- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Halo: Reach betan byrjar 3.Maí

halo-reach

Í tilefni þess að fjölspilunar Betan fyrir Halo: Reach byrjar Mánudaginn 3. Maí hefur Microsoft og Bungie sent frá sér leikið Youtube vídeó sem á að kynda undir áhuga fólksins á leiknum. Miðað við gæðin á þessu vídeó spyrjum við okkur ekki hvað er eiginlega að stöðva Microsoft menn að búa til hina goðsagnakenndu Halo mynd sem hefur verið rætt oft um síðustu árin?

Vídeóið er 60 sek og heitir “Birth of a Spartan” og er farin í loftið í sjónvarpi í Bandaríkjunum. Í myndbrotinu er sýnt frá Carter 259 og hans leið að verða Spartan stríðsmaður og væntanlegi leiðtogi Noble Team í Halo: Reach leiknum. Lengri útgáfa af vídeóinu á að koma á Fimtudagin 29. Apríl.

Betan byrjar eins og áður sagt 3.Maí og eina sem þarf að gera til að komast í hana er að eiga eintak af Halo 3: ODST leiknum sem kom í Sept í fyrra og þá verður hægt að sækja Betuna í gegnum þann leik.

Að lokum bendum við á stórgóða grein á Kotaku um Betuna sem fer djúpt í hvað verður í boði. Halo: Reach leikurinn er síðan áætlaður í búðir næsta haust eingöngu á Xbox 360.

Kv. GameTíví

4 Responses to “Halo: Reach betan byrjar 3.Maí”


  • Því að Bungie var að gera samning við Activision, kemur þá ekki REACH á PS3? Eða bara einhverjir aðrir leikjir sem Bungie gerir (Halo ekki tekin með). Því þeir eru að segja að þeir munu releasa Bungie leikjina á “Multiple Platforms”.

  • Þórir [RanD00M]

    @MegaMan! Þeir eiga eftir að gera ný IP’s,og Halo á bara eftir að halda sér á X-box.Því Microsoft eiga útgáfu réttin á Halo,þótt að Bungie hannaði þá.

  • Vonandi gera þeirr bara Halo look alike eða eitthvað sem virkar eins :) Það yrði geggjað!

  • Þórir [RanD00M]

    Ég var nú að lesa að á The Escapist að fyrsti multiplatform leikurinn þeirra gæti orðið RPD/Action leikur í anda Mass Effect og svoleiðis leikujum.

Comments are currently closed.