
Níundi leikurinn í hinni margrómuðu Dragon Quest seríu, Dragon Quest IX: Sentinels of the Starry Skies, hefur loksins fengið útgáfudag í Evrópu, en íslenskir DS eigendur geta búist við því að fá leikinn í hendurnar 23. júlí næstkomandi.
Í leiknum fara leikmenn í hlutverk verndarengils sem verður fyrir því óhappi að festast á jörðu niðri í mannsformi og án allra leiða til að komast aftur til himna. Upp úr því hefst heilmikið ferðalag þar sem hann, ásamt ljósálfinum Sandy, þarf að ferðast um fjögur horn heimsins, leysa úr ýmsum flækjum og komast aftur í sitt upphaflega form. Leikurinn skartar flottri cel-shaded þrívíddargrafík og allt að fjögurra manna ad-hoc fjölspilun fyrir þá sem vilja ekki spila einir.
Leikurinn fékk gríðarlega góðar viðtökur þegar hann kom út í Japan á síðasta ári, en Square-Enix hefur selt hvorki meira né minna en 4,26 milljón eintök af leiknum. Geri aðrir betur!
Dragon Quest IX kemur út á Nintendo DS þann 23. júlí næstkomandi, eins og áður sagði. Ekki missa af þessum!
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví



0 Responses to “Dragon Quest IX kemur út 23. júlí”