
Kynning:
Alpha Protocol er nýr leikur frá hinu vel þekkta RPG stúdíói Obsidian Entertainment sem hefur gert leiki eins og Star Wars: Knights of the Old Republic II, Neverwinter Nights 2 ásamt 2 aukapakka og eru að vinna að Fallout: New Vegas sem kemur í haust og að lokum Dungeon Siege III sem kemur út 2011 á PC, Xbox 360 og PS3.
Semsagt nóg að gera hjá þessu stúdói í augnablikinu. Stóra spurningin er síðan hvernig tekst þeim upp með nýja leik sinn Alpha Protocol sem er nýlega komin í búðir á PC, PS3 og Xbox 360 og er RPG njósnaleikur þar sem að áhrif frá Jack Bauer úr 24 þáttunum, James Bond of njósnaranum og síðan Jason Bourne ofutöffaranum svífa öll yfir í leiknum og eiga þau samkvæmt Obsidian að gefa leikmönnum valkostina til að spila leikinn eftir sínu höfði.
Þú velur hvaða leið þú ferð, hvað þú segir og hvort að þú hleypur inn með allar byssur á lofti eða laumast inn bakdyramegin og tekur rafmagnið af plássinu og laumast í gengum skuggana og brýtur nokkra hálsa eða bara laumast framhjá öllum í áttina að takmarki þínu.
Spurning er svo bara hvernig kemur þetta allt saman út?

Hin dularfulla SIS. Vinur eða óvinur?
Saga:
Þú spilar sem ofurnaglinn Micheal Thornton og bakgrunnur þinn og reynsla miðað við hvaða valkosti þú velur í byrjun leiksins. Er hann harður nagli sem hefur barist í stríðum um víða veröld? Er hann Spec-ops gaur sem er vanur að gera það sem venjulegum hermönnum er ekki ætlað? Er hann silkimjúkur kvennabósi sem notar tæknina og sjarmann til að koma sér áfram? Allt þetta og meira hefur áhrif á persónuna þína og í statta á karakternum þínum.
Hvaða valkosti sem þú velur í byrjun þá endar þú í höfuðstöðvum Alpha Protocol sem er leynileg deild innan Bandaríkjanna sem fæstir vita af, þessi deild sér um að gera þau verk sem enginn vill viðurkenna að séu framkvæmd af neinum.
Eins og í mörgum klassískum njósnamyndum fer ýmislegt úrskeyðis í fyrsta verkefni Michael Thorntons. Fer hann á eftir grunuðum hryðjuverkamanni í Arabíu og endar á að vera brenndur af sínu eigin fólki. Á flótta undan öllum löggæslum heimsins þarf hann að hafa sig allan við að sanna sakleysi sitt og komast af því hver stendur á bakvið plottið gegn honum og í leiðinni stöðva að þriðja heimstyrjöldin fari í gang.
Á leiðinni í gegnum söguna hittir Thornton margar persónur og bregðast þær mismunandi við hvernig valkosti þú velur í samtölunum. Ákveðnar persónur heillast af daðri, ákveðni, fagmennsku eða stundum bara smá kjafti. Allt hefur þetta mismunandi áhrif á fólk og það spilar inní hvort að þú getur gert óvinina að þínum bandamönnum eða ekki. Það getur munað mikið t.d að fá vopn, upplýsingar og aðstoð í sumum verkefnunum þegar þú hefur vingast við vopnasala borgarinnar. Það eru 13 mismunandi hópar sem þú getur unnið með eða á móti og safnað upplýsingum um. Allt frá CIA, G22, Al-Shamad, Kínverska leynilögreglan, VCI, NSB(arftaki KGB), Rússneska mafían ofl og öll hafa þau sín eigin takmörk.
En á móti kemur, hvað ertu tilbúin að ganga langt til að ná hefndum og er þér sama á hvaða hátt?

Hægt er að velja við hvert nýtt lvl. statta til að bæta sig og sérhæfa
Það sem mér fannst einna skemmtilegast við að spila í gegnum söguna var að mér fannst ég vera að hafa áhrif á hana og mínir valkostir höfðu eitthvað að segja, fólk gat dáið eða lifað útfrá hvað ég gerði. Leikurinn er mjög keimlíkur Mass Effect leik Bioware þegar að kemur að stíl og hvernig samtalskerfið virkað. Þú velur á milli 3-4 valkosta í samtölum og sérð ekki nákvæmlega hvað persóna þín segir heldur frekar stílinn, þegar er spilað í gegnum Recruit eða Veteran stillingarnar sem eru EKKI tengdar erfiðleikastillingunni sem slíkt þá opnast upp nýjir valkostir í samtölum. Ólíkt ME leiknum þá hefurðu takmarkaðan tíma til að velja hvað er sagt og setur það mann stundum í vanda þegar þú ert engan vegin viss um hvaða afleiðingar það getur haft og á spennandi augnablikum þar sem að allt er undir verður þetta bara enn erfiðara.
Umhverfi og spilun:
Leikurinn keyrir á Unreal 3 grafík vélinni sem hefur sést í svo mörgum leikjum í gegnum tíðina þar á meðal Mass Effect 1 og 2. Að mestu lítur leikurinn ágætlega út, en hann þjáist af því sem of margir Unreal leikir þjást af og það er “Texture poppin” sem þýðir að leikurinn þarf smá tíma til að hlaða sig inn, og getur það komið pínu asnalega út stundum.
Leikurinn fer víðsvegar um heiminn en gerist aðalega í Róm, Moskvu og Tapei og síðan í Bandaríkjunum. Í hverri borg er “safehouse” dulið frá Alpha Protocol sem Thornton dvelur í og er þetta hans griðarstaður til að safna upplýsingum frá vinum sem hann eignast, kaupa og selja vopn og upplýsingar. Einnig er hægt að breyta útliti hans og fötum hvenær sem er þarna.
Það sem er gott við leikinn er að þú hefur frelsi eftir fyrsta verkefnið að spila leikinn í þeirri röð sem þú villt og hvenær sem er á milli verkefna er hægt að hoppa frá Róm, Moskvu eða Tapei og tilbaka til tala við persónur eða taka aukaverkefni. Það er síðan gaman að sjá að persónur bregðast við þér síðar meir og kommenta á hluti sem þú hefur gert annar staðar í leiknum.
![17949AP_Screenshot_20090807_03[1][3] 17949AP_Screenshot_20090807_03[1][3]](http://gametivi.is/wp-content/uploads/2010/06/17949AP_Screenshot_20090807_0313-490x275.jpg)
Það getur verið mikilvægt að velja rétt þar sem að tíminn er ávallt naumur
Ending:
Það mun taka flesta sem spila leikinn frá svona 12-25+ tíma að spila leikinn í gegn. Það fer mikið eftir hvort að þú gefur þér nægan tíma að skoða allt og gera öll aukaverkefnin eða hvort að það er hlaupið í gegnum leikinn. Stíllinn líka hvernig er spilað hefur áhrif á þetta og þeir sem nota byssuna sem mest eru líklega fljótari að spila leikinn. Óháð hve langan tíma tók að klára leikinn í fyrsta sinn mæli ég með að spila hann aftur og spila á annan hátt. Það er ekki vitlaust að velja Recruit fyrst og síðan Veteran upp að fá fjölbreytta spilun, þar er síðan hægt að sérsníða persónuna meira. Kosturinn við Veteran er að þú byrjar í lvl.3.
Lokarorð:
Eftir að hafa spilað leikinn núna 2 sinnum og prufað mismunandi stíla að fara í gegnum leikinn fannst ég verða var við skemmtilegan mun og það var gaman að sjá söguna breytast útfrá valkostum sem ég tók.
Alpha Protocol er metnaðarfullur leikur gerður af þekktu leikjastúdíói sem reynir að gera leik í anda leikja eins og Mass Effect frá Bioware og á mörgum sviðum tekst bara vel upp, það sem dregur leikinn niður eru villur í leiknum, texture poppið og aðrir vankantar sem gáfu til kynna að leikurinn hefði mátt vera aðeins lengur inn í leikjargerðarofninum.
Á sama tíma er þetta leikur sem er auðvellt að detta inní og fyrirgefa vankantana hans þar sem að hitt er mjög skemmtilegt fyrir þá sem hafa gaman að RPG leikjum og vilja fá valkosti og sjá afleiðingar þeirra í leiknum. Hann er ekki fullkominn og kannski ekki fyrir alla, en eins og svo margt í lífinu ef þú ert tilbúin að horfa framhjá nokkrum vanköntum og kannski 1-2 vörtum þá leynist þarna mjög fínn leikur sem er vel þess virði að kíkja á og stytta sér stundirnar þangað til að Fallout: New Vegas skilar sér í vetur.
GameTíví einkun: 7 af 10 Mögulegum
Skrifað af: Bumbuliuz
© Sveinn A Gunnarsson
Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar.
Nýleg comment