Allir sannir tölvuleikja áhugamenn hafa ábyggilega spilað Super Mario Bros. sem kom út á Nintendo Entertainment System í Japan árið 1985. Leikur ætti ekki að fara fram hjá neinum þar sem hann hefur elst ótrúlega vel öll þessi ár í bæði nýjum og gömlum útgáfum.
Margir hafa jafnvel reynt að endurgera leikinn í svo kölluðum “flash” útgáfum á netinu en það hefur oftast endað mjög illa, þar sem jú, upprunalega útgáfan er hreint út sagt meistaraverk og verður hún aldrei bætt. Fyrir nokkrum mánuðum síðan sögðum við ykkur frá nýrri útgáfu þar sem Super Mario Bros. og Tetris komu saman undir nafninu “Tuper Tario Tros.“, hugmyndin á bak við leikin þykir nokkuð góð, þó svo leikurinn hefði mátt vera mikið frumlegri.
Notandi sem gengur undir nafninu “exploidingRabbit” hefur unnið að nýrri útgáfu af leiknum í meira en heilt ár. Að þessu sinni ber leikurinn heitið “Super Mario Cossover” og hefur hann þær skemmtilegar nýjungar að nú færðu tækifæri að spila leikinn með fleiri gömlum og góðum Nintendo persónum.
Þær persónur sem hafa slegist í lið með Mario eru Link, Bill R., Simon, Mega Man og Samus. Öll hafa þau ákveðið vitja Mario aðstoð við að bjarga prinsessunni frá hinum illa dreka, Bowser. Skemmtilegi partur leiksins er sá að allar þær persónur sem eru nefndar hér að framan hafa sýna eiginleika, líkt og þeir höfðu í sínum eigin titlum.
Það er ekki eftir neinu að bíða en að prófa þessa bráðskemmtilegu útgáfu sem hefur heppnast mjög vel að þessu sinni. Super Mario Cossover er mjög vandaður og er hann í fullri lengd í samanburði við upprunalega Super Mario Bros. leikinn.
Smelltu hér til þess að prófa gripinn.
Kveðja,
Game Tíví
Hér má sjá Mega Man þar sem hann veldur miklu usla í Mushroom Kingdom



Nice