- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for September, 2010

Page 2 of 4

Hvar ertu, Half-Life 3?

valve_promises_three_surprises1283443935

Það er ekki á hverju degi sem einstaklingar biðja tölvuleikjaframleiðendur um að opinbera verk sín sem þeir hafa í framleiðslu, þrátt fyrir að hver og einn grátbiðji þá daglega um að gefa út nýjar fregnir innra með sér. Hins vegar hefur sonur Peter Molyneux (faðir Fable seríunnar), Lucas Molyneux búið til myndband þar sem hann biður leikjarisann Valve um að veita sér upplýsingar um næsta Half-Life leik.

Mörgum þykir þetta myndband eflaust væmið, þar sem Peter skýst inn í tökuna til þess að aðstoða orða val hans og fleira. En við lítum á þetta sem nokkurs konar áskorun á Gabe Newell, hönnuður Steam sem gerir sér vonandi fært á að láta undan og veita okkur einhverjar upplýsingar um komandi leik, hvort sem það er nýr Half-Life 3 leikur eða kafli þrjú í Half-Life 2 seríunni.

Hver veit nema að þetta eigi eftir að hræra eitthvað við þeim, við vonum það svo innilega.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
Game Tíví

Tíu mínútna spilun úr BioShock Infinite lítur dásamlega vel út

bioshock

Fyrir nokkrum vikum síðan sviptu Irrational Games hulinni af nýjasta verki þeirra, BioShock Infinite á bak við læstar dyr þar sem aðeins sérstakir aðstendur fengu að fylgjast með brot úr leiknum. Sjálfur Ken Levine var að sjálfsögðu viðstaddur til þess að opinbera verkið sem reyndist fara mjög vel í menn og eru nánast allir yfir sig spenntir sem þekkja vel til BioShock seríunnar.

Það var ekki fyrr en í gær sem almenningur fékk loksins að njóta þess sem sýnt var á þessari glæstu kynningu. Um er að ræða 10 mínútna myndband sem sýnir okkur nokkuð veginn hvernig spilun leiksins mun hátta. Leikurinn mun svo sannarlega gefa seríunni nýjan innblástur sem á eflaust eftir að gleðja alla BioShock aðdáendur.

Það er nokkuð ljóst að biðin eftir leiknum á eftir að verða gríðarleg erfið því nær sem dregur að leiknum. BioShock Infinite er væntanlegur árið 2012 á PC, PS3 og Xbox 360.

Kveðja,
Game Tíví

Tölvuleikur ógnar afköstum fólks víða um heim

Civ5-Logo

Það eru dularfullir hlutir a sveimi víðsvegar um borgir Norður Ameríku í dag.  Fundir í CivAnon samtökunum sem hafa hjálpað svo mörgum að yfirstíga erfiða fíkn hafa skyndilega verið aflýst vítt um Bandríkin og Kanada og virðist sem að þetta vandamál muni breiðast útum heiminn á næstu dögum og er mikil áhætta á heimsfaraldri.

Ein af ástæðunum sem er kennt um núverandi aðstæður er útgáfa tölvuleiks að nafni Civilization 5 sem kom í búðir í N-Ameríku í dag og mun skila sér um allan heim í lok vikunnar og mun hafa gríðaleg áhrif á vinnuafköst og námsárangur ótal fólks.

Hvað gerir þú þegar Civ 5 mun reyna að ná tökum á þér? Verður það ein umferð í viðbót? Eða kannski læsa sig inni og reyna að forðast leikinn?

Við hérna á GameTíví erum harðir Civ aðdáendur og munu taka sénsinn og hoppa með hausinn fyrst inní hasarinn að reyna að koma okkar siðmenningu á framfæri og ná völdum í heiminum. Er það ekki annars það sem þetta snýst um? :)

Kv.
GameTíví

Fable III Achievement listinn komin fram

Fable3-boxshot_uk_large

Xbox 360 Achievements vefsíðann hefur fengið lokalistann yfir 50 achievements sem í boði eru fyrir  Fable III Ævintýra og hlutverkaleikinn sem er áætlaður þann 26. Október fyrir Xbox 360.

F3-screen8_large

Það er margt forvitnilegt sem er hægt að sjá útúr þessum lista, t.d færðu 5. stig fyrri að ættleiða barn, 10 stig fyrir að giftast öðrum leikmanni/konu í gegnum Xbox Live og ekki má gleyma að það eru 5. stig í boði fyrir að halda í hendina á öðrum. Við mælum með að rúlla í gegnum listann og skoða vel, það er óhætt að skoða þar sem að það er ekkert sem skemmir fyrir sögu leiksins.  Eins og í Fable II er achievement kerfið notað á skemmtilegan hátt.

F3-screen5_large

Í Fable III er hægt að spila á þann hátt sem þú villt og verða sá sem þú villt. Eins og í fyrri leikjum er byrjað sem barn, annað hvort sem strákur eða stelpa og ákvarðanir þínar móta útlit persónu þinnar og hvernig fólk bregst við þér. Núna hefur þú örlög Albion ríkisins í hendi þér og spurningin verður auðvitað hvers konar Konungur eða Drottning þú verður.

Kv.
GameTíví

The Guild Seal
10 Unleash your heroic potential.

And So It Begins
20 Win the support of the Dwellers.

Swift Justice
20 Win the support of the Swift Brigade.

The Resistance
50 Win the support of Bowerstone.

Distant Friends
20 Win the support of Aurora.

The Ruler of Albion
80 Become the ruler of Albion.

For Albion!
80 This is where you *spoiler* the great, big *spoiler* and then it all *spoiler*.

Save The Princess!
10 Rescue the princess from the evil Baron.

Ghost Brothers
10 Make sure Max and Sam get home in time for tea.

Tragical-Comical-Historical
10 Help the celebrated thespians Lambert and Pinch put on the world’s greatest play.

The Dark Sanctum
10 Reinstate an ancient, evil temple.

Island Paradise
10 Establish the island of Driftwood.

Knight Jumps Chesty
10 Defeat Chesty at his own game.

Coronation Chicken
10 Perform a royal judgement while dressed as a chicken.

Spellweaver
5 Combine two gauntlets to cast a “woven” spell.

Archmage
20 Cast all 15 possible spell combinations.

Total Warrior
10 Kill enemies with melee, ranged and spell attacks.

Pull!
10 Send an enemy flying into the air and kill him while he’s airborne.

Gunning For Glory
20 Kill 500 enemies using firearms.

If It Bleeds, We Can Kill It
20 Kill 500 enemies using melee weapons.

Wizard’s Revenge
20 Kill 500 enemies using magic.

Super Hero
50 Fully upgrade your Melee, Ranged, and Magic abilities on the Road to Rule.

You Can’t Bring Me Down
50 Complete Fable III without being knocked out in combat.

My Weapon’s Better Than Yours
25 Complete 3 unique upgrades on one of the legendary weapons found around Albion.

I Am The Keymaster
30 Collect all 50 Silver Keys and 4 Gold Keys.

Flower Power
30 Collect all 30 Auroran flowers.

Gnome Invasion
30 Destroy all 50 gnomes.

Brightwall Book Club
30 Collect all 30 rare books for the Brightwall Academy.

Digger
15 Dig up 50 items.

We Need Guns, Lots Of Guns
20 Collect all 50 legendary weapons. They won’t all appear in your world, so trade with other Heroes!

Fashion Victim
20 Collect every item of clothing.

He’s a Woman. She’s a Man
5 Wear a full set of clothing intended for the opposite sex.

Dye Hippie, Dye
5 Dye each part of an outfit you’re wearing a different colour and have long hair.

Hand in Hand
5 Hold hands with someone.

Long Distance Relationship
10 Get married to another Xbox LIVE player.

Cross-Dimensional Conception
10 Have a child with another Xbox LIVE player.

Online Merger
10 Enter into a business partnership with another Xbox LIVE player.

Barrel of Laughs
10 Kill 30 enemies with explosive barrels.

We Can Be Heroes 10 Earn 1,000 gold in henchman wages in another Hero’s world.

Kaboom!
10 Score 2000 on the Mourningwood Fort mortar game.

Lute Hero Tour
10 Play in each town as a 5 star lute player.

Touched By A Hero 10 Use touch expressions to interact with 20 different people.

Popularity Contest
15 Make 20 Friends.

Remodelling
10 Remodel 5 different houses by changing the furniture.

Magnate Personality
50 Build a property empire worth 2,000,000 gold.

Crime Spree
10 Get a 15,000 gold bounty placed on your head.

Henry VIII
10 As ruler of Albion, get married 6 times and kill 2 of your spouses.

Chest Grandmaster
40 Unlock all of the chests on the Road To Rule.

Tough Love
10 Save the maximum amount of Albion citizens.

Adopt Or Die
5 Adopt a child.

Lara Croft and the Guardian of Light lendir í næstu viku á PS3 og PC, skortir netspilun til að byrja með

lara-croft-and-the-guardian-of-light

Nú í lok september kemur út nýjasta ævintýrið með okkar ástkæru vinkonu, Löru Croft á PS3 og PC þar sem hún fer með aðahlutverkið í nýjum Tomb Raider leik sem hefur heldur betur tekið nýja stefnu að þessu sinni. Í stað þess að spilendur fá að upplifa leikinn sem þriðju persónu skotleik að þá stýra þeir Löru að ofan verðu sem gefur leiknum nýtt útlit og flokkast nú undir sem hlutverkaleikur.

Nýja spilun leiksins bíður ekki aðeins upp á nýtt útlit, heldur verður hægt að spila tveir saman í gegnum leikinn þar sem annar spilari mun fara með hlutverk Totec sem Lara hittir í för sinni. Spilendur munu þurfa að glíma við alls kyns þrautir sem verða í vegi fyrir þeim og eru þeir neyddir til þess  að vinna saman til þess að komast áleiðis í leiknum.

Hins vegar bárust þær sorgar fréttir í dag frá Crystal Dynamics, hönnuðum leiksins að PS3 og PC útgáfurnar munu ekki innihalda netspilun til að byrja með. Það gerir það að verkum að þú munt ekki geta boðið vini þínum að spila með þér í gegnum netspilun leiksins. Þeir sem hyggjast kaupa þessar útgáfur verða því miður að bíða örlítið lengur þar til að þeir gefa út nýja uppfærlsu fyrir leikinn sem kemur út síðar á þessu ári.

Lara Croft and the Guardian of Light lítur nokkuð vel út og hefur fengið góða dóma hingað til. Leikurinn er nú þegar fáanlegur í gegnum Xbox Live verslunina og verður einnig fáanlegur á PSN og Steam þann 28. september næstkomandi.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Football Manager 2011 kemur út 5. Nóvember á PC/Mac og PSP

4882397606_3c104ff604_b

SEGA og Sports Interactive hafa staðfest að fótboltaleikurinn sem ber ábyrgð á meiri töpuðum vinnustundum/óskiluðum skólaverkefnum/ómættum stefnumótum og loforðum er að koma út þann 5. Nóvember fyrir PC/Mac og Sony PSP.

We are delighted to be able to confirm the UK release dates for both Football Manager 2011 and Football Manager Handheld 2011 of November 5th 2010.

We expect release dates in all other territories to be similar, and there will be a thread on the forums where any territory release dates that will be different will be able to be found once they are confirmed.

Eins og áður þá er búist við að demó af leiknum komi stuttu áður sem verður hægt að spila hálft tímabil og hefur það ávallt verið góður mælikvarði á leiknum og fullkomið til að koma fótboltaáhugafólkinu í gírinn fyrir leikinn sem býður uppá óendalega möguleika að spila með lið allt frá Leikni til Manchester United til Brisbaine Roar í Ástralíu.

Hérna eru nokkur skjáskot úr PC/Mac útgáfunni.

4881781785_97de88c4c5_b

4881782601_79c76519f7_b

4882390292_3b1675d3c2_b

Kv.
GameTíví

SingStar: Dance lagalistinn gefinn út

SingStarDance-boxshot_uk_large

Playstation Bloggið er búið að svipta hulunni af loka lagalistanum fyrir SingStar Dance, leikurinn mun styðja nýju Move tækni Sony og innihalds tónlist frá listanmönnum eins og Jackson 5, N Sync, Blondie, Black Eyed Peas, Jamiroquai, OutKast, Lady GaGa ofl.

SingStarDance-4994282375_ae97bb89c9

Lagalistinn í heild sinni:

  • *N Sync – Bye Bye Bye
  • Black Eyed Peas – Shut Up
  • Blondie – Heart Of Glass
  • Chris Brown – With You
  • Cyndi Lauper – Girls Just Wanna Have Fun
  • Diana Ross and The Supremes – Baby Love
  • Gloria Gaynor – I Will Survive
  • Gossip – Standing In The Way Of Control
  • Gwen Stefani – What You Waiting For?
  • Jamiroquai – Cosmic Girl
  • KC & The Sunshine Band – That’s The Way (I Like It)
  • Kid Cudi vs Crookers – Day ‘N’ Nite
  • Kool And The Gang – Celebration
  • La Roux – Bulletproof
  • Lady Gaga – Poker Face
  • MC Hammer – U Can’t Touch This
  • New Kids On The Block – Hangin Tough
  • Outkast – Hey Ya!
  • Paula Abdul – Straight Up
  • Pitbull – I Know You Want Me (Calle Ocho)
  • Reel 2 Real feat. The Mad Stuntman – I Like To Move It
  • Ricky Martin – Living La Vida Loca
  • Run DMC vs Jason Nevins – It’s Like That
  • Salt N Pepa – Push It
  • Shaggy – Boombastic
  • Sir Mix A Lot – Baby Got Back
  • Soulja Boy – Crank That
  • The Backstreet Boys – Everybody (Backstreet’s Back)
  • The Jackson 5 – I Want You Back
  • The Pussycat Dolls – Don’t Cha

Í byrjun Nóvember verður hægt að grípa hljóðnemann eða Playstation Move hreyfipinnan, velja lag og reyna að slá í gegn.

Kv.
GameTíví

Playstation Move pinnin krufinn

500x_move1

Liðið á vefsíðunni iFixit hefur mjög gaman að rífa nýja og spennandi tækni í sundur og púsla saman aftur. Fyrir okkur sem erum ekki eins djörf, en höfum áhuga að sjá hvað er inní raftækjunum okkar er þessi vefsíða meiriháttar. Þarna er hægt að sjá allt frá Playstation 2, Xbox, iPhone 4, Atari 2600 ofl tæki. Ofan á allt þetta selja þeir síðan tól og tæki sem eru notuð í svona niðurrif.

500x_move2_01

Playstation Move hreyfiskynjarinn kom í búðir í síðustu viku og var ekki lengi ilmandi ferskur áður en hann var rifinn í frumeindir. Svo fyrir þá sem eru nýkomnir með nýjasta útspil Sony og langar að kynnast því nánar án þess að jarða ábyrgðina þá mælum við með þessum myndum og síðan á hoppa á vefsíðu þeirra og skoða nánar og önnur niðurrif hjá þeim.

Kv.
GameTíví

Heimild: Kotaku og iFixit

Mikki mús herjar á Wii með pensil í hendi í lok nóvember

epic-mickey-logo

Það er ekki í hverjum mánuði þar sem leikjaframleiðendur gefa út góða svo kallaða hopp og skopp leiki sem líta mjög svo spennandi út og eru vel þess virði að fjárfesta í. Hvað þá þegar þeir eru aðeins gefnir út á Nintendo Wii sem hefur haft það mjög erfitt síðustu árin þar sem marga góða leiki skortir á þá vél, sem hæfir harðkjarna leikjaunnendum.

Eitthvað virðist þó vera að birta til hjá Nintendo mönnum eftir sumarið, því núna í lok nóvember er væntanlegur splunkunýr Disney leikur þar sem sjálfur Mikki mús fer með aðalhlutverkið í leiknum Epic Mickey. Það sem hefur komið fram nú þegar lítur mjög vel út og verður fróðlegt að sjá hvernig Mikka tekst að bjarga Disney heiminum þar sem hann sjálfur olli miklum usla sem varð til þess alls kyns illmenni fóru á stjá í Disney heiminum.

Eins og titillinn segir er Epic Mickey væntanlegur hingað til Evrópu í lok nóvember og verður hann eingöngu gefinn út á Nintendo Wii.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
Game Tíví

PS3 fær 3D Blu-Ray stuðning 21. Sept

3D blu ray

Í næstu viku fær Playstation 3 uppfærslu sem bætir við 3D stuðning fyrir Blu Ray háskerpu myndir og er það hluti af uppfærslu 3.50 samkvæmt Sony.

3D leikjaspilun og myndir eru frekar nýtt á nálinni og magn efnis er takmarkað eins og er, stórir 3D myndatitlar eins og Avatar hafa seinkað og er ekki komin fastur tímarammi á hana strax. Myndir eins og Cloudy with a chance of Meatballs, Monster House og Monsters Vs. Aliens eru fáanlegar eins og er og mun hægt og rólega bætast við titlar í safnið á næstu mánuðum.

Þessi uppfærsla fyrir PS3 er vítamínsprauta fyrir 3D markaðinn þar sem að 38 Miljón PS3 véla eru í umferð og fer vaxandi.

panasonic_3d_plasma-560x420(2)

Væri ekki leiðinlegt að horfa á t.d Avatar á þessu tæki eða spila PS3 leiki í 3D :)

Það eina neikvæða sem er hægt að lesa úr þessari uppfærslu er að stuðningur fyrir BD-J Java staðalinn sem er notaður til að keyra ýmislegt aukaefni á Blu-Ray diskunum, aukaefni í gegnum netið, mynd í mynd ofl er ekki mögulegur á meðan horft er á mynd í 3D bara í gömlu góðu 2D tvívíddinni eins og er. Hvort að framleiðendur finni lausn á þessu eða dragi úr BD-J efni á diskum er erfitt að segja, vonum bara að það eigi þó bara þá við 3D útgáfur mynda og hafi engin áhrif á 2D útgáfur.

Uppfærslan kemur út 21. September og þarf bara að ræsa PS3 vélina fara í Networkd Update og leyfa henni að sækja uppfærsluna af netinu og setja upp til að byrja að geta notað þetta. Þið þurfið auðvitað að eiga nýtt 3D sjónvarp og eitthvað myndefni í 3D til að njóta hasarsins.

Kv,
GameTíví

Heimild: Eurogamer.net