
Hollywood leikarinn Mark Wahlberg hefur staðfest í viðtali við MTV að mann muni leika töffarann Nathan Drake í væntanlegri kvikmynd Sony Pictures Entertainment af Uncharted: Drake’s Fortune Playstation 3 leiknum.
Fréttin hefur vakið viss vonbrigði margra sem töldu að Nathan Fillion úr cult þáttunum Firefly og núverandi Castle þáttum væri talsvert betri kostur og hafði hann eimmit á Twitter sýnt hlutverkinu mikinn áhuga.

Hvað finnst ykkur? Okkur finnst Nathan Fillion smellpassa í útliti og en meira í húmor, ekki er verra að hann heitir Nathan
Í viðtalinu við MTV Multiplayer staðfesti Walhberg að leikstjórinn David O. Russell væri byrjaður á handriti myndarinnar. “David is one of the best writer/directors I’ve ever worked with,” sagði Wahlberg. “The idea that he has is just insane. So hopefully we’ll be making that movie this summer.”
Walhberg staðfesti einnig orðróminn um að O. Russel vildi ráða leikarana Joe Pesci og Robert De Niro. “That’s who he wants to write the parts for. I talked to Pesci about it and I know David’s people have talked to [Robert De Niro],” sagði Wahlberg.
Walhberg var spurður úti hvar myndu Pesci og De Niro passa í söguna sagði hann væri til í hvað sem O. Russell vildi gera og líklega yrði De Niro pabbi hans og Pesci frændinn.
Fyrir okkur sem hafa spilað leikina, þá þurfti maður að klóra sér í hausnum andartak og rifja upp Uncharted 1 og að það hafi bara hreinlega ekkert verið minnst á neina ættingja hans nema forföður hans og sjóræningjann Drake.
Mark Walhberg er fínn leikari og hefur verið í mörgum góðum myndum, hann lék í Max Payne myndinni sem var byggð á samnefndum tölvuleik sem því miður var engan vegin nógu góð. Við viljum þó mest kenna sögunni um þar. David O. Russell er þekktastur fyrir að hafa leikstýrt Three Kings sem George Clooney og Walhberg léku í ásamt síðan I ♥ Huckabees og myndinni The Figher sem er einnig með Walhberg og Christian Bale og er væntanleg í kvikmyndahús hér á landi í Febrúar 2011.
Það verður forvitnilegt að sjá hvernig þess mynd mun koma út, David O. Rusell er þekktur fyrir að vera pínu erfiður við leikara og aðra og það er spurning hvernig þetta kemur út. Mark Walhberg virðist þó vita hverju hann á von eftir að hafa unnið með leikstjóranum tvisar sinnum áður.
Kv.
GameTíví
Heimild: MTV
Nýleg comment