- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for July, 2010

Page 3 of 3

RAGE leikur ID software vinnur til verðlauna hjá IGN og Gametrailers

1Rage

Svo virðist vera að nýji leikur ID Software FPS/RPG leikurinn RAGE frá hönnuðum Wolfenstein, Quake og Doom hafi farið vel í fólk á ný afstöðunu E3 í Los Angeles. Leikurinn fékk besti skotleikurinn og besti leikur frá IGN, síðan fékk hann besti Xbox 360, PC, PS3 og leikur sýningarinnar frá Gametrailers sem verður að segjast ótrúlegur árangur miðað við samkeppnina sem leikurinn átti í.

Leikurinn gerist eftir harmfarir þar sem að lofsteinn skellur á plánetunni og segir frá manneskju sem hafði verið settur í djúpsvefn ásamt öðrum úr fortíðinni sem þarf að lifa af og komast af í þessum nýja heimi sem er fullur of glæpagengjum, stökkbreyttingum og hasar. Þar sem að þetta er ID leikur er nóg um byssur og sprengingar, en það sem kemur á óvart er að leikurinn gerist í stórum opnum heimi í stað dimms og drungalegs gangs eins og var svo algengt í eldri leikjum og minnir á vissu leyti á Fallout 3 og Borderlands og virðist vera skemmtileg blanda af báðu með fullt af öðrum eins og t.d faratækjum sem er hægt að keyra um leikinn á og berjast í eða keppa á.

Leikurinn keyrir á ID Tech 5 sem er glæný grafíkvél frá ID og eru þeir þekktir fyrir að skara fram í tækni á þessum sviðum.

Leikurinn er áætlaður árið 2011 á PC, Xbox 360 og PS3 og við mælum með að skoða vídeóin fyrir neðan frá Gametrailers þar sem að Tom Willits frá ID sýnir leikinn keyrandi á Xbox 360 og við verðum að segja að hann lítur meiriháttar út og kom okkur skemmtilega á óvart á E3.

Kveðja
GameTíví.

Heimild: IGN og Gametrailers

Glænýr inFamous 2 trailer

3223.Infamous2cover610

Á vef Gametrailers má finna nýjan trailer fyrir sandbox leikinn inFamous 2 sem mun koma út á PS3 á næsta ári og fylgja eftir fyrri leiknum sem kom skemtilega á óvart og varð fljótt af einni af betri seríunni sem var í boði á Playstation.

Í nýja trailernum er eingöngu sýnt úr raunverulegri spilun og gefur það góða hugmynd um hvað leikjaunnendur eiga von á næsta ári. Það sem sést er að aðalpersónan Cole heldur eftir kröftunum sínum frá fyrri leik og virðist hafa orðið sterkari, sem er kannski gott þar sem að óvinirnir virðast vera talsvert erfiðari í þetta sinn. Við hérna á síðunni vorum mjög heillaðir af fyrsta leiknum og getum ekki beðið eftir að hlaupa um borgina á ný, klifrandi upp húsveggi og berjast við óþokkana og auðvitað að sjá hvert sagan fer næst.

Klárlega leikur til að hafa augun á fyrir 2011.

Kveðja.
GameTíví

Heimild: Gametrailers