- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Sony með kynningu eftir VGA

Daginn eftir Spike TV Video Game Awards verðlauna afhendinguna þar sem gríðalega margir nýjir leikir verða kynntir mun Sony halda sérstaka kynningu á leik sem mun eingöngu koma út á Playstation 3.

Leikurinn sem flestir veðja á verði kynntur nánar er Uncharted 3. Orðrómur er eimmit búin að vera að Naughty Dog framleiðandi seríunnar munu kynna vídeó af leiknum á VGA sýningunni þann 11.Des, svo það hljómar ekki ósennilegt að Sony myndi vera með stóra kynningu á leiknum daginn eftir.

Síðan gæti þetta verið allt annar leikur frá Sony. En miðað við að Uncharted 2: Among Thieves fékk flotta kynningu á VGA hátíðinni 2008 er þetta þá enn sennilegra.

Við bíðum spenntir að sjá hvort að þetta reynist rétt eða ekki.

Uncharted serían er ein af þeim betri á þessari kynslóð leikjavéla og ein af höfuðdjásnum Sony í PS3 leikjasafninu.

Kv.
GameTíví

0 Responses to “Sony með kynningu eftir VGA”


Comments are currently closed.