- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Voru PC spilendur of góðir fyrir leikjatölvunotendur?

pvc

Fyrir nokkrum árum var eitt heitasta umræðuefnið um hvort PC notendur gætu keppt við Xbox notendur yfir netþjónustu Microsoft. Það hefur ávallt verið mikill áhugi á meðal leikjaunnenda að leyfa hefðbundnum leikjatölvunotendum að keppa á móti PC eigendum, og á endanum var einn leikur sem leyfði það, Shadowrun. Því miður naut hann ekki mikilla vinsælda og ekki voru gagnrýnendur spenntir fyrir honum.

Nú hefur skotist upp orðrómur um að ástæðan fyrir því að þetta gerðist aldrei var vegna þess að bestu leikjatölvuspilendur áttu ekki roð í venjulega PC spilendur. Þessu heldur Rahul Sood, stofnandi Voodoo PC og eins yfirmanns tæknimála Hewlett-Packard, fram á bloggi sínu.

“Fyrir mörgum mánuðum var undir hulunni verkefni hjá Microsoft,” segir Sood. ”Markmiðið var að brúa bilið á milli Xbox spilenda og PC spilenda svo þeir gætu keppt á móti hvorum öðrum í leikjum á borð við Unreal og Gears of War.” Var þetta víst allt hluti af herkænsku Microsoft fyrir Xbox Live. “Ég hef eftir áreiðanlegum heimildum að þeir hafi fengið bestu leikjatölvuspilendur í heimi og att þeim gegn venjulegum PC notendum… og getið hvað gerðist?” Soot segir að þegar leikjatölvunotendurnir með stýripinnana sína kepptu á móti PC notendum með lyklaborð og mús hafi þeim verið rústað trekk í trekk. Svo mikið, í raun, að “þetta hefði verið skammarlegt fyrir Xbox teymið hjá Microsoft almennt ef þetta hefði farið í loftið. Var það ástæðan fyrir því hvers vegna þeir hættu við það?”

Það hefur oft verið rígur á milli þessara tveggja hópa og eru margir PC notendur sem gætu ekki ímyndað sér annað en að spila skotleiki með lyklaborði og mús, alveg eins og það eru notendur sem gætu ekki hugsað sér að spila skotleiki nema með stýripinna sér í hönd. Þar sem það virðist ekki vera neitt að fara að gerast í þessum málum er erfitt að segja til um hvort þetta sé rétt. Vonandi fáum við einhvern tímann botn í málið.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

4 Responses to “Voru PC spilendur of góðir fyrir leikjatölvunotendur?”


  1. 1 agust

    Sko eg spila ekki 1 persónuleiki í PS 3 hjá mér. kanski vegna þess að ég get ekkert í því að spila með stírispinna i 1 persónu leikjum,ég a t.d Kill Zone 2 í PS3 sem er talinn með betri leikjum 2009 i PS3 en eg nenni ekki að spila hann þvi eg virðist bara ekki hitta neitt,, að snipa i PS3 er hræðilegt!! og eg hef horft a mjög mikið af gameplay videos a youtube ur Call of Duty Modernwarfare 2 og þar tala þeir um aim assist en eg kalla það auto aim.. þú þarft að vera virkilega góður i PC i MW2 til að getað quick scopað nema i X-baox og PS3 þa þarftu bara að vera með gaurinn i crossinum og hann fær kúlu i sig. mer finst X-box og PS3 spilara playja sig alltof hatt i smbandi við skills i 1 personu skotleikjum,það er ekkert skill við að lata tölvuna gera 80% af hitnini hja þer.. ef eg er ekki með miðið a gaurnum þa deyr hann ekki i PC en Console þa drepst hann..btw eg a 40 leiki i PS3 þannig að eg veit hvað eg er að tala um :)

  2. 2 Eirikur

    Bilaleikir, íþróttaleikir og svona hopp og skopp leikir eins og jack and dexter eiga heima á leikjtölvum en skotleikir og herkænskuleikir á PC. Eða þa’ finnst mér

  3. 3 Bjarni

    samála þér Eiriku mér finst það líka að fps leikir og herkænskuleikir eiga heima á PC og bíllaleikir, íþróttaleikir og svoleiðis leikir. Og með quick scipið í MW2 það er erfit að quick scopa í PC ég spila MW2 og mér finst það mjög erfit að quick scopa eisvo maður sér mann gera.

  4. 4 sigurpáll

    það tekur dálítinn tíma til að læra að quick scopa í pc en það er hægt að taka aim assist af í ps3 og það er ekki sem verst að spila FPS og herkænskuleiki á ps3 maður venst því eftir smá tíma ég hef T.D. spilað fps og strategy á PC síðan ég var 6 ára svo keypti ég mér ps3 og það var erfitt fyrst á ps3 en svo varð það léttara og ég er ekki í neinum málum með að spila á PC

Comments are currently closed.