- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for May, 2010

Page 2 of 2

LittleBigPlanet 2 verður kynntur í næsta mánuði

Hið virta tölvuleikjatímarit, Game Informer mun skarta frábæra kynningu á nokkrum áhugaverðum leikjum í næsta tölublaði sem kemur út næst í júní. Á forsíðu blaðsins má sjá svaðalega mynd úr heimi Gears of War 3 sem verður tekinn vel fyrir í blaðinu, auk þess eru aðrir titlar nefndir og þar á meðal er LittleBigPlanet 2 nefndur sem Sony eiga samt sem áður enn eftir að tilkynna.

Nokkrar vísbendingar hafa leitt í ljós að leikurinn sé nú þegar í fullri vinnslu hjá hönnuðum leiksins, Media Mollecule en Sony hafa alltaf hafnað þeim og neitað að tjá sig hvað það varðar. Sennilega eru þeir að bíða með að afhjúpa leikinn á stórum viðburðum líkt og E3 sem fer fram um miðjan júní.

LittleBigPlanet er einn flottasti PS3 leikurinn sem gerður hefur verið hingað til og er hann alveg ómissandi í safnið. Hið sama mun ábyggilega gilda fyrir LittleBigPlanet 2 en við verðum að þó bíða þar til í næsta mánuði til þess að sjá eitthvað úr gripnum þ.e.a.s. ef Sony ætla að sýna úr leiknum á E3 2010.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

gameinformerjuneageaGears of War 3, eins og hann birtist á forsíðu Game Informer

Næsti Wii leikur frá Nintendo ber titilinn Wii Party

Frá því að Nintendo Wii kom út hafa Nintendo verið ansi duglegir við að bjóða upp á mjög fjölbreytilega spilun, sem tekst nánast alltaf mjög vel hjá þeim. Titlar á borð við Wii Sports, Wii Play og Wii Fit eru allir mjög gjörólíkir leikir sem snúast út að nota Wii fjarstýringuna á mjög frumlegan máta og allt snýst þetta út á eitt, frábæra skemmtun.

Fyrr í dag afhjúpaði Satoru Iwata, forstjóri Nintendo glænýjan Wii leik sem mun verða næstur í Wii röðinni. Leikurinn heitir á því skemmtilegu nafni Wii Party sem mun feta í fótspor Mario Party 8 sem kom út á tölvuna árið 2007. Hann mun skarta skemmtilega partí leiki sem munu væntanlega allir snúast út á það að gera spilunina sem fjölbreyttasta með öllum þeim nýjungum sem hafa komið út á leikjavélina nú þegar.

Lítið er vitað um leikinn að svo stöddu nema að allt að fjórir geta spilað leikinn saman og mun hann notast við Mii persónurnar sem þú hefur búið til á þinni vél. Sennilega mun leikurinn notast við Wii Motion Plus hreyfingarnar og kannski Wii Balance Board en þeir hafa þó ekkert sagt til um það enn þá.

Það verður spennandi að sjá hvað Wii Party mun bjóða upp á en við verðum þó að bíða róleg þar til nær dregur að leiknum. Áætlað er að gefa út leikinn í Japan einhvern tímann fyrir mars á næsta ári.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

wiiparty5710

Call of Duty: Modern Warfare 2 enn og aftur frír yfir helgina

Það jafnast lítið á við góð demó, eða jafnvel að spila leiki frítt í ákveðinn tíma.

Activision hafa enn og aftur boðið spilurum að spila Call of Duty: Modern Warfare 2 frítt yfir helgina í gegnum Steam, en þeir buðu einnig upp á það fyrir nákvæmlega mánuði síðan. Nú stendur yfir tvöföld xp vika fram að sunnudegi þannig að nú er kjörið tækifæri til þess að nýta sér þennan valkost.

Það eina sem þú þarft að eiga er Steam notanda sem þú getur sótt með því að smella “hér“, þá ættir þú að geta hlaðað niður leiknum.

Nú er ekki eftir neinu að bíða nema drífa sig í gírinn og skjóta niður vini og vandamenn sem verða í vegi fyrir þér.

Heimildir: Steampowered

Kveðja,
Game Tíví

modernwarfare247_12_1680x1050

Modern Warfare 2: Stimulus Package er kominn út fyrir PC og PS3

ss_713e2526ae827105259b143b9304b110de6b8fdd.1920x1080

Í þessum töluðum orðum geta PC notendur, jafnframt PS3 eigendur loksins sótt nýju kortin fyrir Call of Duty: Modern Warfare 2. Hinn svo nefndi Modern Warfare 2: Stimulus Package hefur aðeins verið fáanlegur á Xbox 360 síðasta mánuð vegna samninga sem Microsoft gerðu við Infinity Ward við komu leiksins.

Modern Warfare 2: Stimulus Package býður upp á 5 kort, af þeim eru þrjú splunkuný og svo tvö önnur vinsæl sem gerðu allt vitlaust í Call of Duty 4: Modern Warfare 2 á sínum tíma. Pakkinn kostar heilar 15 Bandaríkjadali, sem gera rúmar 1.800 kr. og geta PC eigendur nálgast pakkann í gegnum steam vefverslunina. PS3 eigendur þurfa hins vegar að næla sér í bresk PSN kort og sækja hann í gegnum bresku PSN búðina.

Líkt og við komu pakkans á Xbox 360 að þá ætla framleiðendur leiksins að bjóða upp á tvöfalda xp viku fram til sunnudags, þannig að fyrir hvert verk sem þú framkvæmir að þá færð þú tvöföld xp stig og er þannig tvöfalt hraðari að hækka þig um tign.

Þá er ekki eftir neinu að bíða en að skella sér á vígvöllinn í glænýju umhverfi sem ætti að skapa gott andrúmsloft fyrir sérhvern Modern Warfare 2 spilara.

Kveðja,
Game Tíví

Með Mario Galaxy 2 fylgir glaðningur, sem virkar ekki á Wii!

Super-Mario-Galaxy-2-E3-20091

Nintendo hefur staðfest að Mario Galaxy 2 verður seldur með auka bónus Dvd diski sem mun innihalda kennslu myndbönd af leiknum.

Í vídeóunum eru kynningar á hvernig leikurinn virkar og spilast, hvernig er að fara á milli heima, að nota báðar Wii fjarstýringarnar á sama tíma og hvað Starbits er og hvernig það virkar í leiknum.

Hljómar allt rosalega vel, það er bara eitt vandamál. Dvd diskar spilast ekki á Wii leikjavélinni sem gerir þennan glaðning frá Nintendo pínu kaldhæðin. Til allra luku vitum við að flestir eiga einvher staðar Dvd spilara eða þess vegna PS2 vél sem ætti að ráða við að keyra þennan blessaða Dvd disk.

Mario Galaxy 2 er dagsettur þann 11. Júní og lofar góðu og ætti vonandi að verða góð viðbót fyrir fyrri leikinn sem skartar 9.7 meðal einkun á Metacritic og er einn besti leikurinn sem hefur komið út á Nintendo Wii.

Kveðja,
Game Tíví

Heimild: Eurogamer

Starcraft 2: Wings of Liberty herjar á heiminn þann 27. júlí

Þá er það loksins staðfest, fréttin sem allir hafa beðið eftir með mikilli eftirvæntingu!

Blizzard létu loksins verða úr því í kvöld að tilkynna útgáfudag fyrsta Starcraft 2 leikinn af þremur, Wings of Liberty sem skartar stórfenglega sögu um hina góðkunnugu Terrans. Áætlað er að gefa út leikinn um allan heiminn þann 27. júlí næstkomandi.

Starcraft 2: Wings of Liberty ætti alls ekki að fara fram hjá neinum, allra síst aðdáendum herkænskuleikja, því það er nokkuð bókað mál að leikurinn eigi eftir verða með þeim betri leikjum sem koma út þetta árið. Það er jú, eitt sem staðfestir það. Blizzard eru að verki bak við leikinn og þeir vita fátt betra en að skila frá sér frábærum leikjum sem hafa farið sigurför um heiminn, World of Warcraft er eitt stórt dæmi um það.

Þannig að merkið þetta inn á dagatalið ykkar: „Þann 27. júlí kemur Starcraft 2: Wings of Liberty út á PC“.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

starcraft-2-logo-02182010

Call of Duty: Black Ops mætir til leiks þann 9. nóvember

call-of-duty-black-ops-launch

Í gær nótt sviptu Activision menn hulinni enn einu sinni enn af nýjum Call of Duty leik, sem verður 7. leikurinn í þessari geysivinsælli fyrstupersónu skotleikja seríu sem hefur farið sigurför um allan heim. Að þessu sinni er það Treyarch fyrirtækið sem sér um framleiðsluna á leiknum, en þeir gerðu meðal annars Call of Duty 3 og Call of Duty: World at War sem tókst bara nokkuð vel hjá þeim.

Nýi leikurinn ber heitið Call of Duty: Black Ops þar sem sögusvið leiksins mun gerast í atburðarrás kalda stríðsins, þar á meðal á vígstöðum Víetnam stríðsins. Í stiklunni hér fyrir neðan má sjá örlítið brot úr leiknum sem minnir mjög mikið á spenninguna sem fylgdi Modern Warfare 2, spurning hvort að Treyarch séu að feta í sömu spor og Infinity Ward hvað varðar að auglýsa gripinn.

Call of Duty aðdáendur er sennilega að missa sig af gleði í augnablikinu, en við biðjum ykkur samt sem áður að fara varlega og halda ró þangað til að 9. nóvember skellur á.

Kveðja,
Game Tíví