- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Blizzard gefa út síðustu stiklu úr StarCraft II fyrir komu leiksins

starcraft-2-17621

Á næstkomandi þriðjudag kemur út leikur sem við höfum öll beðið eftir í mörg, mörg ár. Við erum að sjálfsögðu að tala um StarCraft II sem hefur verið í framleiðslu fjölda ára saman hjá Blizzard og fer loksins að líta dagsins ljós.

Í gær gáfu Blizzard út glænýja stiklu í tilefni komu leiksins sem gefur okkur smá innlit hvað koma skal í þessum magnaða leik. Stiklan heitir á því skemmtilega nafni “Ghost of the Past” sem ætti að vera nokkuð kunnugt fyrir þá sem hafa spilað í gegnum StarCraft söguna frá upphafi.

Hér“ getur þú séð hvort tölvan þín ráði við StarCraft II eða ekki. Ef svarið er nei, að þá er klárlega kominn tími á smá uppfærslur.

Eins og sjá má hér fyrir neðan lítur stiklan frábærlega vel út á alla vegu og ætti að ýta undir öllum áhugamönnum herkænskuleikja að verða sér um gripinn, því hann er klárlega ómissandi í safnið!

Horfið og njótið!

Kveðja,
Game Tíví

0 Responses to “Blizzard gefa út síðustu stiklu úr StarCraft II fyrir komu leiksins”


Comments are currently closed.