Blizzard hönnuðar hins gríðalega visæla MMO leiks World of WarCraft hafa ákveðið að taka harðar á þeim sem eru að selja gull fyrir leikinn á svarta markaðnum, með því að sannfæra PayPal þjónustuna að loka fyrir aðganga þeirra sem nota þá til að selja gull fyrir leikinn.
Blizzard sakar þá sem eru að selja sýndar gullið að þeir eru að brjóta á höfundarrétti þeirra með að selja þessar sýndarvörur úr leiknum. PayPal tók þessu vel og sendi út bréf til þeirra sem Blizzard nefndi í kvörtun sinni. Þeir sem eru sakaðir um þetta höfðu til 21. Janúar að mótmæla þessu annars yrðu þeir að hætta sölunni eða fá á sig lokanir á aðgöngum þeirra á PayPal.
Hérna er bréfið sem var sent út frá WoW Insider vefsíðunni:
You were reported to PayPal as an Intellectual Properties violation by Blizzard Entertainment Inc. for the sale of World of Warcraft Merchandise.
If you feel your sales do not infringe upon the intellectual property rights of the Reporting Party, please complete the attached Objection to Infringement Report by January 21, 2011.
The completed form should be faxed to the attention of the Acceptable Use Policy Department at [number removed] or emailed to [email removed].
Should you choose not to object to the report, you will be required to remove all World of Warcraft Merchandise from the website [url removed] in order to comply with the Acceptable Use Policy.
Það eru orðrómar um að allt að $500Miljón Dollarar af peningum útaf sýndar gullinu skili sér til Kína þar sem að það er orðin stór iðnaður fyrirtækja að gera útá fátækt fólk að spila leikinn og safna gulli, levela karaktera fyrir fólk og seljaenda fullbúna karakter með flottu dóti til fólk. Ein af ástæðunum sem Blizzard fer þessa leið eru útaf kostnaði sem myndi koma útaf lögsóknum fyrir rétti, að auki er stærsti hluti þessara söluaðila utan við Bandaríkin.
Leikjaárið 2011 sem lofar svo góðu er hægt að byrja að taka á sig mynd og útgáfudagar fyrir hina ýmsu tölvuleiki eru byrjaðir að fá fastar dagsetningar.
Hinn skrítni og drungalegi Darkspore hefur fengið útgáfudag frá EA. Leikurinn er framhald af leiknum Spore sem kom út fyrir nokkrum árum. Nýji leikurinn er blanda af hasarleik og Rpg. Leikurinn á að skila sér í búðir þann 29. Mars.
Útgáfuhlið Bethesda er búið að staðfesta nokkra útgáfudaga af leikjum frá þeim. Net-skotleikurinn Brink mun koma út þann 20. Maí í Evrópu og þremur dögum áður í Bandaríkjunum. Hunted: The Demon’s Forge sem er þruðju persónu ævintýra og hasarleikur sem kemur út þann 3. Júní. Skotleikurinn RAGE frá id Software kemur þann 16. September og er beðið eftir honum með mikilli eftirvæntingu. Að lokum staðfesti Bethesda aftur útgáfudag leiksins The Elder Scrolls V: Skyrim sem verður þann 11.11.2011.
Sony er búin að staðfesta að net-skotleikurinn SOCOM 4 mun koma út þann 19. Apríl. Leikurinn er hannaður af Zipper Interactive sem gerðu upprunalegu SOCOM leikina og núna síðast risa skotleikinn MAG á Playstation 3.
SEGA er búin að staðfesta útgáfudaginn fyrir The Conduit 2 á Nintendo Wii. Leikurinn kemur þann 19. Apríl í Bandaríkjunum og þann 22. Apríl og mun koma með 14 borðum fyrir netspilun leiksins.
Deathmatch: First player to the kill limit in the time allowed wins!
ASE Ball: Longest time holding the ASE wins!
Bounty Hunter: Kill your assigned target for points or kill those hunting you for fun. But beware; killing someone who doesn’t fill those roles will cost you points!
Free for All CTF: Get to the flag and then carry it back to a random goal location. First to the scoring limit wins!
Team Deathmatch: First team to the kill limit in the time allowed wins!
Shared Stock: Teammates share a pool of lives while trying to get the highest kill count possible.
Capture the Flag: Each team tries to capture the ASE (flag) of the other. First team to the capture limit in the time allowed wins!
Killing Override: First team to the kill or capture limit wins!
Single Flag CTF: Teams fight over a single centrally-located ASE (flag). First team to the capture limit wins!
VIP: Fight to kill the randomly selected VIP on the opposing team. First team to the point limit wins!
ASE Basketball: Each team tries to capture a centrally-located ASE and then carry it into the enemy base. Toss or carry the ASE through the goal to score. First team to the point limit wins!
Balloon Battle: Lose balloons with every death. Gain balloons with kills. With no balloon, become a mini bomb! Last player alive wins!
Annexation: Teams fight for control over capture points. These totems award points over time. First team to the point limit wins!
Power Surge: Teams must defend their own generator while destroying the enemy’s when its shield is down. First team to destroy the generator or the team with the more intact generator wins!
Það komin Sunnudagur og þið ættuð að vera farin að fatta hvað þýðir hjá okkur hérna á GameTíví og það er fullur fréttapakki af heitum sýnishornum úr tölvuleikjum, tekið beint af netinu til ykkar yndisauka.
Við byrjum þetta skiptið af endurræsingunni á Mortal Kombat seríunni, í þessu sýnishorni er farið í gegnum nýja X-Ray kerfið þeirra og við getum ekki annað en sagt við fundum oft gríðalega til að horfa á bein brotna og tennur svífa um loftið þarna. Fyrir vikið urðum við skyndilega enn spenntari fyrir þessum leik sem kemur út á PS3 og Xbox 360 þann 18. Apríl.
Phosphor Games er stúdíó sem hafði verið að vinna af forvitnilegum leik sem hét Hero áður en að Midway fyrirtækið lokaði. Þeir héldu áfram að vinna að leiknum og að þróa hugmyndina og eru núna að leita af útgefanda. Leikurinn hefur fengið nýtt nafn og heitir núna Awakened.
Ofursmellurinn Call of Duty: Black Ops fær fyrsta DLC pakkanum sem heitir First Strike og kemur út á Xbox 360 þann 1. Febrúar og eftir nokkrar vikur á PS3/PC. Innifalið verða fjögur borð sem kallast; Kowloon, Discovery, Berlin Wall and Stadium, ásamt Zombie borðinu Ascension.
Beyond Black Mesa er stuttmynd í Half-Life heiminum sem segir frá Adrian Shepard og öðrum andspyrnumönnum í baráttu við Combine herinn og þurfa að koma skilaboðum áleiðs um væntanlega innrás.
Við sögðum ykkur frá nýjasta leik Platinum Games á föstudaginn og hér hann Anarchy Reigns og hérna er fyrsta sýnirhornið fyrir leikinn sem reyndar sýnir lítið sem ekkert en er meira til að gefa tilfinninguna á leiknum.
Við endum þetta á Japönskum leik sem kemur út þar um miðjan Febrúar og heitir Catherine sem við eigum pínu í vanda að útskýra nákvæmlega. Hann er hannaður af sömu og gerður Persona leikina. Sjón er sögu ríkari í þessu tilviki.
Svo virðist sem að biðin eftir MMO leik Bioware fyrirtækisins Star Wars: The Old Republic muni verða aðeins lengri og erfiðari ef að má marka fréttir frá MCV vefsíðuni.
Samkvæmt heimildarmönnum þeirra þá er rætt um að leikurinn hafi færst frá vorinu sem hafði upprunalega gert ráð fyrir og yfir í September næsta í staðinn.
Leikurinn er búin að vera nokkur ár í vinnslu hjá Bioware og er eitt af metnaðarfyllstu verkefnum þeirra og EA útgefanda þeirra frá upphafi og hefur lengi verið rætt um að Star Wars: The Old Republic gæti orðið fyrsti leikurinn sem á séns í að skáka ofurvinsældum World of WarCraft frá Blizzard sem er lang stærsti MMO leikur allra tíma.
Það á eftir að koma í ljós hvort að þessi frétt er 100% rétt, en ef að svo er þá er líklegt að Bioware vilji ekki skila af sér leiknum fyrr en að hann er pottþéttur. Síðasta vetur gaf Japanska fyrirtækið Square-Enix út leikinn Final Fantasty XIV sem reyndist stórt klúður og reyndist leikurinn vera langt frá að vera tilbúin og koma ílla út fyrir þá og eru þeir búnir að vera talsverðan tíma að laga leikinn til á ný og er ekki ólíklegt að Bioware hafi séð þetta og ekki viljað sýna neinn veiklega í þeirra leik.
Sony Online Entertainment er í góðu skapinu þessa daga, nýjasti netleikur þeirra DC. Universe Online er farin í loftið á PC og Playstation 3 og er búin að fara mjög vel af stað í sölu og fá fína dóma. SOE hefur tilkynnt að DCU er þeirra hraðasti leikur í sölu frá upphafi.
John Smedley forseti SOE sagði á Twitter aðgangi sínum að þeir væru vinna að koma fleiri eintökum af leiknum í umferð, eftir að hafa lent í því að leikurinn fór út hraðar er þeir gátu komið honum á hillur búða.
Leikurinn er síðan búin að ganga vel í stafrænni sölu og er var #1 á Steam í síðustu viku. Það sem er síðan athyglisvert er að PS3 útgáfan er búin að vera að seljast meira en á PC og sýnir þetta að MMO leikir geta gengið upp.
Leikurinn fékk nýjan plástur á PC/PS3 og færir það leikinn uppí 1.03. SOE Spjallborðið er með nákvæmar upplýsingar um hvað er nýtt í nýjasta plástrinum af leiknum.
Platinum Games sem gerðu leiki eins og Madworld á Wii og síðan Bayonetta og Vanquish á PS3 og Xbox 360 munu næst koma með handa okkur leikinn Anarchy Reigns á PS3/Xbox360 næsta haust.
Leiknum er lýst sem þriðju persónu fjölspilunar slagsmálaleik. Hann lofar fjölbreyttri spilun í gegnum netið og mun færa leikmönnum hinar ýmsu áskoranir þar á meðal Tag Team Battles og Battle Royale.
Atsushi Inaba sem hefur unnið að leikjum eins og Okami, Vanquish og Madworld leiðir framleiðslu leiksins á meðan Masaki Yamanaka sem vann að Marworld, God Hand og Resident Evil 4 leiðir gerð leiksins.
“There are plenty of ‘versus multiplayer games’ where gamers face each other down the barrel of a gun,” Yamanaka says of his directorial debut. “Anarchy Reigns is unique in that allows a large number of players to go fist to fist in online multiplayer battles. The challenge of creating a brawler like this is second to none, but neither is the gameplay. The thrill of victory and the agony of defeat are both amped far beyond what you would ever experience in a shooter. I’m making this the game that I have always wanted to play, and I won’t stop until that goal is met. I hope you all look forward to brawling online.”
Platinum Games er í stuði í augnablikinu og á síðasta ári færði okkar tvo meiriháttar leiki í formi Bayonetta og Vanquish og við hvetjum ykkur að skoða þá ef að þið hafið ekki gert það áður.
Eitt af því forvitnilega sem má sjá er að karakterinn Jack úr Nintendo Wii leiknum Madworld er persónu í þessum nýja leik, Platinum Games segir þó að þessir tveir heimar tengjast ekkert.
Við erum mjög forvitnir að sjá hvernig þessi mun koma út.
Uppfært: Við bættum við nýjum upplýsingum um leikinn, 3D stuðning á PC og hvernig netþjónar leiksins munu virka ofl.
THQ fyrirtækið er búin að gefa út vélbúnaðarkröfurnar á PC fyrir Homefront skotleikinn frá KAOS Studios. Leikurinn gerist í miðri innrás N-Kóreu á Bandaríkin.
Einnig var rætt um mögulega lengd leiksins í spilun, KAOS ræðir um að það er ekki ólíklegt að það muni taka marga um átta eða meiri tíma að klára leikinn. “Sumir fara í gegnum leikinn á átta tímum og aðrir á lengri tíma. Það er breytilegt erfiðleikastig sem fer eftir hæfileikum þess sem spilar leikinn,” sagði Zach Wilson.”
Fyrir leikjatölvu spilara hefur THQ og Microsoft staðfest að Xbox 360 eigendur muni fá allt DLC (niðurhalsefni) fyrir leikin fyrst á undan PC/PS3. Einnig munu 360 eigendur fá frítt borð á útgáfudeginum eingöngu og heitir það Suburb og styður uppí 24 leikmenn í spilun á netinu.
Spilun:
-Homefront will support 3D on PC through Nvidia 3D vision support.
-On PC you’ll be able to control all vehicles from the 1st and 3rd person cockpit view.
-Helicopters will have three additional control options: (Ace allows for the best maneuverability but takes the most practice to master. Veteran has balanced difficulty and maneuverability. Rookie has a pick-up-and-play level of difficulty with least maneuverable)
-There will be low-level environmental destruction.
-The game will include a practice mode.
-There will be extra vehicle abilities for co-pilots such as a recon function in the scout helicopter.
-Squad Management System for PC with Squad based voice over IP will be available.
-PC will have clan support.
-A multiplayer match recording option will be provided.
-A Dedicated Server Browser Executable to allow you to set your own private Homefront servers within 2 weeks of launch
Netþjónn:
-Homefront will support 32 player servers on PC.
-Valve Anti-Cheat will be there to counter hackers.
-The game will have support for dedicated servers.
-The game will have lan support.
-No mod tools for now.
-Server admin tools will be there.
-No linux support.
Lágmarks kröfur Homefront
Windows XP, Windows Vista or Windows 7
Intel Pentium Core 2 Duo 2.4 GHz or AMD Athlon X2 2.8GHz
2 GB RAM
Shader Model 3.0 graphics card with 256MB of memory
PSN búðin hefur fengið vikulega uppfærslu skammtin sinn og er margt skemmtilegt í boði þessa vikuna. Dead Space 2 er að skila sér í verslannir og er með nýtt DLC strax, reyndar bara eitthvað til að auðvelda fólki að spila leikinn, en ekki endilega nauðsynlegt. En það sem er merkilegra er Dead Space: Extraction (gamli Wii leikurinn í HD búningi með PS Move stuðningi) fyrir þá sem kaupa sér ekki Limited útgáfuna leiknum á PS3 þar sem að leikurinn fylgir með frítt.
Hinn frábæri og ýkti Bulletstorm er komin með demó sem við mælum með að fólk kíki á nánar.
Að venju er Rock Band 3 með uppfærlu og núna er það hann David Bowie sem færir okkar flotta tóna til að spila og syngja eftir.
Það er síðan áfram halda af mörgum góðum tilboðum af DLC fyrir leiki frá Capcom, Konami, Rockstar, 2k og THQ.
PlayStation Store
(Offer prices available until the 2nd February)
Warhawk Complete Bundle (£15.99/€19.99)
Crash Commando (was – £6.29/€7.99 now – £3.19/€3.99)
Split/Second – High Octane Supercar Pack (was – £1.59/€1.99 now – £0.79/€0.99)
Assassin’s Creed (was – £23.99/€29.99 now – £15.99/€19.99)
Half-Minute Hero (PSP) (was – £11.99/€14.99 now – £7.99/€9.99)
Harvest Moon: Innocent Life (PSP) (was – £9.99/€12.99 now – £6.29/€7.99)
Harvest Moon: Hero of Leaf Valley (PSP) (was – £19.99/€24.99 now – £10.99/€13.99)
Valhalla Knights (PSP) (was – £9.99/€12.99 now – £6.29/€7.99)
Valhalla Knights 2 (PSP) (was – £11.99/€14.99 now – £7.99/€9.99)
Það er en um tveir og hálfur mánuður í Portal 2 komi út og við erum byrjaðir að fá nánari upplýsingar um leikinn og hvað fólk á í vændum þegar hann kemur út á PC/PS3/Xbox 360 þann 12. Apríl.
Eitt af því forvitnilegasta sem framleiðandinn Valve sagði í viðtal við Videogamer er að leikurinn hefur tvenna enda, einn fyrir einmenningspilunina og annar fyrir Co-Op spilunina. Chet Falliszek aðalpenni leiksins lofaði að “báðir endar leiksins munu færa eitthvað sérstak fyrir leikmenn, þess vegna erum við með tvo slíka.” Hann bætti við að það yrði fín verðlaun í boði fyrir þá sem klára báða.
“Það flotta er að við höfum séð til þess að leikurinn verði aldrei of erfiður. Það er pínu flóknara, en aldrei svo erfitt að þú getur ekki leyst það. Þú munnt komast á endirnum. Við viljum ekki hugsa til þess að fólk muni bara sjá endirinn á leiknum á YouTube.” Fallizek nefndi í viðtalinu að í kringum 5. Miljón manns hafa horft á endirinn af Portal 1 á YouTube.
Jonathan Coulton sem samdi hið frábæra lag Still Alive úr fyrsta Portal, hefur staðfest að hann hafi samið nýtt lag fyrir Portal 2 en vildi ekki tjá sig um hvar það myndi birtast í honum.
Í öðru viðtali við NowGamer, sagði Falliszek að allar útgáfurnar af leiknum myndu fá efni sem yrði búið til að notendum leiksins, jafnvel Xbox 360 sem hingað til hefur verið talsvert lokað fyrir slíkt eins og mátti sjá með The Orange Box pakkan frá 2007. “Moddunar tólin verða að vera á PC hliðinni vegna þarfar við Windows hugbúnaðinn,” sagði hann.
“Efnið sem verður búið til er óháð vélbúnaði og mun verða fáanlegt alls staðar. Það mun fara eftir á hvaða vél þú spilar leikinn hvernig efnið verður dreift til þín.
Þá er loksins komið af þeim tímapunkti sem við erum búin að bíða eftir síðustu vikurnar, Sony hefur loksins kynnt arftaka PSP vélarinnar. Vélin gengur undir vinnuheitinu NGP og er planað að hún komi út næsta vetur.
Vélin mun skarta háskerpu OLED snertiskjá sem er stærri en skjárinn á gömlu PSP. Hægt er að snúa vélinni á hina ýmsu vegu og skynjar hún það ekki ólíkt Sixaxis fjarstýringunni á PS3, síðan er hraðamælir og kompás. Eftir mikið af kvörtunum með gömlu PSP hlustaði Sony loks og kom með tvenna analog pinna á vélina mörgum til ánægju og það besta er að þeir eru ekki hnúðar eins og á eldri PSP heldur upphleyptir í líkingu við á Dualshock 3 pinnanum.
Það verða síðar myndavélar að framan og aftan á vélinni, ef að er skoðuð myndin að ofan má klárlega sjá Trophies sem er hluti af Activity Log og vonum við að það tákni að kerfið muni virka saman með því og er á PS3 verði á nýju vélinni. Á baki vélarinnar er Multi-touch snertiflötur sem var sýndur í nokkrum leikjum og er hann á ofan á fullkomnari snertiskjár að framan sem er einnig Multi-touch(sem þýðir að hægt er að nota nokkra putta í einu eins og t.d á iPhone/iPad).
Sony hefur sagt að nýja PSP vélin sé sambærileg í krafti og Playstation 3. Vélin verður með stuðning fyrir netið í gegnum WiFi og 3G þráðlaust símakerfið og mun innihalda nýja tegund af gagnageymslu fyrir leiki og svo virðist sem að Sony hafi loksins ákveðið að taka UMD og grafa það aftan í garðinum loksins.
Sony útskýrir þetta á þann hátt “NGP notast við nýja tegund af flash minniskorti, sem notast um NGP hugbúnað. Með að notast við þessa nýju byltingakenndu tækni sem getur geymt hugbúnaðinn ásamt aukaefni og eða árangur leikmannsins beint á kortinu. Með að notast við þetta mun Sony geta boðið uppá kort síðar með stærri geymslugetu, sem leyfir framleiðendum að geyma meiri gögn og færa dýpri og innihaldsríkari leiki.”
Sony hefur ekki gefuð út fast nafn á gripinn og kallar hann Next Generation Portable eða NGP. Hann mun koma út næsta vetur í Japan og sagði Sony ekkert um útgáfuna í Evrópu og Bandaríkjunum. Ekki er ólíklegt en að þeir festi það niður á E3 í sumar. Ekkert verð hefur verið rætt á gripinn.
Spekkarnir á NGP
CPU: ARM® Cortex™-A9 core (4 core)
GPU: SGX543MP4+
External Dimensions: Approx. 182.0 x 18.6 x 83.5mm (width x height x depth) (tentative, excludes largest projection)
Sony sýndi nokkra leiki þegar nýja vélin var tekin fyrir og meðal annars mátti sjá Little Deviants, Broken, Smart As, Reality Fighters og Gravity Daze, ásamt leikjum byggðum á þekktum Playstation seríum eins og;
Uncharted
Killzone
WipeOut
Resistance
LittleBigPlanet
Hustle Kings
Hot Shots Golf
Það er ekki annað en hægt að segja að Uncharted leikurinn sem var sýndur leit stórkostlega út og ætti að verða einn af möst titlunum til að eignast á nýju vélinni.
Sony sagði síðan að nýja PlayStation Portable mun geta spilað Playstation 1 leiki í gegnum PlayStation Suite kerfi þeirra og mundi virka tilbaka með niðurhals PSP leikjum og var Monster Hunter 3rd sýndur því til staðfestingar. Önnur fyrirtæki sýndur leiki eins og, Yakuza 4, Lost Planet, Metal Gear Solid 4 ásamt að fyrirtækið Activision kynnti nýja Call of Duty leik sem myndi nýta getu vélarinnar.
Hideo Kojima aðalhönnuður Metal Gear Solid seríunnar ræddi um hve auðvellt hefði verið að taka módel og umhverfi úr PS3 útgáfunni af MGS4 og fært yfir til að virka á NGP og tóku Yakuza menn hjá SEGA undir það. Kojima sagði einnig að hann myndi kynna nýtt draumaverkefni á E3 í sumar.
Epic steig einnig á sviðið og sýndi nokkur skuggalega flott tæknidemó sem gefa til kynna hinn mikkla kraft sem er undir húddinu á NGP vélinni og verður forvitnilegt að sjá hvað þessir 4 kjarnar á örgjafa vélinnar geta gert með Unreal 3 grafíkvél Epic Games.
Eitt af því sem var forvitnilegt í kynningu Sony á PlayStation Suite kerfinu þeirra var að það myndi einnig virka á Android snjallsímum og tablet vélum og myndu PS1 leikir og aðrir sambærilegir leikir verða gefnir út fyrir studda síma. Leikirnir sem koma fyrst út verða; Wild Arms, Cool Boarders 2, Rally Cross, Medievil og Syphon Filter.
LiveArea er ný þjónusta sem í samvinnu við forrit sem kallast Near mun geta séð aðrar PSP2 (NGP) vélar nálægt á þínu svæði. Það mun sýna hvað fólk er að spila, hægt verður að spjalla við aðrar og séð hvernig fólki gengur í hinum ýmsu leikjum og nóg er að nota snertiskjáinn til að tengjast þeim á auðveldan hátt.
Við erum pínu þreyttir enda búnir að sitja yfir beinum texta straumum frá Kotaku, IGN og Playstation Blogginu síðan um 5 í morgun til reyna að sjá þetta allt gerast í beinni á netinu.
Þetta er stór hluti af kynningunni í dag og við munum færa ykkur nánanir fréttir á næstu dögum um þessa nýju og spennandi lófavél frá Sony sem er ætlað að keppa við nýju Nintendo 3DS vél Nintendo og síðan leikjamarkaðinn á farsímum.
Hafið augun opin hérna á síðunni og Facebook ásamt þættinum okkar á SkjáEinum og við munum halda áfram að færa ykkur heitustu fréttirnar.
Nýleg comment