- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for October, 2010

Xbox 360 Haust Dashboard uppfærslan droppar á morgun Mánudaginn 1.Nóv

Xbox 360 dashboard (viðmótið/stýrikerfið) mun fá uppfærslu Mánudaginn 1. Nóvember. Þá mun stóra Xbox Live Haust 2010 uppfærslan, með Kinect stuðningi koma út á leikjavél Microsoft.

Microsoft staðfesti útgáfudaginn í tölvupósti og sagði við Xbox Live notendur að þessi uppfærsla sem notendur verða að taka við mun “auka og bæta viðmótið, hvernig notendur nota það og leita og auka virkni og hraða þess”. Síðan staðfestu þeir nokkrar af þeim þjónustum sem eiga nær eingöngu við notendur í Bandaríkjunum eins og Zune Music og ESPN íþróttarásina sem verur hægt að horfa á. Til viðbótar við allt þetta fá Avatars fígúrurnar yfirhalfningu.

Microsoft gerir ráð fyrir að þessi skyldu uppfærsla -sem þýðir að ef þú tekur ekki við henni þá geturðu ekki notað Xbox Live á meðan – muni taka frá 5-10 mín. Að okkar reynslu af Betunni þá tekur þetta minni tíma en það að keyrast inn, en fer eftir álagi og nettengingu fólks.

Hérna fyrir neðan er listin fenginn beint frá Microsoft um er það helsta sem þeir vilja benda á í uppfærslunni.

  • Improved voice quality – the audio codec is being updated to improve Xbox LIVE Party chat audio quality. So grab your friends and jump into a multiplayer game, catch a big sports event, watch a movie or do all three.
  • Improved experience for changing your Gamertag – choosing a new Gamertag? If the Gamertag you’re looking for is already taken, your Avatar will spin a wheel and we will provide five other Gamertag suggestions at a time for you to choose from.
  • Streamlined in-dashboard virtual keyboard – we’ve taken the existing QWERTY keyboard in-dash and made it easier to use for scenarios that involve repeated text entry, for example when signing up for LIVE within the dashboard.
  • Improved Xbox LIVE Marketplace UI and browse experience – the Games Marketplace has been re-organized to provide streamlined access to the games and content you want, reducing the number of steps it takes to get to a download.
  • Avatar changes – we’ve made your Avatars slightly more proportional so you can better play Kinect games
  • Easier to get on a wireless network – trying to connect to a wireless network? With the next update, you’ll see a list of all the wireless networks within range when you go into network settings. From there, you’ll be able to select a new network or further configure the network you’re connected to.
  • Ability to sign-out other controllers in the sign-in UI – we’re adding the ability to sign-out profiles on other controllers in the sign-in UI within the Guide. This is especially useful when playing games like Rock Band.
  • New browse experience for 100% completed games – you spent a lot of time and effort earning those Achievements, so instead of only being able to view your first dozen completed games, we’re giving you a new and better way to browse all of them.

Margt spennandi þarna á ferð og verður gaman fyrir Xbox 360 eigendur að sækja þessa fríu uppfærslu á morgun. Við höfum rúllað á Betunni í nokkrar vikur og líkar mjög vel við og það er oft gaman hvað margar litlar breytingar geta bætt reynsluna en meira.

Kv.
GameTíví

Heimild: Kotaku

Bethesda kaupir fyrirtæki hönnuðar Resident Evil

Móðurfyrirtæki Bethesda höfunda Fallout, Oblivion og Morrowind, Zenimax hefur keypt Japanska leikjastúdíóið Tango Gameworks sem Shinji Mikami stofnaði.

Mikami er þekktastur fyrir að hafa skapað Resident Evil leikjaseríuna, að auki hefur hann unnið að Devil May Cry, Vietfull Joe, Killer 7, God Hand og Vanquish sem er nýkomin út ásamt vera framleiðandinn á bakvið  EA Partners leikinn Shadows of the Damned

Tango fyrirtækið á að vinna að AAA titlum sem eiga að koma út á helstu leikjavélarnar og Mikami mun vinna sem sköpunar hönnuður á bakvið hvert verkefnið.

“It’s refreshing to find a publisher who understands, trusts, and supports the development of blockbuster games and works to make it a collaborative effort,” said Mikami.

“The library of AAA franchise titles ZeniMax owns speaks for itself. We are very excited to be joining ZeniMax and working with a company that is dedicated to creating the best games ever made.”

Robert Altman yfirmaður ZeniMax var mjög ánægður með viðbótina við fyrirtækið.

“Shinji Mikami has earned a stellar reputation as one of the industry’s finest game developers,” said Robert Altman, Chairman and CEO of ZeniMax.

“He has repeatedly created hit titles that have earned praise from fans and critics around the world. We share his vision for innovative, genre-defining games and look forward to working with Shinji and his team at Tango.”

ZeniMax Media er búin að stækka mikið síðustu árin og er komin með frábært safn af gæða leikjum og leikjastúdíóum undir sinn hatt. Það má nefna Bethesda Softworks (hönnuða The Elder Scrolls og Fallout 3), id Software (hönnuða Quake og DOOM), Arkane Studios (hönnuða Arx Fatalis og Dark Messiah of Might and Magic) og Tango Gameworks. Að auki eru síðan Vir2L Studios (Býr til farsíma og lófatölvu leiki), Mud Duck Productions og síðan ZeniMax Online Studios (sem er að vinna að MMORPG leik).

Þeir hafa síðan keypt útgáfuréttin og Prey leikina og útgáfuréttin tilbaka af Rage leiknum frá EA sem id Software er að búa til. Síðan eru þeir að gefa út Brink leikinn frá Splash Damage fyrirtækinu sem á að koma út á næsta ári.

Nóg að gera hjá þessu spennandi fyrirtæki.

Kv.
GameTíví

Heimild: Eurogamer

Kortalistinn fyrir fjölspilunarpart Black Ops komin?

Á vefsíðu Kotaku má sjá 2 myndir úr leiknum Call of Duty: Black Ops. Sú fyrri virðist sýna lista yfir öll borðin sem verður hægt að spila á netinu í leiknum.

Samkvæmt listanum virðast þetta vera 14 borð sem um er að velja, það er erfitt að segja mikið um þau án þess að hafa spilað leikinn sjálfan. Mjög oft eru fjölspilunarborð byggð á sögusviðum leiksins.

Seinni myndin er aðeins eldri og sýnir Killstreaks í leiknum sem er hægt að vinna sér inn og nota, það sem þarf að gera til að fá killstreak er að drepa ákveðin fjölda óvina í röð.

Call of Duty: Black Ops er væntanlegur þann 9. Nóvember á PC, Xbox 360, PS3, Nintendo Wii og Ds.

Kv.
GameTíví

Sony bloggið kynnir Killzone 3 Helghast útgáfuna

Opinbera PlayStation bloggið kom með upplýsingar um stóra boxið Killzone 3 Helghast Edition og upplýsingar um forpöntunar góðgæti sem verða í boði hjá mismunandi fyrirtækjum í Bandaríkjunum.

Killzone 3 Helghast útgáfan ($129.99) er skylda fyrir harða aðdáendur. Þessi einstaka útgáfa uppistendur af endurgerð af Helghast Hjálmi sem er með bók með myndefni úr leiknum í, Super Voucher miði (fyrir efnið fyrir neðan) og Killzone 3 leikinn með bónus efni. Einnig innifalið er Cloaking Helghast Marksman fígúra sem var hönnuð af DC Unlimited, og verður hún hverki annar staðar seld nema í þessum pakka.

Features

  • Authentic Helghast Helmet replica opens to reveal art book, Super Voucher and Killzone 3 game.
  • Exclusive Cloaking Helghast Marksman action figure is 6.5” tall with multiple articulation points and will not be sold at retail
  • Includes bonus video content giving you a behind-the-scenes look at the making of the game.
  • Exclusive art book featuring imagery from the Killzone universe
  • Super Voucher includes
    • Killzone 3 soundtrack and PS3 Dynamic Theme
    • Retro Map Pack featuring two of the most popular multiplayer maps from Killzone 2
    • Double XP for the first 24 hours of multiplayer gameplay
  • Full access to all weapons and abilities during the first 24 hours of multiplayer gameplay
  • Ekkert hefur en verið gefið út upplýsingar fyrir Evrópu en líklegt er að við fáum tækifæri að eignast þessa flottu útgáfu einnig þegar leikurinn kemur út snemma á næsta ári eingöngu fyrir PS3.

    Kv.
    GameTíví

    Bethesda og Obsidian á fullu að fínpússa Fallout: New Vegas

    Bethesda og Obsidian Entertainment eru búin að gefa út það stóran plástur fyrir Fallout: Las Vegas að þeir töldu ekki þörf að láta lagfæringarlistann fylgja með útaf hve langur hann væri og inniheldur hann í kringum 200 lagfæringar.

    Síðan að New Vegas kom út hafa spjallborð á netinu með lifandi umræðu um hvað væri að leiknum og hvað mætti betur gera. Villurnar voru allt frá ritvillum í að leikurinn frysi. PC útgáfan var uppfærð í síðustu viku og núna hefur sami plástur skilað sér fyrir PS3 og Xbox 360 útgáfur leiksins.

    Í nýlegu viðtali sagði Chris Avellone hjá Obsidian Entertainment fyrirtækinu og einn af aðalsprautunum á bakvið leikinn, “Ég held að þegar þú skapar leiki eins stóra og Fallout 3 eða New Vegas þá er óhjákvæmilegt að lenda í hlutum sem jafnvel 300 mann prufunarhópur getur ekki séð, svo við erum að reyna að laga þetta eins fljótt og auðið með samvinnu við Bethesda.”

    Bethesda gerði svipað í lok árs 2008 þegar Fallout 3 kom út og voru fljótir að laga og bæta leikinn.

    Þrátt fyrir vissa vankanta er leikurinn að fá góða dóma og fólk er að líka leikurinn og sagan vel og að sökkva sér djúpt í þennan skemmtilega RPG leik. Við erum búnir að liggja í nokkra tugi tíma í leiknum og eigum en nóg eftir af leiknum og höldum áfram að kanna eyðimörkina í kringum Vegas.

    Kv.
    GameTíví.

    Heimild: Gamesradar

    Bioshock 2 á PC fær uppfærslu og DLC eftir að 2k beygir sig fyrir óánægju viðskiptavina

    Það er ekki annað hægt að segja að fólk hafi verið óánægt þegar Elizabeth Tobey hjá 2K sagðiPC notendur Bioshock 2 leiksins myndu ekki fá Minerva’s Den og Protector Trials DLC pakkana sem Xbox 360 og PS3 eigendur hafa haft séns á að versla. Til að gera málið verra síðan hafði 2K sagt að þeir myndu ekki gefa út loka plásturinn fyrir leikinn.

    Eftir að hafa skoðað viðbrögð þeirra sem höfðu verslað leikinn á PC hefur 2K bakkað og ákveðið að klára vinnu við báða DLC pakkana og loka plásturinn.

    Often, development is not a smooth and straight forward path. We never want to disappoint our gamers and we will always listen to what you have to say and try to do what’s right for you and the game. I want to thank all of you not only for your feedback, but also for your patience and understanding. Check back here for more information – I’ll be updating this post as we hit key milestones in development.

    Þetta eru mjög jákvæðar fréttir og stundum sýnir að það borgar sig að láta heyra í sér ef að fólk er ósásatt við hvernig fyrirtæki höndlar leikinn sem þú hefur verslað áður.

    Kv.
    GameTíví.

    Angry Birds selst vel fyrir Android síma og komin í 6.5 Miljón eintaka fyrir iPhone

    Hrekkjavöku útgáfa hins vinsæla farsímaleiks Angry Birds er búin að seljast í meira en 1 Miljón eintökum á sex dögum sakvæmt hönnuðum leiksins Rovio. Fyrir þá sem þekkja ekki til leiksins snýst leikurinn um að nota teygjubyssu til að kasta ýmsum fuglum í átt að þratum sem leiða til að leiðindarsvínin fái það sem þau eiga skilið. Við smelltum vídeó af leiknum neðar í fréttinni.

    Upprunalegi leikurinn er búin að seljast í 6.5 Miljón eintökum á App store Apple fyrir iPhone og iPad, að auki við þetta er leikurinn búin að seljast í 2 Miljónum eintaka á Android símum.

    “We’re delighted to see such fantastic reception for Angry Birds Halloween,” said Rovio CEO Mikael Hed. “We intend to continue creating more and more quality products and updates, and keep exceeding the expectations of our fans worldwide.”

    Þetta er vægast sagt frábær árangur fyrir þennan bráðskemmtilega og vanabindandi leik sem hefur farið eins og eldur í sinu hvar sem hann hefur komið út. Ein af ástæðunum fyrir hve vel leikurinn hefur gengið er líklega meðal annars lága verðið á leiknum sem kostar 0.99$ fyrir iPhone og 4.99$ á iPad sem er um 113 Krónur fyrir iPhone útgáfuna og 565 Krónur fyrir iPad útgáfuna sem er bara næstum því gefins verð fyrir svona leik sem inniheldur um 195 borð sem mun þurfa góða heila og þrautsegju að klára sum borðin.

    Framleiðandi leiksins hefur síðan rætt um að leikjatölvu eigendur geta átt von á góðu og að þeir stefni á að gefa út leikinn á Nintendo Ds, Sony PSP og PS3.

    Kv.
    GameTíví

    Náunginn sem gæti slegið Blizzard út í kunnáttu um World of WarCraft

    Við hérna á GameTíví teljum okkur sæmilega klára vanalega og vel með á hreinu leikjasöguna og dýptina í sumum söguheimum sem sumir tölvuleikir hafa komið með. En við þurfum að játa okkur sigraða fyrir þessum World of WarCraft aðdáand sem á nýafstaðni BlizzCon sýningu Blizzard höfunda leiksins lét jafnvel þá verða orðlausa og ekki alveg 100% á nótunum um söguheim leiks þeirra.

    Þetta var á parti um helgina sem snerist af Questinum sem er hægt að gera í leiknum og fólk gat spurrt höfuna þeirra spurninga. Náunginn sem klárlega hefur spilað leikina í ræmur og lesið viðeigandi bækur sem hafa verið gefnar út, spyr hann útí misræmi á milli Wow bókarinnar og Wow leiksins svara þeir hjá Blizzard að þeir telja að persónan sem hann vísar í eigi að vera dauð og hann er snöggur að sýna kunnáttu sína og bendir á að sú persóna er búin að vera í leiknum frá byrjun og hefði átt að vera í World of WarCraft: Lich King aukapakkanum.

    Þetta sýnir bara að jafnvel þó að þú búir til leikinn og skrifar efnið í hann er hægt að finna einhvern gall harðann leikjaspilara sem veit meira um leikinn þinn en þú sjálfur.

    Við hérna hjá GameTíví viljum veita honum heiðursverðlaun fyrir Nörd ársins og teljum hann vel að þeim komin :)

    Kv.
    GameTíví

    Nvidia gefur út nýja 260.99 WHQL drivera

    Nvidia skjákorta framleiðandinn hefur gefið út nýja WHQL drivera fyrir öll GeForce/Ion skjákortin sín. Þessir nýju driverar bæta keyrslu leikja eins og Civilization V í SLI (2x Skjákort tengd saman), Fallout 3, Final Fantasy XIV, og Formula 1 Racing í DX11. Einnig bætist við SLI prófílar fyrir Need for Speed: Hot Pursuit, Star Wars: The Force Unleashed II. og Fallout: New Vegas, lagar síðan virkni með Fallout: New Vegas með anti-aliasing stillt á. Að lokum í þessum lagfæringum er Alt-Tab stuðningum fyrir slattaf af leikjum og 3D Vision prófíll fyrir hina væntanlegu Call of Duty: Black Ops og Tom Clancy’s H.A.W.X. 2.

    Þessir driverar eru fyrir stýrikerfin  Windows Vista/Windows 7, Windows Vista 64-bit/Windows 7 64-bit, Windows XP, og Windows XP 64-bit. Nóg er að smella á nafnið á stýrikerfinu til að fara á viðeigandi vefsíðu og sækja viðeigandi driver.

    Kv.
    GameTíví.

    Lara Croft and the Guardian of Light fær tímabundið frítt DLC og Online Co-op plástur

    Square Enix er búið að geta út upplýsingar um fyrsta DLC pakkan fyrir Lara Croft and the Guardian of Light niðurhals leik sinn. Pakkinn verður frír í mánuð og mun koma út samhliða Online Co-Op plástrinum fyrir leikinn sem búið er að bíða eftir. Til að byrja með verður þetta fyrst á Xbox 360 en ætti síðan að skila sér á PS3 og PC fljótlega eftir þetta.

    The pack, titled All the Trappings, includes a “brand new area to conquer and features a combination of puzzle, exploration and combat experiences.”

    It’ll be free for the next month. It’ll release tomorrow alongside the game’s anticipated online co-op patch.

    “We’re delighted the Online Co-op is ready and going live – as a thank you to the patient Xbox gamers, and for a limited time only we will be giving away our first DLC pack for free,” said developer Crystal Dynamics GM, Darrell Gallagher

    More details will “follow” on the co-op patch and DLC for PS3 and PC owners.

    Fyrir þá sem hafa ekki prufað leikinn mælum við með demóinu á Steam, PSN eða Xbox Live Arcade.

    Kv.
    GameTíví.