
Konami og Kojima Productions hljóta að hafa tapað glórunni því í fyrradag var samstarf Metal Gear Solid: Peace Walker við vörumerki á borð við Pepsi og Doritos afhjúpað með pompi og prakt á blaðamannafundi í Tokyo. Jább.
Í Metal Gear Solid: Peace Walker munu leikmenn geta klætt sig í boli merkta lógói AXE snyrtivaralínunnar, lesið tímarit á borð við Dengeki, Famitsu og Weekly Shonen Jump, japlað á Doritos, drukkið Mountain Dew og Pepsi Nex (drykkur sem fæst eingöngu í Japan og er svar Pepsi þar í landi gegn Coke Zero), og falið sig í… heyböggum úr Assassin’s Creed?!
Ef það er ekki nóg, þá er einnig auka mode í leiknum þar sem leikmenn berjast við skrímsli úr Monster Hunter leikjum Capcom.
Ekki vantar heldur Metal Gear Solid: Peace Walker vörur í kjötheiminum. Fyrir tæplega tveimur vikum dreifði drykkjaframleiðandinn Suntory Mountain Dew dósum sem skörtuðu myndum af persónum leiksins. Square-Enix hannaði einnig flottar fígúrur eftir persónum leiksins. Japanski skynditískurisinn Uniqlo ætlar svo að selja Metal Gear Solid: Peace Walker boli í gegnum UT línuna sína á 1500 yen (ca. 2050 kr.) stykkið frá og með 26. apríl næstkomandi. Hverjum bol fylgir kóði sem opnar fyrir alveg eins bol í leiknum sjálfum.
Auglýsingabransinn er afar voldugur í Japan, og samstarf Metal Gear Solid: Peace Walker við þessi voldugu vörumerki virkar lógískt innan japanska markaðarins. Í auglýsingum birtast frægir japanskir listamenn og auglýsa allt frá tryggingum til tyggigúmmís og yfirleitt er engu til sparað.
Hideo Kojima vill þó ekki meina að hann sé að hóra út vörumerkinu sem hann hefur mótað í gegnum tíðina. Á Twitterreikningi sínum segir hann: “Það hefur mikið verið fjallað um núverandi samstarf í fréttum á viðskiptalegum nótum, en ég gef eina ástæða fyrir þessu. Ég vil koma notendum (innsk. fólki væntanlega) á óvart. Ef samstarf kemur fólki ekki í opna skjöldu og er ekki ferskt sleppi ég því. Þetta er ekki eins og auglýsingavarningur frá Hollywood.”
Enn er óvíst hversu mikið af auglýsingavarningi í leiknum endi í vestrænu útgáfunni, en leikurinn kemur út í Evrópu á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní.
Heimildir: Kotaku, Hideo_Kojima @ Twitter
Kveðja,
GameTíví
Pepsi Nex í miðjum frumskóginum… en ekki hvað?!
Það drekkur enginn Pepsi án þess að borða Doritos líka
Þegar Pepsi Nex er ekki nóg kemur Mountain Dew til hjálpar







Nýleg comment