- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Loksins komin góð not fyrir Tony Hawk RIDE?

tonyhawk_grind_576x324

Tony Hawk RIDE kom út í fyrra (þó ekki til Íslands sem betur fer líklega) og fékk skelfilega dóma og slæma umfjöllum almennt, bæði útfrá spilun leiksins og hvernig stjórnkerfið var annað hvort of auðvellt eða það erfitt að manni langaði að kasta brettinu sem fylgdi með leiknum (og kostaði slatta) beint útum næsta glugga!

Þegar leikurinn var úthugsaður átti þetta að vera leikur með byltingarkendur stjórnkerfi þar sem að í stað fjarstýringar til að stjórna persónunni, varstu með bretti sem þú stóðst á og gerðir öll flottu trixin. Hljómar vel á pappír en því miður mistókst skelfilega í framkvæmd og seldist leikirnn ekki vel. Eins og staðan er í dag er leikurinn með 4.5 í einkun hjá Metacritic. Sögur segja að þeir séu að vinna að framhaldi leiksins og við vonum að þeir gefi sér góðan tíma að vanda sig í þetta sinn.

Hvað gera menn þegar þeir eru búnir að kaupa fjarstýringu með slökum leik og hún virkar í engum öðrum leik sem þú átt? Auðvitað notarðu borvél og býrð til raunverulegt hjólabretti eins og gaurarnir í þessu Youtube vídeói sem við hérna á GameTíví rákumst á leið okkar um netið að skoða tölvuleiki.

Endilega kíkið á

Kv.
GameTíví

0 Responses to “Loksins komin góð not fyrir Tony Hawk RIDE?”


Comments are currently closed.