
Þeir eru ábyggilega ófáir tölvuleikja unnendurnir sem bíða spenntir yfir næsta leik frá Valve, Portal 2 sem var meðal annars sýndur á E3 sýningunni sem fór fram í síðustu viku. Leikurinn var formlega kynntur á blaðamanna fundi hjá Sony þar sem sjálfur Gabe Newell, stofnandi Valve mætti á svæðið og sýndi örstutta stiklu sem sýnir hvað koma skal í leiknum.
Í gærkvöldi afhjúpuðu þeir hins vegar fyrsta myndbandið sem sýnir úr spilun leiksins. Í henni kynna þeir fyrir okkur nýja persónu, hann Wheatley sem minnir á talandi auga í líki vélmennis. Ef horft er á myndbandið hér fyrir neðan lítur út fyrir að þeir muni ná að halda sama andrúmslofti sem fyrri leikurinn bar með sér í för, sem gerði einmitt Portal mjög frábrugðin örðum leikjum.
Portal 2 er svo væntanlegur einhvern tíman á næsta ári fyrir PC, Xbox 360 og PS3.
Kveðja,
Game Tíví



elska bláa augn vélmenið aka Wheatley
you monster!