- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for May, 2010

SEGA að kynna Shogun 2: Total var á E3?

total-war-logo

Samkvæmt frétt á Eurogamer er ýmislegt sem bendir til að SEGA og hið Ástralska fyrirtæki Creative Assembly séu að undirbúa Shogun 2: Total War sem er framhald af leik þeir gáfu út árið 2000 og var undanfari Total War seríunnar sem þeim hefur gengið svo vel með síðustu 10 árin.

Það styttist óðum í E3 sem á að byrja þann 15 og rúlla til 17 Júní. Í tilefni þess er ýmislegt að byrja að leka og fréttatilkynningar eiga stundum til að poppa upp óvæntara en útgáfufyrirtækin myndu oft vilja.

Með Shogun 2: Total War virðist þetta eimmit vera málið og dúkkuðu upp skjöl um leikinn á Tyrkneskri vefsíðu sem vísaði síðan í Kotaku. Samkvæmt þessu skjali ætla Creative Assembly að fara tilbaka til Japans og land Samurai stríðsmannana eftir að hafa verið á kafi í Napóleón tímabilinu síðustu 2-3 árin. Það heillar auðvitað að sjá hvað þeir myndu gera með framhaldið eftir að hafa breytt seríunni mikið síðustu árin og bætt við fjölspilun, sjóhernaði ofl.

Samkvæmt fréttinni var þetta sagt um fjölspilun leiksins;

In Shogun 2, multiplayer battles will apparently handle eight generals at once and results will be recorded by leaderboards and through an upgradable, persistent avatar. There’s also support for clans.

Furthermore, Shogun 2’s AI adjusts battle strategies on the fly using Sun Tzu’s teachings, and land battles include multi-staged castle sieges and dynamic terrain that responds to the weather.

All that plus an evolved UI and better tutorials, apparently.

Við vonum bara að þetta reynist rétt þar sem að PC eigendur hafa notið stórgóðra leikja CA síðustu árin og er óskandi að við fáum að njóta meira slíks áfram.

Kv. Game Tíví.

Heimid: Eurogamer

Crysis 2 í 3D

crysis23d

Nú er búið að staðfesta að CRYSIS 2 sem margir bíða spenntir eftir muni styðja 3D, þetta eru gleðifréttir fyrir þá sem vilja upplifa 3D í tölvuleikjum, en smá aðvörun frá okkur, þetta verður mjög mjög þungt í vinnslu fyrir tölvuna þína, og grunar okkur að þetta verði bara hægt að keyra  í góðum gæðum á nýjustu og dýrustu skjákortum og svo þarf auðvitað monster tölvu með :)

Kv. Game Tíví.

Insomniac Games og Electronic Arts með nýja leikjaseríu í spilunum

insomniac-games-logo

Insomniac Games og Electronic Arts hafa gert með sér samning um að þeir síðarnefndu gefi út fyrrnefnda leik sem þróaður verður af þeim fyrrnefndu, en hann er væntanlegur á Xbox 360 og Playstation 3 í óákveðinni framtíð. Þar með lýkur nærri því 15 ára sögu Insomniac Games sem PlayStation exclusive þróunaraðila, en fyrirtækið hefur eingöngu einbeitt sér að leikjum fyrir leikjatölvur Sony hingað til.

Ástæðurnar fyrir þessum nýja samning er að fyrirtækið vill stækka markaðshóp sinn sem og hreinlega breyta til. Hvað þessi nýja tilbreyting felur í sér er þó enn óvitað; starfsmenn Insomniac Games eru þögulli en gröfin um nýja leikinn.

PlayStation eigendur þurfa þó ekki að örvænta – Insomniac munu halda áfram að gera leiki fyrir PlayStation 3 og eru síður en svo búnir með Ratchet & Clank eða Resistance.

Hvenær nýi leikurinn kemur er alls óvíst, en hvenær sem það verður þá ættu Xbox 360 og PlayStation 3 aðdáendur að geta hlakkað til, enda fátt annað en gull sem kemur úr smiðjum Insomniac Games.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví

Dragon Quest IX kemur út 23. júlí

dragonquest

Níundi leikurinn í hinni margrómuðu Dragon Quest seríu, Dragon Quest IX: Sentinels of the Starry Skies, hefur loksins fengið útgáfudag í Evrópu, en íslenskir DS eigendur geta búist við því að fá leikinn í hendurnar 23. júlí næstkomandi.

Í leiknum fara leikmenn í hlutverk verndarengils sem verður fyrir því óhappi að festast á jörðu niðri í mannsformi og án allra leiða til að komast aftur til himna. Upp úr því hefst heilmikið ferðalag þar sem hann, ásamt ljósálfinum Sandy, þarf að ferðast um fjögur horn heimsins, leysa úr ýmsum flækjum og komast aftur í sitt upphaflega form. Leikurinn skartar flottri cel-shaded þrívíddargrafík og allt að fjögurra manna ad-hoc fjölspilun fyrir þá sem vilja ekki spila einir.

Leikurinn fékk gríðarlega góðar viðtökur þegar hann kom út í Japan á síðasta ári, en Square-Enix hefur selt hvorki meira né minna en 4,26 milljón eintök af leiknum. Geri aðrir betur!

Dragon Quest IX kemur út á Nintendo DS þann 23. júlí næstkomandi, eins og áður sagði. Ekki missa af þessum!

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

Sölutölur frá Square Enix

squareenixgamesales2010

Square Enix græddi 102$ Miljón Dollara á 2009-2010 fjárhagsári þeirra. Final Fantasy XIII kom sterku inn með 5.5 Miljón eintök seld. Að auki komu Dragon Quest og Batman: Arkham Asylum vel út, sem þeir eiga eftir að sakna þegar framhaldið kemur út og verður dreift af Warner Brothers.

  • Final Fantasy XIII: 5.5 million eintök seld
  • Dragon Quest IX: 4.26 million eintök seld
  • Batman: Arkham Asylum: 3.24 million eintök seld
  • Dissidia: Final Fantasy: 1.81 million eintök seld
  • Kingdom Hearts: 358/2 Days: 1.49 million eintök seld
  • Dragon Quest VI: 1.29 million eintök seld
  • Just Cause 2: 1.19 million eintök seld
  • Kingdom Hearts: Birth by Sleep: 0.76 million eintök seld

Drefingin á sölutölum á  Final Fantasy XIII, 1.85 million eintök seld í  Japan, 1.79 million í Norður Ameríku, 1.77 million í Evrópu og 0.14 million í Asíu og örðum svæðum.

Kv. GameTíví

Heimild: Joystiq

Assasins Creed 2 eintökin komin í tæpa 9 Miljón í umferð

ubilogo

Forstjóri Ubisoft hann Yves Guilemot í tilkynningu til fjárfesta sinna staðfesti að tveir stærstu leikirnir þeirra hafa verið að seljast gríðalega vel. Samkvæmt Guilemot hefur Assasins Creed 2 verið dreift í tæpum 9 Miljón eintökum, hann staðfesti ekki nákvæmar sölurtölur en vitað er að leikurinn hefur gengið mjög vel og fékk góða dóma þegar hann kom út fyrir jólin síðustu. Splinter Cell: Conviction sem kom út í Apríl hefur selst í 1.8 eintökum á Xbox 360 og PC samanlagt.

Guilemot vonaði eimmit eftir að Splinter Cell myndi hjálpa þeim að auka hagnað sinn í fyrsta ársfjórðunginum sem hafði aukist nú þegar um 75%.

Að auki að tala um sölur á leikjum ræddi hann um að Assasins Creed: Brotherhood leikurinn fengi fjölspilunar betu og að Ghost Recon: Future Soldier yrði seinkað til Q1 2011.

Kv. GameTíví

Heimild: Joystiq

Portal er nú frír á Steam þar til 24. maí

Stórleikurinn Portal sem gerði allt vitlaust á sínum tíma og sópaði meðal annars að sér hátt yfir 40 verðlaunum sem leikur ársins árið 2007, fæst nú frír á Steam. Nú í vikunni gáfu Valve út Steam fyrir Mac tölvurnar og geta bæði PC og Mac eigendur sótt gripinn strax í dag.

Það er um að gera að nýta sér þennan magnaða valkost, því þann 24. maí verður lokað fyrir Portal aftur. Það tekur ekki nema 2-3 tíma að klára þessa frábæru upplifun sem leikurinn býður upp á sem þekkist ekki í öðrum tölvuleikjum nú til dag.

Góða skemmtun!

Heimildir: Steampowered

Kveðja,
Game Tíví

portal5

Activision kynna fimm ný kort fyrir Modern Warfare 2

Ef það er eitthvað fyrirtæki sem er þekkt fyrir að græða á leikjum sínum að þá er það Activision. Um leið og eitthvað gengur upp hjá þeim að þá eru þeir ekki lengi að mjólka nýjum leikjum, viðbótum eða öðru formi til þess að græða enn meira. Enda er það hið besta mál, þannig ganga viðskiptin fyrir sig í tölvuleikja bransanum.

Activision höfðu lítið fyrir sig í dag og staðfestu glæný viðbót fyrir Call of Duty: Modern Warfare 2. Að þessu sinni heita viðbótin Modern Warfare 2: Resurgence Pack og munu þau bæta við 5 nýjum kortum við leikinn. Ekki er enn þá vitað hvort þeir muni endurgera nokkur Call of Duty 4 borð líkt og þeir gerðu í síðasta pakkanum en það ætti ekki að koma neinum í opna skjöldu ef svo yrði.

Líkt og síðast að þá mun pakkinn byrja á því að skemmta Xbox 360 eigendum og mun tvöföld xp vika fylgja þar með í kjölfari. Modern Warfare 2: Resurgence Pack mun kosta $15 líkt og síðast og er hann svo væntanlegur þann 3. júní næstkomandi í gegnum Xbox Live.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

modernwarfare247_08_1680x1050-logo

LittleBigPlanet 2 verður stærri, flottari og mun skemmtilegri!

500x_lbp2-announce-screenshot3

Snillingarnir á bak við LittleBigPlanet, Media Molecule hafa staðfest að nú sé framhald fyrir leikinn í væntum. En stóra spurningin er þessi, hvernig er hægt að gefa út framhald af leik sem er nærrum endalaus og takmarkast af hugmyndarafli hvers og eins spilara?

Media Molecule hafa að sjálfsögðu fundið frábæra lausn fyrir því. LittleBigPlanet 2 mun skarta fullt af nýjum verkfærum sem ekki eru til staðar nú þegar sem mun gefa spilendum kleift að búa til mikið stærri borð á mjög auðveldan hátt. Nú verður hægt að búa til sinn eigin leik með ýmsum þrautum og jafn vel kappaksturs leiki eins og kemur fram í stiklunni hér fyrir neðan.

Öll þau 2 milljón borð sem hafa verið gerð í LittleBigPlanet nú þegar munu enn þá verða til staðar þannig að þú þarft ekkert að óttast um það að fyrrum borðum þínum verði eytt. Einnig munu þeir gefa spilurum möguleika á því að búa til sínar eigin síður þar sem þeir geta haldið betur upp á borð sín og verður líka mun auðveldara að fletta upp að ákveðnum borðum, þar sem leitarvélin verður bætt til muna.

Það er nokkuð öruggt að LittleBigPlanet 2 eigi eftir að slá svo sannarlega í gegn þegar hann verður loksins tilbúinn. Enginn nákvæm dagsetning hefur verið sett á gripinn að svo stöddu en áætlað er að gefa út leikinn síðar á þessu ári, aðeins á Playstation 3.

Kveðja,
Game Tíví

Nintendo 3DS mun bjóða upp á að slökkva á þrívíddinni

Þeir sem hafa verið smeykir gagnvart nýju stefnu Nintendo, með að leiða næst kynslóð lófatölvunnar inn í heim þrívíddarinnar geta loksins sleppt allri þeirri áhyggju og andað rólega. Forstjóri Nintendo, Satoru Iwata hefur gefið það til kynna að hægt verði að slökkva á þrívíddinni auðveldlega með ákveðni stillingum vélarinnar.

Með þessari aðgerð gefa þeir spilendum kleift að spila bæði gamla og nýja leiki í gömlu góðu tvívíddinni sem hefur aðeins þekkst hingað til í lófatölvunum. Hver veit nema að við viljum einungis þrívíddar leiki eftir að við höfum fengið að sjá gripinn, en það verður þó að koma í ljós í næsta mánuði þegar Nintendo hafa lokið við að flytja sýna kynningu á E3 2010.

Ef þú hefur ekki kynnt þér til um Nintendo 3DS nú þegar að þá mælum við með að þú lesir þig aðeins til um gripinn hérna.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

6a00d83452033569e201310fcef7f5970c-800wiWario er klár í slaginn, en við minnum á að 3DS mun ekki þurfa notkun þrívíddargleraugna.