Þótt þetta hljómi frekar ótrúverðugt þá er samt mikill sannleikur í því að Maryland-fylki í Bandaríkjunum hafi ákveðið að nefna 21. september á þessu ári “Sid Meier’s Civilization V daginn.” Eins og sumir vita er Firaxis, fyrirtækið sem færði okkur hina guðdómlegu Civilization leiki, staðsett í Baltimore sýslu í Maryland, og hefur verið þar frá 1982.
Nintendo hefur tilkynnt að verð og útgáfudagur næstu kynslóðar lófaleikjatölva, Nintendo 3DS, verði afhjúpuð eftir 2 mánuði, nánar sagt 29, september næstkomandi.
Þegar Nintendo sýndi vélina á E3 neituðu þeir að losa um málbeinið hvað þessi tvö mikilvægu atriði varðar, en það er þó gott að vita að við fáum að vita það einhvern tímann á næstunni.
Þess má geta að svipað var gert fyrir Nintendo DS og Nintendo Wii, en þá afhúpuðu þeir einmitt verðin og útgáfudagana í september, og viti menn, vélarnar komu á markað sama ár, í nóvember/desember. Getum við búist við því að spila Nintendo 3DS á þessu ári? Hver veit?
Skotleikurinn SOCOM 4 sem PS3 eigendur er búnir að vera spenntir fyrir síðan á E3 í Júní og átti upprunalega að koma út í vetur, hefur verið seinkað til ársins 2011. Zipper Interactive hönnuðir leiksins sendu út frá sér tilkynningu sem staðfesti þetta og ræddi um þeirra ósk að gera leikinn sem bestan og gefa honum nægan tíma í vinnslu sem er ekki vitlaust þar sem að leikurinn á að vera einn af harðari leikjunum sem mun nota Move hreyfikerfi Sony ásamt því að geta spilað leikinn með Dualshock 3 pinna eins og venjulega.
Zipper lofar nægum fréttum á næstu mánuðum á bloggi sínu sem má finna hérna.
Þeir lofa að biðin sé þess virði og við erum spenntir að sjá meira af þessum leik.
StarCraft II: Wings of Liberty er að koma út í kvöld og eru spenntir leikjaspilarar að nálgast leikinn í tölvuleikjabúðum landsins í kvöld og fara spenntir heim með annað hvort venjulegu útgáfuna eða flottu úber útgáfuna sem við höfum minnst hérna á síðunni áður.
Það er talið að allt í 5 Miljón eintök af leiknum gætu selst strax í byrjun um víðan heim og álagið á Battle.net kerfið nýja og endurbætta sem fer í gangið á sama tíma og leikurinn ætti að verða talsvert, svo það gæti þurft að sýna smá þolinmæði ef að álagið er mikið. Til samanburðar seldust 3.8 Miljón eintök af GTA IV á fyrsta degi og Call of Duty: Modern Warfare 2 seldist í 4.7 Miljón eintökum á degi 1 sem er ótrúlegt, svo spurning hvað StarCraft II mun gera?
Suður-Kórea og StarCraft er sérstak fyrirbæri og nýtur leikurinn þar gríðalegara vinsældra þrátt fyrir að vera þetta gamall, ef að einhver tímann ætti að gefa frí í vinnunni þarna útaf tölvuleik er það ekki klárlega núna?
Á meðan það er beðið eftir að Battle.net netþjónarnir fara í loftið á miðnætti og leikurinn er að hlaðast inní vélina er ekki við hæfi að kíkja á fínt kynningar myndband sem fer í gegnum einmenningspart leiksins aðeins og hvað verður hægt að gera?
Það verður gaman að heyra í ykkur GameTíví lesendur hvernig ykkur líst á leikinn hérna á síðunni eða á Facebook síðunni okkar.
Þegar ofhetjurnar úr DC-Universe vinna saman er ekkert sem getur stöðvað þau, eða þannig virðist það vera nánast alltaf.
Í tilefni komu MMO leiksins DC Universe Online hafa framleiðendurnir gefið út splunkunýja stiklu sem sýnir okkur þær afleiðingar ef ofurhetjunum tækist ekki að vinna vel saman. Ekkert getur stöðvað sjálfan Superman, eða svo héldum við en eftir að hafa horft á stikluna er ekki allt sem sýnist.
Það er virkilega skondið að horfa upp á ofurhetjunar mistakast og ef það gerðist myndi það líklega enda einhvern veginn svona:
Þegar kreppan var farin að skella á landið og peningarnir voru orðnir í skornum skammti fyrir leikjainnkaupum tókum við upp á því að birta ýmsar vefslóðir sem leiddu að fríum leikjum hér og þar, víða um veraldarvefinn. Leikirnir virtust misgóðir við fyrstu sýn og ef tími gafst til var spilun þeirra nokkuð skemmtileg, hvað varðar fría leiki á netinu.
Valve fyrirtækið, hönnuðir Half-Life seríunnar og Steam vefverslunina, hefur nú slegist í hóp meðal þeirra leikjaframleiðenda sem gefa út leiki algjörlega frítt, þér að kostnaðar lausu. Fyrir rúmri viku síðan gáfu þeir út endurgerða útgáfu af leiknum Alien Swarm sem nýtur sín mjög vel í nýju umhverfi, nýrri grafík og best af öllu, mun betri vopn.
Alien Swarm bíður upp á nýja herferð sem skartar sex verkefnum og allt að 2-4 spilendur geta spilað leikinn saman í “co-op” sem er stærsti kostur leiksins. Eftir hvert verkefni, hvort sem þú tapar eða sigrar, hlaðar þú inn “experience points” sem hækkar þig um “level” og gefur þér aðgang að nýjum vopnum til að þurrka út þær geimverur sem verða í vegi fyrir þér. Einnig skartar leikurinn 64 afrek sem hægt er að ná með því að spila í gegnum leikinn og lengir það spilun leiksins töluvert ef menn sækjast eftir því að ná sem flestum.
Það er óhætt að mæla með Alien Swarm og þykir leikurinn mjög góður, við mælum hiklaust með honum.
Það eina sem þú þarft að eiga er Steam notanda sem þú getur sótt með því að smella “hér“, þá ættir þú að geta hlaðað niður leiknum strax að því loknu!
Við hérna hjá GameTíví erum að telja niður tímana í þann 27.Júlí þegar dýrið StarCraft II kemur í búðir 12 árum eftir að StarCraft I kom út! Það í tölvubransanum er gríðalegur tími og svo mikið hefur gerst síðan. Heilu kynslóðir leikjavéla og tækninýjunga hefur komið fram og horfið aftur. Blizzard fyrirtækinu til stuðnings, hafa þeir reyndar ekki verið nema að vinna að StarCraft II að viti síðan 2005 og var leikurinn staðfestur fyrst árið 2007 á StarCraft kynningu í Suður-Kóreu þar sem að leikjaserían nýtur gríðalegrar hylli.
Þegar leikurinn kemur loksins í hillur búða eftir helgi verður fyrir flesta hægt að velja á milli þess að fá leikinn bara stakann eða í ofur flottri Collectors Edition pakka sem minnir á eldri pakkana fyrir World of WarCraft fyrir þá sem hafa séð þau stóru dýr. Blizzard er ekki eitt af þessum fyrirtækjum sem gerir eitthvað hálfa leiðina. Svo okkur langaði að deila með ykkur Youtube vídeói sem við rákumst á Þýskri síðu og þó að við séum ekki sleipir í tungumálinu skiljum við vel Nörda tungumálið og eigum auðvellt með að dáðst af pakkanum og innihaldinu. Eins og áður er þetta ekki gefins og er þessi pakki á 100$ í Bandaríkjunum og leikurinn sjálfur á 60$. Engin verð hafa verið 100% nelgd niður hérna heima, en Elko er með leikinn stakann og Collectors á forsölu á vef sínum. Það ætti að skýrast eftir helgina hvað hin fyrirtækin gera í sambandi við verð ofl.
Það helsta sem má nefna í pakkanum er; DVD diskur um gerð leiksins, 176 bls bók með myndum úr hönnum leiksins, 2GB USB flash kort í formi dog tag frá Jim Raynor og kemur með StarCraft I og Brood War aukapakkanum, síðan er CD geisladiskur með 14 þéttum lögum úr leiknum ásamt aukalögum, síðan StarCraft #O teiknimyndasaga sem er forveri teiknimyndablaða sem er verið að vinna að og að lokum auka Battle.net efni sem er eingöngu fyrir þessa útgáfu.
What follows is a checklist for the Collector’s Edition contents, as provided by Blizzard:
– The Art of StarCraft II: Wings of Liberty, a 176-page book featuring artwork from the game
– An exclusive 2GB USB flash drive replica of Jim Raynor’s dog tag, which comes preloaded with the original StarCraft and the StarCraft: Brood War(R) expansion set
– A behind-the-scenes DVD containing over an hour of developer interviews, cinematics with director’s commentary, and more
– The official StarCraft II: Wings of Liberty soundtrack CD, containing 14 epic tracks from the game along with exclusive bonus tracks
– StarCraft comic book issue #0, a prequel to the comic series
– A World of Warcraft(R) mini Thor in-game pet that can be applied to all World of Warcraft characters on a single Battle.net account
– Exclusive Battle.net downloadable content, including special portraits for your Battle.net profile, decals to customize your units in-game, and a visually unique version of the terran Thor unit
Fyrir nokkrum árum var eitt heitasta umræðuefnið um hvort PC notendur gætu keppt við Xbox notendur yfir netþjónustu Microsoft. Það hefur ávallt verið mikill áhugi á meðal leikjaunnenda að leyfa hefðbundnum leikjatölvunotendum að keppa á móti PC eigendum, og á endanum var einn leikur sem leyfði það, Shadowrun. Því miður naut hann ekki mikilla vinsælda og ekki voru gagnrýnendur spenntir fyrir honum.
Nú hefur skotist upp orðrómur um að ástæðan fyrir því að þetta gerðist aldrei var vegna þess að bestu leikjatölvuspilendur áttu ekki roð í venjulega PC spilendur. Þessu heldur Rahul Sood, stofnandi Voodoo PC og eins yfirmanns tæknimála Hewlett-Packard, fram á bloggi sínu.
“Fyrir mörgum mánuðum var undir hulunni verkefni hjá Microsoft,” segir Sood. ”Markmiðið var að brúa bilið á milli Xbox spilenda og PC spilenda svo þeir gætu keppt á móti hvorum öðrum í leikjum á borð við Unreal og Gears of War.” Var þetta víst allt hluti af herkænsku Microsoft fyrir Xbox Live. “Ég hef eftir áreiðanlegum heimildum að þeir hafi fengið bestu leikjatölvuspilendur í heimi og att þeim gegn venjulegum PC notendum… og getið hvað gerðist?” Soot segir að þegar leikjatölvunotendurnir með stýripinnana sína kepptu á móti PC notendum með lyklaborð og mús hafi þeim verið rústað trekk í trekk. Svo mikið, í raun, að “þetta hefði verið skammarlegt fyrir Xbox teymið hjá Microsoft almennt ef þetta hefði farið í loftið. Var það ástæðan fyrir því hvers vegna þeir hættu við það?”
Það hefur oft verið rígur á milli þessara tveggja hópa og eru margir PC notendur sem gætu ekki ímyndað sér annað en að spila skotleiki með lyklaborði og mús, alveg eins og það eru notendur sem gætu ekki hugsað sér að spila skotleiki nema með stýripinna sér í hönd. Þar sem það virðist ekki vera neitt að fara að gerast í þessum málum er erfitt að segja til um hvort þetta sé rétt. Vonandi fáum við einhvern tímann botn í málið.
Dead Rising 2: Case Zero er leikur og hálfgert demó sem mun fylla uppí bilið á milli fyrri leiksins og framhaldsins og hefur verið dagsett þann 31. Ágúst eingöngu fyrir Xbox 360 og var það staðfest af Capcom í dag.
Leikurinn sem verður eingöngu hægt að fá í gegnum netið mun kosta 400Ms punkta eða 5$ sem er rétt yfir 600 Krónur á gengi dagsins í dag. í Case Zero er fólk kynnt fyrir hetju Dead Rising 2 leiksins honum Chuck Greene. Keiji Inafune yfirmaður rannsóknardeildar Capcom og framleiðandi Dead Rising 2 talar um að Capcom muni ekkert græða á þessum viðskiptum og setti hann þetta verð á móti hugmyndum Capcom fyrirtækisins sjálfs.
“We’re not making any money on this,” Inafune said during today’s Comic-Con panel for the game. “I went against the company’s wishes and went for the 400 MSP price point”
“With Dead Rising 2: CASE ZERO we had two goals: provide newcomers with an easy point of entry to the Dead Rising universe, and give fans of the series an insight into what took place after Frank West survived the outbreak at the Willamette Mall,” Inafune said in a prepared statement. “We have certainly achieved both of these ambitions but I am equally pleased that we are able to give gamers so much unique and entertaining content at such a great price.”
Dead Rising 2: Case Zero gerist 2 árum eftir atburði hins upprunalega Dead Rising og 3 árum áður en Dead Rising 2 gerist. Í forsögunni er Greene fastur með dóttur sinni Katey í eyðimerkurbænum Still Greek sem er uppfullur af Zombie kvikyndum sem líklega langar ekkert frekar en að éta þau.
Í forsögunni munu leikmenn fá aðgang af vopnasmíðahæfileikum Greene’s sem á eftir að sjá fyrir alvöru síðan í Dead Rising 2. Fólk sem kaupir Case Zero mun geta fært persónurnar sínar yfir í lokaútgáfu leiksins og verður hægt að byrja þá í lvl.5 ásamt því að vinna sér inn aðra bónusa sem vonandi koma að góðum notum í leiknum sjálfum.
Ekkert er staðfest um að Dead Rising 2: Case Zero muni kom út á PC eða PS3.
Á næstkomandi þriðjudag kemur út leikur sem við höfum öll beðið eftir í mörg, mörg ár. Við erum að sjálfsögðu að tala um StarCraft II sem hefur verið í framleiðslu fjölda ára saman hjá Blizzard og fer loksins að líta dagsins ljós.
Í gær gáfu Blizzard út glænýja stiklu í tilefni komu leiksins sem gefur okkur smá innlit hvað koma skal í þessum magnaða leik. Stiklan heitir á því skemmtilega nafni “Ghost of the Past” sem ætti að vera nokkuð kunnugt fyrir þá sem hafa spilað í gegnum StarCraft söguna frá upphafi.
„Hér“ getur þú séð hvort tölvan þín ráði við StarCraft II eða ekki. Ef svarið er nei, að þá er klárlega kominn tími á smá uppfærslur.
Eins og sjá má hér fyrir neðan lítur stiklan frábærlega vel út á alla vegu og ætti að ýta undir öllum áhugamönnum herkænskuleikja að verða sér um gripinn, því hann er klárlega ómissandi í safnið!
Nýleg comment