
Sá leikur sem nær allir Nintendo aðdáendur bíða eftir er án nokkurs vafa The Legend of Zelda: Skyward Sword sem var fyrst kynntur á E3 sýningunni fyrr í sumar. Nokkur ár eru liðin síðan við bjuggumst við að sjá fyrstu brot úr leiknum og en loks kom að því í síðasta mánuði þegar sjálfur leikjameistarinn Shigeru Miyamoto sýndi okkur hvernig leikurinn myndi nota Wii fjarstýringuna á mjög svo skemmtilegan hátt með Wii MotionPlus viðbótunum.
Loksins höfum við fengið að sjá brot úr gripnum, en hvað mun líða langur tími þar til við fáum meistaraverkið í hendurnar?
Nintendo, eins og venjan er, vildu ekki gefa upp neina nákvæma dagsetningu þegar þeir fyrst kynntu leikinn. Í stað þess gáfu þeir það upp að leikurinn kæmi á næsta ári. Aðal hönnuður Zelda leikjanna, Eiji Aonuma hefur látið þau orð falla að þeir stefni á að gefa leikinn út snemma árið 2011.
Við erum því miður ekki alveg klárir á því hvað Nintendo menn kalla snemmt, vonandi fyrir næsta sumar. Eitt er þó víst, að þegar leikurinn mun loksins fá að láta ljós sitt skína á Nintendo Wii, þá munum við allir hugsa til þeirra tíma þar sem við biðum óðreifafullir eftir þessum glæsta grip, hvað öll þessi bið var vel þess virði!
Heimildir: 1Up
Kveðja,
Game Tíví



0 Responses to “Nintendo stefna á að gefa út Zelda: Skyward Sword snemma á næsta ári”