
Það lítur allt út fyrir það að Metroid: Other M eigi eftir að slá í gegn þegar hann kemur loksins út á Nintendo Wii. Í kvöld var gefin út ný stikla fyrir leikinn sem gefur okkur loksins til kynna hvernig leikurinn mun spilast og lítur það væga sagt mjög vel út.
Nintendo hafa því miður ekki verið viljugir til þess að staðfesta útgáfudag leiksins fyrir okkur Evrópu búa, en við fylgjumst að sjálfsögðu grannt með því og munum við láta ykkur vita við fyrsta tækifæri, hvenær sem það verður nú.
En nóg af lestri, sjáið þessa magnaða stiklu sem sýnir hvað leikurinn hefur upp á að bjóða.
Kveðja,
Game Tíví



0 Responses to “Nýjasta stikla úr Metroid: Other M lofar góðu”