
Insomniac Games og Electronic Arts hafa gert með sér samning um að þeir síðarnefndu gefi út fyrrnefnda leik sem þróaður verður af þeim fyrrnefndu, en hann er væntanlegur á Xbox 360 og Playstation 3 í óákveðinni framtíð. Þar með lýkur nærri því 15 ára sögu Insomniac Games sem PlayStation exclusive þróunaraðila, en fyrirtækið hefur eingöngu einbeitt sér að leikjum fyrir leikjatölvur Sony hingað til.
Ástæðurnar fyrir þessum nýja samning er að fyrirtækið vill stækka markaðshóp sinn sem og hreinlega breyta til. Hvað þessi nýja tilbreyting felur í sér er þó enn óvitað; starfsmenn Insomniac Games eru þögulli en gröfin um nýja leikinn.
PlayStation eigendur þurfa þó ekki að örvænta – Insomniac munu halda áfram að gera leiki fyrir PlayStation 3 og eru síður en svo búnir með Ratchet & Clank eða Resistance.
Hvenær nýi leikurinn kemur er alls óvíst, en hvenær sem það verður þá ættu Xbox 360 og PlayStation 3 aðdáendur að geta hlakkað til, enda fátt annað en gull sem kemur úr smiðjum Insomniac Games.
Heimildir: Kotaku
Kveðja,
GameTíví



Finaly einhver ný frétt frá ykkur