
Í líklega einni af sérstæðari fréttum af Íslenska leiknum Eve-Online gerðist sá atburður nýlega í leiknum að leikmenn í Method Of Destruction fyrirtækinu innan leiksins rákust á stakan leikmann í Jita sólkerfinu og þeir skönnuðu geymslur skipsins og sáu það innihélt 74 PLEX. Fyrir þá sem ekki vita er PLEX kerfi leiksins sem gefur þeim sem spila leikinn tækifæri að nota peninga innan leiksins til að kaupa tíma til að spila hann. 1 PLEX eru 30 dagar af Eve-Online tíma, svo 74= 6 og hálft ár af tíma til að spila leikinn! Til að gera sér grein fyrir peningar upphæðinni að baki þessu erum við að tala um að 1.295 Dollarar gera 152.810 Kr. sem einhver eyddi í þennan tíma og tapaði. Innan leiksin kostar 74 PLEX um 22 Biljón ISK sem er rosaleg upphæð.
Þeir sem réðust á skipið héldu að þeir hefðu líklega komist í stóra pottinn og réðust á skipið, þar sem að oft þegar þú sprengir skip í ræmur er hægt að fara í gegnum flakið og hirða það sem skipið flutti. Þegar skip er sprengt í loft, reiknar Eve leikurinn líkurnar á því hvað lifir það af og er hægt að hirða. Í þessu tilfelli tapaði bæði sá sem var að flytja PLEX-ið og sá sem skaut hann niður þar sem að öll 74 PLEX eyðilögðust í sprengingunni!
Sá eini sem í raun græddi ef svo má segja er hið Íslenska fyrirtæki CCP sem fékk yfir 150 þúsund krónur í kassan sama sem frítt.
Þessi frétt en og aftur undirstrikar hve sérstakur heimur CCP hefur náð að skapa með Eve-Online og hve hættulegt getur verið að spila hann og tapið getur orðið stórt ef að fólk passar sig ekki. Það er augljóst að sá sem flutti PLEX-ið hefði átt að pæla betur í þessu og sá sem skaut hann niður hlýtur að líða eins og hafa unnið þann stóra í lóttóinu og síðan fatta að hann gleymdi að fara með happa miðan sinn á sölustaðinn eins og hann hafði gert vikulega í mörg ár
Það á eftir að koma í ljós hvað CCP gerir með þetta, hvort að þeir gefi peningana til góðgerðarmála eða annað. Ein hugmynd sem hefur verið nefnd er að þeir gefi árlega upphæðirnar sem tapast á PLEX til góðgerðarmála.
Hérna er hægt að sjá nánari mynd af þessu og hvað skeði.
Kv.
GameTíví
Heimild: Massively.com











Nýleg comment