- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


SEGA að kynna Shogun 2: Total var á E3?

total-war-logo

Samkvæmt frétt á Eurogamer er ýmislegt sem bendir til að SEGA og hið Ástralska fyrirtæki Creative Assembly séu að undirbúa Shogun 2: Total War sem er framhald af leik þeir gáfu út árið 2000 og var undanfari Total War seríunnar sem þeim hefur gengið svo vel með síðustu 10 árin.

Það styttist óðum í E3 sem á að byrja þann 15 og rúlla til 17 Júní. Í tilefni þess er ýmislegt að byrja að leka og fréttatilkynningar eiga stundum til að poppa upp óvæntara en útgáfufyrirtækin myndu oft vilja.

Með Shogun 2: Total War virðist þetta eimmit vera málið og dúkkuðu upp skjöl um leikinn á Tyrkneskri vefsíðu sem vísaði síðan í Kotaku. Samkvæmt þessu skjali ætla Creative Assembly að fara tilbaka til Japans og land Samurai stríðsmannana eftir að hafa verið á kafi í Napóleón tímabilinu síðustu 2-3 árin. Það heillar auðvitað að sjá hvað þeir myndu gera með framhaldið eftir að hafa breytt seríunni mikið síðustu árin og bætt við fjölspilun, sjóhernaði ofl.

Samkvæmt fréttinni var þetta sagt um fjölspilun leiksins;

In Shogun 2, multiplayer battles will apparently handle eight generals at once and results will be recorded by leaderboards and through an upgradable, persistent avatar. There’s also support for clans.

Furthermore, Shogun 2′s AI adjusts battle strategies on the fly using Sun Tzu’s teachings, and land battles include multi-staged castle sieges and dynamic terrain that responds to the weather.

All that plus an evolved UI and better tutorials, apparently.

Við vonum bara að þetta reynist rétt þar sem að PC eigendur hafa notið stórgóðra leikja CA síðustu árin og er óskandi að við fáum að njóta meira slíks áfram.

Kv. Game Tíví.

Heimid: Eurogamer

3 Responses to “SEGA að kynna Shogun 2: Total var á E3?”


  • Vá hvað það verður mikil snilld.

    Total War leikirnir eru ein af bestu rts seríum allra tíma!

  • Sem þýðir að það styttist í Rome 2 : Total War! :)

  • Það er búið að staðfesta Shogun 2 af SEGA og verður hann sýndur nánar á E3 í Júní. Með Rome 2 er líklegt að við þurfum að bíða aðeins lengur :)

Comments are currently closed.