- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for December, 2010

Gleðileg Jól frá GameTíví

Sælir kæru GameTíví notendur.

Okkur langar að óska ykkur innilega gleðilegrar jóla og áramóta og við vonum að hátíðarnar verði ykkur sem skemmtilegastar og að í öllum jólapökkunum leynast tölvuleikir og fleiri góðgæti, enda hver vill ekki fá harðan leikjapakka um jólin?

Okkur langar að þakka ykkur sérstaklega fyrir góð viðbrögð á þáttunum, virkar gagnrýnir á fréttum okkar, fyrir að taka þátt í nýja spjallinu á Gametivi.is og síðan auðvitað Facebook síðunni okkar sem er hörku virk þessa dagana og er ávallt með heitastu og nýjustu fréttirnar úr leikjaheiminum í dag.

Við GameTíví bræður munum mæta aftur á skjáinn í lok janúar og stefnum á að gera 2011 enn betra á alla vegu og vonumst til að þið hjálpið okkur að gera næsta leikjaár enn þá skemmtilegra!

Kv.
GameTíví

Harmonix orðið sjálfstætt

Það er ekki langt síðan að við sögðum frá að Viacom móður fyrirtæki MTV Networks eiganda Harmonix framleiðanda Rock Band seríunnar sem var að leitast eftir að selja fyrirtækið og draga sig úr leikjabransanum.

Harmonix staðfesti að þeir hafa verið keyptir af fjárfestingarfyrirtækinu Columbus Nova sem hefur stofnað síðan fyrirtæki til að sjá um Harmonix og Rock Band og Dance Central leikina þeirra og aðra óútgefna og ókynnta.

We’re excited to be returning to our roots as an independent and privately owned studio. As for what it means for you, the DLC schedule marches on for Rock Band, we will continue our support of previously released titles and we’re hard at work on some unannounced projects that we think you’re going to be pumped about.

Thanks for your continued support and stay tuned for more information here on RockBand.com, over @RockBand on Twitter and at Facebook.com/RockBand.

Okkur líst bara vel á þetta, það er jákvætt fyrir fyrirtækið að verða sjáfstætt á ný og geta samið sjálft við útgefanda, það er mjög líklegt að þeir haldi áfram góðu samstarfi þeirra við EA þó.

Kv.
GameTíví

Heimild: RockBand.com

The Legend of Zelda: Skyward Sword er nú hálfnaður!

Nintendo aðdáendur verða eflaust hissa við nýjustu fregnum leikjameistarans, Shigeru Miyamoto þar sem hann tilkynnti nú á dögum að hönnunin á nýjasta Zelda leiknum fyrir Nintendo Wii sé nú komin hálfa leiðina. Margir hafa beðið mjög óþreyja fullir eftir nýjum fréttum úr leiknum eða allt frá því þegar þeir afhjúpuðu gripinn í byrjun sumarsins á E3 sýningunni miklu.

Upprunalega var The Legend of Zelda: Skyward Sword áætlaður fyrri hluta næsta árs en hefur nú fengið 2011 stimpil sem mun sennilega seinka leiknum um nokkra mánuði, jafnvel ár þó svo ekkert sé staðfest enn þá. Eins og öllum er kunnugt að þá notast hann við MotionPlus tæknina sem gerir hreyfingar leiksins mun nákvæmari þegar kemur að flottum bardögum sem Zelda leikirnir eru svo þekktir fyrir.

Miyamoto var spurður hvernig honum litist á stefnu keppinauta sína og þetta hafði hann að segja:

Ég held að Wii sé ekki eitthvað sem fólk þarf að losa sig við.

Að sjálfsögðu er ég glaður að hreyfiskynjun sé í tísku núna. Við reynum þó ekki að fylgja nýjustu tískunni þegar við búum til leikina okkar.

Upplifunin þarf að vera þýðingarmikil, og hreyfiskynjunin þarf að bæta einhverju nýju við. Hreyfiskynjunin í nýja Zelda leiknum bætir við nýjum hlutum fyrir leikinn sem gerir það að verkum að þú finnur þig sem partur af ævintýrinu.

Ég held að keppinautar okkar verða að finna upp á einhverju nýju sér í hag sem færir okkur nýja hluti.

Þessa dagana vinnur Miyamoto hörðum höndum að nýrri upplifun fyrir Skyward Sword sem mun gera spilunina enn þá skemmtilegri svo að þig langi til þess að spila leikinn aftur frá byrjun eftir að hafa lokið við hann. Hann nefndi einnig að svo lengi sem Wii lifir að þá eru enn þá til fullt af leikjum sem Nintendo gætu hannað fyrir vélina.

Heimildir: Eurogamer

Keðja,
Game Tíví

DC Universe Online verður fyrsti MMO leikur PS3

MMO RPG leikir eru þekkt fyrirbæri á PC og Mac en hafa hingað til aldrei náð yfir á leikjavélarnar þrátt fyrir margar tilraunir sem hafa runnið útí sandinn bæði á PS3 og Xbox 360. Svo virðist sem að Playstation 3 sé með vinninginn hingað til og ætti að sjá fleiri en einn MMO leik á PS3 á næsta ári.

Sá fyrsti til að koma út á PS3 verður DC Universe Online frá Sony Online Entertainment í samvinnu með Warner Bros. Leikurinn hefur náð gull stöðu og er farin í fjöldaframleiðslu og er komin með útgáfudaginn 11. Janúar 2011 á PC og PS3 í Bandaríkjunum og 12 Janúar í Evrópu og 14 í Bretlandi.

Í augnablikinu er Betan í fullum gangi á PC og Playstation 3 og er búin að vera að stækka uppá síðkastið og hafa margar vefsíður verið að gefa lykla í hana, þeir sem eru með Playstation+ áskrift bæði í Evrópu og Bandaríkjunum hafa fengið aðganginn innifalinn í þessu. Það þarf 15GB laust pláss á PS3 vélinni til að geta sett upp leikinn.

Leikurinn er á fullu verði útúr búð og er innifalið í því 30 daga spilun á leiknum. Eftir það mun kosta 15$ eða €12.99 í áskriftargjald á mánuði til að spila áfram. Fyrir PC notendur verður síðan hægt að kaupa líftíðar spilun á 199$ eða €179.99 og verður þá hægt að spila leikinn eins lengi og hann verður í loftinu.

Fyrir þá sem vita ekki mikið um leikinn er þetta netleikur eingöngu þar sem að fólk getur búið til sýna útgáfu af hetju eða óþokka og gert verkefni, byggt persónuna upp og unnið sér inn verðlaun ásamt að spila með vinum og á móti þúsundum annara leikmanna á sama netþjóni og er þetta ekki ólíkt World of WarCraft leiknum þó að sögusviðið ofl sé annað. Það er viðbúið að þeir sem hafa gaman af söguheimi DC teiknimyndablaðana og halda t.d uppá Superman og Batman ofl ættu að finna eitthvað fyrir sig í þessum leik.

Hérna er hluti af Trophy lista leiksins á PS3;

The Queen’s Favorite (Gold)
Achieve level 30 as a villain mentored by Circe.

Criminal Mastermind (Gold)
Achieve level 30 as a villain mentored by Lex Luthor.

The Joker in the Deck (Gold)
Achieve level 30 as a villain mentored by the Joker.

Knight for Justice (Gold)
Achieve level 30 as a hero mentored by Batman.

Warrior of Truth (Gold)
Achieve level 30 as a hero mentored by Wonder Woman.

Champion of Earth (Gold)
Achieve level 30 as a hero mentored by Superman.

Acrobatic Ace (Gold)
Achieve level 30 as an acrobat.

Fearless Flier (Gold)
Achieve level 30 as a flier.

Speedster Supreme (Gold)
Achieve level 30 as a speedster.

Tanks Very Much (Silver)
Achieve level 10 as and gain the Tank Role.

Mission Control (Silver)
Achieve level 10 as and gain the Controller Role.

The Healing Touch (Silver)
Achieve level 10 as and gain the Healer Role.

Platinum Pace (Gold)
Earn a platinum medal in any race.

Platinum Trophy (Platinum)
Earn every other Trophy in the game.

SAN DIEGO – Dec. 21, 2010 - Sony Online Entertainment LLC (SOE) today announced that the highly anticipated online action game DC Universe ™ Online (DCUO), has reached gold master status and will be available at retail outlets worldwide on the PlayStation®3 computer entertainment system and PC on January 11, 2011. DCUO, licensed by Warner Bros. Interactive Entertainment on behalf of DC Entertainment,will be the first online game based in the DC Universe, the first MMO on PlayStation 3, and the first time DC Universe Online will be accessible to the millions DC Universe fans.

“Creating DC Universe Online has been a massive undertaking, and we’re excited to be that much closer to launch,” said Christopher Cao, Game Director of DCUO for Sony Online Entertainment. ”We’re grateful to our beta players for providing us invaluable feedback in these final stages that has enabled us to put the finishing touches on a fun and exciting experience when the game launches in January.”

As a traditional action-based MMO that combines fast-paced, twitch-based combat with an interactive physics system to deliver a new and unique gameplay experience, DC Universe Online brings the DC Universe to life, allowing players to create their own superheroes – or villains – and join forces with their favorite DC Comics characters such as Superman , Batman and The Joker to aid in saving – or destroying – the universe.

DC Universe Online is rated T for Teen by the ESRB with the following content descriptors: Mild Blood, Mild Language, Mild Suggestive Themes and Violence. For more information about DC Universe Online, visit www.DCUniverseOnline.com.

Kv.
GameTíví

Steam Jólasalan er byrjuð

Þá er loksins komið af tímanum sem veskin okkar hafa kvítt fyrir allt árið og það er Jólasala Steam þjónustunnar fyrir PC/Mac. Hún byrjaði í gær 20. Des og mun rúlla til 2. Janúar 2011 og verður hægt að fá allt að 80% afslátt af vissum titlum, að auki verða dagleg og vikulöng tilboð á vissum titlum og leikja pökkum frá útgefundum.

Nýtt á þessu ári er að á hverjum degi verður Jóla bónus á vissum leikja titli. Til að geta nýtt sér hann þartu að eiga vissan annan Steam leik.

T.d. núna er bónus fyrsta dagsins á Portal leiknum og ef að þú átt Half-Life 2 þá færðu 10% auka afslátt og leikinn á 2.25$ í stað 3.74$ sama hvernig er þó litið þá er þetta gjafaverð fyrir þennan frábæra leik.

Hérna er það helsta fyrir fyrsta daginn hérna fyrir neðan, við mælum með að fólk kíki nánar á Super Meat Boy leikinn sem er meiriháttar en hrikalega erfiður þó.

A.T.H. Ekki öll tilboð gilda fyrir alla, það spilar inní hvar þú býrð í heiminum.

F1 2010 50% (virðist ekki vera fyrir okkur hérna á klakanum)
Battlefield Bad Company 2 66%
Fallout 3 (Game of the Year) 33%
The Deus Ex Collection 85%
LEGO Batman 75% (virðist ekki vera fyrir okkur hérna á klakanum)
Peggle & Peggle Nights 60%
Prince of Persia (Franchise) 75%
Portal 75%
F.E.A.R. (Franchise) 75%
Titan Quest Gold 75%
Super Meat Boy 75%
Oddworld’s Oddboxx 50%

Hægt er að skoða þetta nánar á www.steamgames.com vefsíðunni og sækja Steam forritið fyrir PC eða Mac ef þú ert ekki með það uppsett nú þegar.

Kv.
GameTíví

Black Ops DLC í Febrúar

Hið fyrsta og óumflýjanlega DLC efni fyrir Call of Duty: Black Ops var kynnt um helgina af Microsoft.

Pakkinn kallast “First Strike” og inniheldur 5 borð og kemur út 1. Febrúar 2011 og mun kostar 1,200 Microsoft punkta sem gerir um 15$. Samkvæmt samningi á milli Microsoft og Activision mun pakkinn koma út fyrst á Xbox 360 og ef má marka hvernig var með Modern Warfare 2 má gera ráð fyrir um 1. Mánuð fyrir þetta að koma út á PC og Playstation 3 eftir á.

“We learned a lot of lessons in the development and design of the maps on the shipped game,” developer Treyarch’s director of online Dan Bunting explained. “For DLC we really wanted to go bigger with some of the things we learned that people liked. We focused a lot more on providing variety of weaponry, variety of engagement types, variety of verticality–a lot more verticality, bringing some sniper opportunities into it.”

“One of the popular things we’ve added in several of the maps in the shipped game were the scripted moments, scripted elements and interactivity” he added, “so that’s something we’ve made sure we wanted to bring to every single one of the new maps.

The five maps are:

Multiplayer

* Berlin Wall: set around the Checkpoint Charlie crossing in divided Berlin.
* Discovery: German research base in Antarctica, abandoned since World War 2.
* Kowloon: on the rainy rooftops of Kowloon City in China, drawing inspiration from the single-player.
* Stadium: a hockey rink in the North-Eastern USA.

Zombie

* Ascension: still classified information, apparently.

Þegar fyrsti pakkinn kom út á Xbox 360 fyrir Cod:MW2 seldist hann í 1. Miljón eintökum á fyrsta degi, svo að vera með þennan samning við Activision skilar sér vel fyrir Microsoft í byrjun, þó að pakkarnir munu einnig seljast mjög vel á PS3 og PC.

Kv.
GameTíví

Heimild: Shacknews

Þetta er nam, elsku vinir!

Battlefield: Bad Company 2 aðdáendur geta svo sannarlega tekið upp gleðina á nýjan leik, því í vikunni kom út glænýr fjölspilunar aukapakki fyrir leikinn sem færir þig aftur í tímann á vígvelli Víetnamstríðsins. Dice höfðu lofað öllu fögru fyrir komu pakkans og lítur allt út fyrir að þeim hafi tekist að uppfylla þau skilyrði.

Battlefield: Bad Company 2 – Vietnam, er sem sagt kominn út á PS3 og Xbox 360 og þið getið nálgast hann í gegnum vefverslun þeirra, PC eigendur geta notað Steam verslunina til þess að verða sér um gripinn og kostar hann þar $15.

This is nam baby! – Frank Woods (Black Ops)

Kveðja,
Game Tíví

Bannað að deyja!

Eurogamer birti nýlega á vefsíðu sinni grein um hasar Rpg leikinn The Witcher 2 -Assassins of Kings frá Pólska fyrirtækinu CD Projekt, þar sem að þeir fara í gegnum nýju Insane erfiðleika stillinguna í leiknum.

“Þú getur vistað hvar sem þú villt, en ef að þú deyrð þá er engin leið að fara tilbaka á þess að byrja á leiknum á uppá nýtt” segir Mateusz Kanik sem er yfir leikjahönnun leiksins í viðtalinu við Eurogamer.

“Auðvitað plönum við að bjóða uppá endurlífgunar galdur, kannski í væntanlegu DLC fyrir leikinn síðar. Þið munuð komast af því síðar.”

Svo fyrir þá sem byrja að spila leikinn næsta vor, verður hægt að velja á milli; easy, medium, hard and insane.

Í easy er hreinlega nóg að berja á takkana til að vinna, en á Insane þá verða hlutirnir talsvert öðruvísi. Það er hægt að líkja insane parti Witcher 2 við kult leik FromSoftware Demon Souls sem þeir hjá CD Projekt fyrirtækinu halda mikið uppá.

Þeir nefna síðan að þeir sem halda uppá að gera Speed Runs (hraða hlaup í gegnum leikinn á sem styðstum tíma) muni eiga erfiðara með en í fyrri leiknum að forðast óvinina, Kanik sagði að þeir hefðu gefið óvinunum nýja hæfileika til að ná Witcher persónu þinni og sem gerir að verkum að standa á sínum stað og berjast verður betri valkostur ef þú ætlar þér að lifa þetta af.

CD Projekt ræddi síðan um að þeir sem klára leikinn í erfuðustu stillingu munu fá einhvern glaðning í leiknum. Að lokum ræddu þeir að um stuðning fyrir fólk sem hefur klárað The Wither 1 á PC að það verður gerlegt að færa savin úr leiknum á milli í nýja leikinn

“In The Witcher 1 the story was non-linear, like in The Witcher 2. We want to import information about your decisions in The Witcher 1, and to make consequences of those decisions in The Witcher 2 so it will impact the storyline. Of course, not a new story, totally. Only little differences.

“We want to give the possibility to import some items from your inventory. Of course, not all because it impacts the game balance. Money, for example, we can’t give, because the game economy will be ruined. But for sure there will be an option to import some weapons and armour.”

Fyrir þá sem koma nýjir inní leikinn þá hafa þeir rætt um að koma með einhvers konar sögu maskínu sem leyfir fólki að taka einfaldar ákvarðanir úr fyrri leiknum án þess að hafa spilað hann. Þetta er annað sem þeir hafa klárlega orðið fyrir áhrifum um hvað Bioware hefur verið að gera með Mass Effect 2 bæði á PC og Xbox 360 og síðan í væntanlegri PS3 útgáfunni í Janúar.

The Witcher 2 -Assassins of Kings er væntanlegur 17. Maí eingöngu á PC og við mælum með að allir aðdáendur RPG leikja skoði fyrri leikinn og framhaldið nánar, þar sem að fyrsti leikurinn var frábær að okkar mati og kom skemmtilega á óvart og fékk leikurinn PC leikur ársins hjá PC Gamer, Gamespy og IGN.

Besta útgáfan af leiknum til að grípa er The Witcher -Enhanced Version sem er hægt að kaupi úti næstu tölvuleikjaverslun og á netinu á t.d Steam. Þeir sem eiga eldri útgáfu af leiknum geta sótt fríar uppfærslur hérna sem færa þær útgáfur uppí það sama og er í boði í Enhanced pakkanum algerlega frítt svo lengi sem að þú átt löglegt eintak af leiknum.

Hvernig líst svo fólki á þessa áskorun hjá The Withcer 2?

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer og Kotaku fyrir myndina.

Demon Souls netspilunin lifir áfram

Hinn eitursvali og gríðalega erfiði leikur Demon Souls hefur fengið smá náðun á netspilun sína. Upprunalega hafði dreifingaraðilinn Atlus í Bandaríkjunum tilkynnt að netþjónarnir fara ekki niður strax eins og hafði verið óttast.

Reyndar er hægt að kvarta pínu undan að ári eftir útgáfu leiks að fyrirtæki sé að pæla að slökkva á netþjónum hans, en það er víst allt önnur ella :)

Þetta er í annað skiptið sem framlenging hefur orðið á netþjónustu leiksins og Atlus er búið að grínast að það verði erfiðara og erfiðara fyrir þá að slökkva á netþjónunum þar sem að þeir eru hreinlega að taka sér líf uppá sjálfsdáðum.

“It’s starting to feel like even if we wanted to, we couldn’t shut things down.” Atlus reps wrote. “Honestly, we’re more worried the servers will shut us down than the other way around.”

Netspilun leiksins er stór hluti af upplifunni við að spila Demon Souls, það gerir leikmönnum gerlegt að sjá drauga af öðrum leikmönnum, kalla eftir aðstoð vina í erfiðum endakalla pörtum, og jafnvel sitja fyrir öðrum leikmönnum og drepa þá í þeirra heimi.

Atlus talaði um að reyna að halda netþjónum uppi eins og lengi og þeir geti og að nýr White Tendency atburður byrji í dag 20. Desember sem leyfir fólki að berjast við skrímsli og safna dóti sem annars er ekki fáanlegt. Hvítir atburðir gera heiminn aðeins auðveldari, þó verum ekkert að grínast með það að auðvelda útgáfan þeirra er grimmur húsbóndi. Svartir atburðir gera síðan leikinn skuggalega erfiðan.

A.T.H. að okkur vitund á þetta BARA við eintök af leiknum versluð í Bandaríkjunum en EKKI í Evrópu og Asíu. Namco Bandai gaf út leikinn í Evrópu og Sony í Asíu.

Kv.
Gametíví

L.A. Noire tæknin á bak við leikinn

Rockstar Games og Team Bondi hafa gefið út nýtt vídeó sem fer sýnir þá mikklu vinnu og nákvæmni sem fer í að ná andlitum leikara leiksins og að reyna að gera þau eins raunveruleg og mögulegt er og í leið gera þér kleyft að sjá hvort að þau eru að segja þér satt eða ekki.

Þar sem að þetta er glæpasaga og lygar koma mikið við sögu er nauðsynlegt fyrir þá sem spila leikinn að geta reynt að sjá úr andlitum fólks hvað það í raun er að meina. Team Bondi ræðir um að sagan geti farið á hina ýmsu vegu út frá yfirheyrslunum sem eru í leiknum og þeim áliktunum sem þú sem leikmaðurinn tekur.

Glæpasagan L.A. Noire er áætlaður næsta vor fyrir Playstation 3 og Xbox 360.

Kv.
GameTíví