- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for March, 2010

Page 2 of 2

PlayStation®Move kemur út næsta haust

MC+SC_with hand_light on4

PLAYSTATION®MOVE STÝRIPINNI MEÐ HREYFISKYNJARA MUN BÆTA VIÐ NÝRRI VÍDD Í SPILUN LEIKJA Á PLAYSTATION®3

Nýi stýripinninn mun stuðla að frumlegum leikjum þar sem notendur þurfa að hreyfa sig til að ná árangri, en þegar hafa 36 leikjaframleiðendur lofað stuðningi við PlayStation®Move

Sony Computer Entertainment (SCE) hefur tilkynnt að PlayStation®Move stýripinninn fyrir PlayStation®3 (PS3™) muni koma út í haust og þar með verður hægt að bjóða uppá háskerpu leiki sem byggja á hreyfingu ólíkt öllu öðru sem þegar er á markaðnum.  Á sama tíma mun SCE einnig gefa út aukapinna (sub-controller) sem mun vera hægt að nota við hlið PlayStation Move pinnans og mun hann notast í að hreyfa persónur í leikjunum.  PlayStation Move settið mun innihalda stýripinnan sjálfan, aukapinnann og PlayStation®Eye myndavélina, en saman munu þessir hlutir gera notendum kleift að upplifa leiki á nýjan hátt á PS3.

MC_4type_light on2

PS3 tölvan og PlayStation Eye myndavélin skynja nákvæmar hreyfingar, afstöðu og staðsetningu PlayStation Move stýripinnans í þrívíddarrúmi, en á þann hátt geta notendur spilað leiki á frumlegan máta líkt og þeir sjálfir væru staddir inní þeim.  PlayStation Move stýrpinninn er ótrúlega nákvæmur, og skynjar PlayStation Eye myndavélin allar hreyfingar hans hversu hraðar eða hægar sem þær eru.  Á stýrpinnanum eru nokkrir takkar og gikkur sem hægt er að nýta í leikjum, en auk þess titrar pinninn þegar hasarinn er hvað mestur og einnig skiptir kúlan sem er efst á honum um lit eftir því hvað er að gerast í leikjunum.  Í viðbót við allt þetta getur PlayStation Eye myndavélin tekið upp raddir leikmanna og myndir af þeim sem bætir upplifunina enn meira.

PlayStation Move aukapinnanum geta notendur haldið í annarri hendi, en hann er gerður til að auka enn frekar á upplifunina.  Á aukapinnanum er “analog” pinni og takkar til að stýra í hvaða átt menn vilja fara, en þetta auðveldar notendum að hreyfa til persónur sínar í leikjunum.  Líkt og allir aðrir stýrpinnar fyrir PS3 inniheldur PlayStation Move lithium rafhlöðu sem hægt er að hlaða upp aftur og aftur.  PlayStation Move stýripinninn og aukapinninn munu auka þá upplifun sem notendur fá útúr PS3 tölvunni og mun nýtast vel í hinum ýmsu tegundum leikja.

MC_front_light on2

Þegar hefur tilkynningin um þennan nýja pinna vakið mikla athygli og stuðning frá leikjaframleiðendum, en þegar hafa 36 framleiðendur ákveðið að innihalda spilun í sínum leikjum sem hentar PlayStation Move.  Á þessu fjárhagsári mun Sony framleiða meira en 20 leiki sem annaðhvort eru gerðir einungis fyrir þennan nýja stýripinna eða innihalda spilun sem styður virkni hans.

Kv. Game Tíví

Heimild: Sena

Street Fighter IV mættur á iPhone

2132407271_full

Nú geta iPhone eigendur tekið gleði sína því Street Figher IV er mættur á kvikyndið, leikurinn spilast eins og flestir leikir á iPhone, þú smellir og stýrir með tökkum á iPhone skjánum. Hægt er að velja á milli 8 karaktera í leiknum en þeir eru Ryu, Ken, Guile, Blanka, Chun-Li, Dhalsim, M. Bison og Abel.

Leikurinn er að lúkka eins og sést á þessu vídeói:

Kv. Game Tíví

Portal 2 kemur út um jólin

glados

Hver sá þetta ekki koma langar leiðir? Valve hafa staðfest að Portal 2 sé á leiðinni og hafa meira segja gerst svo djarfir að skella honum í útgáfurammann “jól 2010.”

Ekki er mikið vitað um leikinn eins og er, og þær litlu haldbæru upplýsingar sem hafa fengist hingað til hafa komið af vefsíðu verslanakeðjunnar GameStop. Leikurinn mun innihalda nýjar persónur, fullt af nýjum púslum, fleiri og erfiðari tilraunaklefa, fleiri svæði til að skoða sig um, og að lokum munu leikmenn svo mæta hinni illkvitnu tölvu GLaDOS aftur. Hugsanlega verður einnig kaka í leiknum, en það er enn óstaðfest, hún gæti verið lygi.

Því miður fyrir Playstation eigendur virðast Valve ekki hafa neinn áhuga á að gefa út leiki á vélina (en eins og frægt er sá þriðji aðili um að færa Orange Box yfir á Playstation 3 með hreint út sagt skelfilegum afleiðingum). Nintendo Wii situr einnig úti í kuldanum.

Portal 2 er þar af leiðandi eingöngu væntanlegur á Xbox 360 og PC um jólin. Þetta er að sjálfsögðu leikur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara ef þeir fá á annað borð tækifæri til að spila hann.

Kveðja,
GameTíví

Fyrrum yfirmenn Infinity Ward kæra Activision

mw2Mikið hefur verið að gerast hjá Infinity Ward þessa dagana, og hófst það með því að Jason West og Vince Zampella, yfirmenn fyrirtækisins, voru reknir. Í ársskýrslu Activision kom fram að rannsókn á óhlýðni yfirmanna Infinity Ward væri í rannsókn, og er það nú opinbera ástæðan fyrir brottrekstri West og Zampella.

Hver hin raunverulega ástæða fyrir aðgerðum Activision er enn óvitað, en uppi eru orðrómar um að samband milli yfirmanna Infinty Ward annars vegar og Activision hins vegar hafi orðið svo stirt að West og Zampella gátu eingöngu talað við tvo vel valda yfirmenn hjá Activision.

Þeir eru ekki par sáttir við hlut Activision í málinu og ætla sér að kæra fyrirtækið fyrir ógreidd höfundalaun fyrir Modern Warfare 2, en þau hlaupa á milljónum dollara. Það er ekki furða að þeir gangi svona langt þegar Modern Warfare 2, nýjasti titill Infinity Ward, er einn vinsælasti skotleikur í heimi um þessar mundir og hefur halað inn meira en milljarði bandaríkjadala í kassann.

Þeir vilja þó ekki bara peningana sína heldur heimta þeir einnig að Activision afhendi þeim Modern Warfare vörumerkið því til viðbótar. Það er greinilegt að fyrrum yfirmönnum Infinity Ward er afar annt um Modern Warfare leikina sína og vilja sjá til þess að Activision geti ekki gert meira við vörumerkið héðan í frá.

Það verður áhugavert að sjá hvaða spil verða lögð á borðið í þessu máli á komandi mánuðum.

Heimildir: 1UP.com

Kveðja,
GameTíví

http://rapidshare.com/files/355679662/Spartacus.Blood.and.Sand.S01E01.720p.HDTV.X264-DIMENSION.part1.rar

http://rapidshare.com/files/355679902/Spartacus.Blood.and.Sand.S01E01.720p.HDTV.X264-DIMENSION.part2.rar

http://rapidshare.com/files/355679555/Spartacus.Blood.and.Sand.S01E01.720p.HDTV.X264-DIMENSION.part3.rar

http://rapidshare.com/files/355679873/Spartacus.Blood.and.Sand.S01E01.720p.HDTV.X264-DIMENSION.part4.rar

http://rapidshare.com/files/355679693/Spartacus.Blood.and.Sand.S01E01.720p.HDTV.X264-DIMENSION.part5.rar

http://rapidshare.com/files/355679741/Spartacus.Blood.and.Sand.S01E01.720p.HDTV.X264-DIMENSION.part6.rar

http://rapidshare.com/files/355680661/Spartacus.Blood.and.Sand.S01E01.720p.HDTV.X264-DIMENSION.part7.rar

http://rapidshare.com/files/355680438/Spartacus.Blood.and.Sand.S01E01.720p.HDTV.X264-DIMENSION.part8.rar

Sony eignast höfunda LittleBigPlanet

littlebigplanet+03+resizedSony hefur sent út fréttatilkyningu sem segir að þeir hafi eignast Breska fyrirtækið Media Molecule höfunda hins stórskemmtilega LittleBigPlanet sem hefur komið út á PS3 og PSP. Kaup þessi undirstrika trú Sony manna á fyrirtækinu og vilja þeirra að þeir haldi áfram að búa til leiki eingöngu fyrir Playstation.

Acclaimed developer of multi-million selling LittleBigPlanet™ joins Sony Computer Entertainment Worldwide Studios

London, 2nd March 2010 – Sony Computer Entertainment (SCE) today announced that it had acquired leading game developer Media Molecule, creator of the multi-million selling and multi-award winning PlayStation®3 (PS3™) exclusive title, LittleBigPlanet™. Media Molecule will join as part of SCE’s global development operation, SCE Worldwide Studios (SCE WWS).
In a strategic move to continue to secure excellence in game development for current and future PlayStation® platforms, the acquisition of Media Molecule formalises the successful exclusive relationship with SCE.

Media Molecule, based in Surrey, England, is the award-winning developer of LittleBigPlanet, one of the best-selling titles for PS3, a game that introduced gamers to the unique ethos of Play, Create and Share. Having seen over 2m user generated levels created for the community to download and play for free, LittleBigPlanet has completely changed the way people interact with games, whilst revolutionising the longevity of gameplay.

Having won over 90 awards for LittleBigPlanet, including 2 BAFTAs and 8 AIAS Interactive Achievement Awards, Media Molecule brings a wealth of experience and a highly talented staff into the SCE WWS family that will further strengthen the PlayStation first party studio.

“Since they burst onto the gaming scene, Media Molecule have proved to be a truly exciting and innovative studio, who have proved their world-class credentials with the creation of the incredible LittleBigPlanet,” said Shuhei Yoshida, President, SCE Worldwide Studios. “SCE WWS is all about creating ambitious, innovative and ground breaking games, traits that Media Molecule clearly have. To bring them into our family proves our dedication to creating fantastic new experiences that we believe will cement our position as industry leaders.”

“Since Media Molecule’s inception, we’ve had a uniquely close relationship with Sony. Over the years they have consistently shown their dedication to Creative Gaming and Media Molecule, not only through their support of the company, but their willingness to take risks and embrace our often unusual approach and ideas.” said Alex Evans, co-founder of Media Molecule. “What we’ve achieved already with LittleBigPlanet has proved this to us and we’re excited by this new chapter of innovation and creative gaming, for all involved.”

Studios across the SCE WWS network share technology, production methodology and creative goals to build the best possible experiences for users to enjoy the most from the PlayStation family of hardware platforms and network services. With over 2,500 employees, SCE WWS combines the talents of 15 game development studios in Japan, the USA, the UK and The Netherlands.

Kveðja
GameTíví

Drama hjá Infinity Ward og Activision

500x_codpunch2

Í gær var vægast sagt litríkur dagur hjá Infinity Ward höfundum Call of Duty leikjanna og útgefanda og eiganda þeirra Activision. Dagurinn byrjaði með fréttum að aðalgaurarnir hjá IW þeir Vince Zampella og Jason West hefðu verið reknir og fjarlægðir í fylgd öryggisvarða. Þegar leið á daginn birtust fleiri fréttir sem benntu til mikilla deilna á milli þessa tveggja fyrirtækja. Tvær ástæður sem hafa verið gefnar eru; deilur vegna þeirra gríðalegu peninga sem Call of Duty: Modern Warfare 2 hefur tekið inn og skortinn af aur sem Infinity Ward höfundar leiksins hafa fengið. Hin ástæðan sem hefur verið nefnd er ágreiningur um framtíð Call of Duty seríunnar og mótþróa IW að dæla þessu út á færibandi eins og Activision virðist vilja. IW hafði rætt að koma með framtíðarleik og aðrar nýjar hugmyndir, einnig hafði verið rætt að þeir myndu gera algerlega nýja seríu.

Activision var ekki lengi að smella út fréttatilkynningu sem tilkynnti breytingar sem eru í vændum. Seinna á þessu ári kemur út næsti Call of Duty leikurinn sem er hannaður af Treyarch sem gerðu Call of Duty 3 og Call of Duty: World At War. Á næsta ári mun koma út Call of Duty leikur frá hinu nýja stúdiói Sledgehammer Games sem var stofnað af tveimur af þeim sem gerðu Dead Space fyrir EA. Leikurinn þeirra á að vera eitthvað nýtt og segja þeir að “that will extend the franchise into the action-adventure genre” sem hljómar ekki beint eins og klassískur fps leikur. Að auki er spurning hvort að annar Call of Duty leikur kæmi á næsta ári líka.

Þetta mál er stórskrítið á marga vegu. Zampella og West voru stofnendur Infinity Ward og höfðu áður unnið að Medal of Honor leikjunum hjá EA og eimmit farið til að búa til sitt eigið efni. Infinity Ward stúdíóið er enn lifandi, enda í eigu Activision í dag og er með útgáfusamning við það til lok þessa árs.

Spurningin er auðvitað hvað gerist núna? Hefur Activision tapað glórunni og ruglað í gullgæsinni sinni? Munu Zampela og West bara stofna nýtt stúdeó eins og þeir gerðu þegar þeir fóru frá EA og gefa út hjá öðru fyrirtæki nýja skotleikja seríu? Hvaða áhrif mun þetta allt hafa á framtíð Call of Duty seríuna?

Við munum líklega sjá afleiðingar þessa frétta út árið og þetta er engan vegin búið. Bein afleiðing á Call of Duty leikina mun líklega ekki sjást fyrir 2011.

Tim Schaffer höfundur Brutal Legend sem kom útí fyrra og er ekki ókunnugur að eiga við Activision á komment dagsins í gær algerlega að okkar mati. Þetta sagði hann á Twitter; “Getting mad at Activision for this kind of thing is like getting mad at an ape for throwing feces. It’s just how the beast communicates.”

Kveðja
GameTíví

Uppfært: PSN bilanir í dag. Sony bendir á að hvíla PS3 á meðan lagfæringar eru.

500x_psnerror

Uppfært: Svo virðist sem að töframenn Sony hafa setið sveittir fyrir framan skjáinn og fundið lausnina á hlaupaárs vanda PS3 eigenda og ættu fólk að verða vart við að vélarnar þeirra ná að tengjast PSN neti Sony á ný.

Það hafa ófáir vinir GameTíví tekið eftir að eitthvað var ekki eins og það átti að vera þegar þeir/þær ætluðu að spila uppáhaldsleikinn á PS3 vélinni sinni. Það kemur í ljós að villa vegna dagsetningar vélarinnar í dagatalinu er að valda gríðalegum hausverkjum og hindra það að allir nema eigendur PS3 Slim véla geta notið allra nýjustu og heitustu titlanna og spilað við vinina.

Eins og við er að búast er þetta ekki beint góðar fréttir fyrir Sony og í gegnum daginn var erfitt að vita hvað nákvæmlega væri í gangi.

Hérna er listi fyrir neðan um hvað fólk hefur verið að lenda í.

Errors include:

  • The date of the PS3 system may be re-set to Jan 1, 2000.
  • When the user tries to sign in to the PlayStation Network, the following
    message appears on the screen; “An error has occurred. You have been
    signed out of PlayStation Network (8001050F)”.
  • When the user tries to launch a game, the following error message appears
    on the screen and the trophy data may disappear; “Failed to install
    trophies. Please exit your game.”
  • When the user tries to set the time and date of the system via the
    Internet, the following message appears on the screen; “The current date
    and time could not be obtained. (8001050F)”

We hope to resolve this problem within the next 24 hours. In the meantime, if you have a model other than the new slim PS3, we advise that you do not use your PS3 system, as doing so may result in errors in some functionality, such as recording obtained trophies, and not being able to restore certain data.

As mentioned above, please be advised that the new slim PS3 is not affected with this error. We are doing our best to resolve the issue and do apologize for any inconvenience caused.

  • Users are not able to play back certain rental video downloaded from the
    PlayStation Store before the expiration date.
  • Playstation Blog Sony er búið að bæta úr því með opinberri staðfestingu á hvaða vandamálum fólk getur verið að lenda í. Þeir tala um að þetta ætti vonandi að vera leyst innan næstu 24 tíma. Þeir benda fólki á að hafa ekki áhyggjur, engir Trophies eru horfnir eða neitt slíkt sem ætti að róa hjartaslátt margra.

    Svo hvað gerir fólk þá? Við bendum fólki auðvitað á að kíkja á GameTíví þættina sem það hefur misst af, vinna upp heimalærdóminn svo að þið verið búin þegar Battlefield: Bad Company 2 kemur út í vikulok á PC, PS3 og Xbox 360, sjá Avatar í 3D í 2 eða 5 sinn, kíkja á “hina tölva” sem kallar á athyglina og ef að allt annað klikkað  kannski þurkað rykið af PS2 vélinni og heimsótt gamla vini.

    Kveðja,
    GameTíví