17. Maí eins og hafði verið sagt og síðan 20. Maí í Evrópu.
Sam Houser stofnandi Rockstar Games segir að “L.A. Noire fari nýjar leiðir fyrir fyrirtækið, hin ákafa blanda af hasar og rannsóknarlögreglu vinnan brýtur mótin á hefðum og skapar einstakan og heillandi thriller.”
L.A. Noire var kynntur fyrst árið 2005 og er glæpa thriller saga sem gerist á fjórða áratug síðustu aldar og segir sögu lögreglumanns sem vinnur sig upp í lögreglunni í Los Angeles.
Eitt af því sem gerir leikinn svona spennandi fyrir utan söguna og grafíkina er MotionScan tækni Rockstar og Team Bondi. Með henni eru notaðar 32 Háskerpu myndavélar sem ná andliti leikarana í 3D og færa leik hans og hennar í fullri nákvæmni inní leikinn, og gera leikmönnum fært í fyrsta sinn að lesa af vörum þeirra og sjá hvort að þau eru að reyna að ljúga af þér eða ekki.
Leikurinn verður fáanlegur á Xbox 360 og Playstation 3.
Skuggalega flottur leikur þarna á ferð að okkar mati.
Þann 19. janúar síðastliðin gerðu Nintendo sér lítið fyrir og héldu tvo blaðamannafundi, bæði í Amsterdam og New York í tilefni komu Nintendo 3DS sem er áætluð núna í mars á þessu ári. Margar spurningar höfðu kviknað upp í hug leikjaáhugamanna, svo sem hvenær kemur vélin, hvað kostar hún og hvaða leikir verða í boði á útgáfudegi vélarinnar? Nintendo tóku sig til og svöruðu öllum þeim spurningum varðandi hana og má finna svörin hér fyrir neðan.
Eins og áður hefur komið fram að þá verða Japanar þeir fyrstu sem fá að gæða á 3DS vélinni á undan öllum öðrum Jarðarbúum þann 26. febrúar og verða allt að 10 titlar í boði á útgáfudeginum. Fjórum vikum seinna, nánar tiltekið 25. mars, verður vélin svo gefinn út hér í Evrópu. Vert er að taka það fram að 3DS verður svæðislæst, þannig að það er ekki hægt að verða sér um leiki í Bandaríkjunum eða Japan ef vélin er keypt hér á landi og öfugt.
Það sem vakti hvað mest athygli á sýningunni ku vera verðið sem Nintendo setja á hana. Áætlaður kostnaður á vélinni í Evrópu eru rúmar 219 pund eða 249 evrur sem gera rúmlega 40 þúsund íslenskar krónur, reikna má að vélin kosti allt að 50 þúsund eða jafnvel meira þegar hún hefur fest fætur hér á landi. Mörgum þykir vélin ansi dýr til að byrja með og svo á eftir að bæta við leikjum á verðið. Kostnaður á leikjum verða í kringum 30-39 pund, í kringum 7.000-8.000 ísl kr. sem er þó nokkuð dýrt fyrir leiki á lófatölvu.
The Legend of Zelda: Ocarina of time 3D verður fáanlegur síðar á árinu, nú fá menn loksins tækifæri að upplifa einn af betri leikjum allra tíma í nýrri vídd.
Nintendo hafa þó verið á því máli að 3DS sé á ásættanlegu verði miðað við hvað vélin hefur upp á að bjóða. Eins og mörgum er kunnugt að þá hefur vélin tvo skjái, einn snertiskjá og svo annan stærri að ofan sem sér um að færa þig í heim þrívíddarinnar. Þrívíddarskjárinn er rúmlega 10% stærri miðað við efri skjá DSi vélanna og er hún mikið öflugari en fyrrum DS vélar. Einnig inniheldur vélin þrjár myndavélar, eina að framan sem þú getur notað til að taka ýmsar andlitsmyndir og svo tvær að aftan verðu sem gerir þér kleift að smella 3D myndum.
Nintendo 3DS inniheldur alla þá hnappa sem áður hafa komið fram á fyrrum DS vélum og líka nýjar viðbætur á borð við stýripinna sem veitir þér mun nákvæmari hreyfingar á persónu þinni. Á hlið vélarinnar er svo sleði sem veitir þér aðgang að dýpt þrívíddarinnar. Þar getur þú stjórnað dýptinni á þrívíddinni, hvað þér þykir þæginlegast og einnig slökt algjörlega á henni ef þörf er á því. Að innanverðu er svo hreyfiskinjun sem gæti komið sér vel að gagni í ýmsum leikjum, þ.e.a.s. ef lekir bjóða upp á þann kost við spilun.
Gakktu með 3DS á þér og sjáðu hvað þú hefur gengið lengi, um leið og þú safnar inn peningum sem þú getur nýtt þér í framtíðinni sem Nintendo eiga enn eftir að kynna.
Allt þetta hafa Nintendo menn sett saman til þess að tryggja gæði vélarinnar og fjölbreytta spilun. Svo ekki sem nefnt hafa þeir gert fullt af samningum við hin ýmis fyrirtæki og veitt henni þráðlaust net sem tryggir að vélin geti sífellt tengst netinu hvar sem er, gæti þó verið vandamál hér á landi. Annar ókostur í garð notenda er sá að það tekur allt að þrjá og hálfan tíma að fullhlaða rafhlöðu vélarinnar og endist það ekki í nema 4-5 klukkustundir ef menn spila þrívíddina grimmt. Sé slökkt á henni gætu notendur náð allt að 8 klukkustundum á fullhlaðri rafhlöðu, neytendur munu væntanlega sækjast eftir því að spila í þrívídd þar sem aðal kostur 3DS byggir á þeim grunni.
Líkt og með flest allar nýjar leikjavélar að þá verður leikjaúrvalið í skornum skammti fyrstu vikurnar. Eins og fram kom hér fyrir ofan að þá verða 10 leikir í boði á útgáfudag vélarinn í Japan, 26. febrúar. Nintendo hafa þó lofað hátt upp í 25 leiki þegar vélin verður loksins gefinn út í Evrópu 25. mars. Þegar líður að E3 sýningunni í sumar verða leikirnir orðnir fleiri en 35 talsins svo þú ættir ekki að verða í neinum erfiðleikum að velja á milli leikja næstu mánuðina, þó svo að fyrstu vikurnar geta reynst erfiðar. Með vélinni fylgir svo 2GB SD kort þar sem að þú getur vistað leikina þína og líka tónlist til þess að hlusta á og önnur gögn sem keypt eru í gegnum vefverslun vélarinnar.
Hér má sjá fullt af glæsilegum titlum sem eru væntanlegir á Nintendo 3DS á þessu ári.
Mii persónurnar munu snúa aftur til leiks á ný í Nintendo 3DS og getur hver og einn gert sína Mii persónu, bæði með verkfærum á Mii rásinni eða þá notfært sér myndavélina að framan verðu og hún sér svo um að setja andlit þitt á Mii persónu þína. Sér hver 3DS mun skarta tólf stafa vinakóða sem menn þurfa að virkja í gegnum netið aðeins einu sinni og til þess að bæta við vinum á vélina. Þessir möguleikar gefa þér kleift að spila með vinum í gegnum þráðlaust net tölvunnar þar sem þið getið tekist á í hinum ýmsum leikjum sem munu bjóða upp á það.
Gaman er að segja frá því að Nintendo hönnuðu sérstakan möguleika fyrir 3DS sem gerir vélunum kleift að skynja hvort aðra. Ef tveir aðilar kynnu að ganga fram hjá hvort öðrum með Nintendo 3DS við hliðin á sér, senda þær boð á milli sín sem inniheldur upplýsingar um hinn aðilan, s.s. hvaða leiki er verið að spila, hvenær þið mættust og fleira. Ef þú vilt ekki deila slíkum upplýsingum á milli aðra 3DS notenda að þá getur þú auðveldlega slökkt á þessum möguleika í stillingum vélarinnar.
Vertu ekkert að eyða alltof miklum tíma í að búa til Mii persónuna þína, láttu bara myndavélina að framan sjá um verkið.
Það verður spennandi að sjá hvernig Nintendo mönnum tekst að útfæra þessa spennandi græju og fá að sjá viðbrögð almennings þegar vélin verður loksins gefinn út. Við munum að sjálfsögðu færa ykkur fleiri fréttir af vélinni í nánar framtíð og vonandi dæma nokkra leiki hér á GameTíví.is.
Electronic Arts og Crytek hafa staðfest að þann 25. Janúar muni koma fjölspilunar prufuútgáfa af skotleiknum Crysis 2 eingöngu fyrir Xbox 360 Gull áskrifendur. Þetta bendir til að eins og er er ekkert PS3/PC demó af leiknum á leiðinni.
Það verður eitt borð í boði og kallast það Skyline og verður hægt að spila tvær mismunandi leikjatýpur; Team Instant Action og Crash Site. Team Instant Action er klassísk Deathmatch týpa og Crash Site snýst um að halda vissum punktum á kortinu í liðakeppni.
Leikurinn sjálfur mun koma út í Mars á PC/PS3/Xbox360.
Þá er komið aftur að því að við liggjum í rólegheitum á Sunnudeginum og förum í gegnum spennandi trailera af nýjum og væntanlegum leikjum á næstunni.
Sá fyrsti sem við tökum fyrir Red Faction: Armageddon er fjórði leikurinn í seríunni og gerist nokkrum kynslóðum eftir að RF: Guerilla lýkur. Slæmar aðstæður á Mars og ný ógn neyða fólkið neðanjarðar þar sem að en verra tekur við. Þeir hjá Volition lofa meiri eyðileggingu en áður og spennandi og dökkri sögu.
Brink netskotleikur frá fyrirtækinu Splash Damage sem gerði síðast Quake: Enemy Territory og áður Wolfenstein: Enemy Territory sem spratt uppúr vinnu þeirra að fjölspilunni á Return To Castle Wolfenstein leiknum sjálfum. Brink er glænýr leikur og mun koma út á PC/PS3/Xbox360 síðar á árinu.
EA og Bioware hafa tilkynnt að í öllum eintökum af Dead Space 2 muni fylgja kóði sem opnar fyrir spes Dead Space þemaða brynju til að nota í Dragon Age 2 RPG leiknum þegar að hann kemur út í Mars á þessu ári.
Hérna er myndband úr Yakuza 4 leiknum á Playstation 3. Leikurinn kom út í Japan í Mars 2010 og kemur í Bandaríkjunum í Mars á þessu ári, en hefur ekki en fengið fastan útgáfudag í Evrópu.
Breach er fyrstu persónu skotleikur sem gengur út á samvinnu fólk í liðum á netinu. Leikurinn var kynntur í fyrra af Atomic Games og mun koma út á PC/Xbox360 í vor.
Að lokum er það kynningar myndband á MMO-RPG leiknum Rift. Leikurinn á að koma út núna í Mars og er í Betu eins og er og er búin að vera að fá góða dóma.
Þetta var það helsta sem okkur datt í hug að benda ykkur á, við vonum að ykkur hafi líkað og þið hafið rekist á einhverja spennandi leiki og við munum reyna að halda þessu áfram næstu Sunnudaga og færa ykkur það heitasta í trailer formi.
Nýleg comment