- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Just Cause 2 fer vel af stað

just-cause-2-lost

Svo virðist sem að hinn Sænski sandkassa leikur Just Cause 2 frá Avalance studios sem kom út í lok síðustu viku sé að fara vel í fólk. Demóið var sótt yfir 2 Miljón sinnum og leikurinn skaust beint í fyrsta sætið á Breska listanum yfir mest seldu leikina fyrir allar vélar.

Að auki við góða sölu beggja megin við Atlantshafið hefur leikurinn verið að fá góða dóma;

1up gaf honum 10 af 10
Gameinformer gaf 9 af 10
IGN gaf 8.8 af 10
Giantbomb gaf 4 af 5
Eurogamer gaf 8 af 10

Að auki gafum við hérna á GameTíví leiknum 8 af 10.

Fyrir þá sem eru forvitnir mælum við að kíkja á demóið af leiknum og er það til á PC, PS3 og Xbox 360.

Kv. GameTíví.

P.S. Minntust við síðan á LOST glaðning leiksins sem myndin er að ofan úr? Við segjum bara grípa sér flugvél, flúgja til eyjunnar í Norð-Vestur og sjá hvað gerist!

15 Responses to “Just Cause 2 fer vel af stað”


  • virkar hann ekki bara í Windows 7?

  • Hann svínvirkar í Windows Vista og Windows 7 enn því miður ekki í Windows XP. Þarft einnig skjákort sem styður DirectX 10, enn nær öll kort síðustu 2-4 ára gera það.

    Hérna eru vélbúnaðarkröfur leiksins fyrir PC.

    Minimum:
    o OS: Microsoft Windows Vista (Windows XP is unsupported)
    o Processor: Dual-core CPU with SSE3 (Athlon 64 X2 4200 / Pentium D 3GHz)
    o Memory: 2GB System Memory
    o Hard Drive: 10GB of free drive space
    o Graphics: DX10 compatible graphics card with 256 MB of memory (Nvidia GeForce 8800 series/ ATI Radeon HD 2600 Pro)
    o Sound: 100% DirectX 10 compatible sound card
    o DirectX®: Microsoft DirectX 10

    Recommended:
    o OS: Microsoft Windows Vista SP1 or Windows 7
    o Processor: Intel Core® 2 Duo 2.6 GHz or AMD Phenom X3 2.4GHz or equivalen
    o Memory: 3GB system Memory
    o Hard Drive:
    o Graphics: DX10 compatible graphics card with 512 MB of memory (Nvidia GeForce GTS 250 series/ ATI Radeon HD 5750 series)
    o Sound: 100% DirectX 10 compatible Dolby Digital 5.1 sound card
    o DirectX®: Microsoft DirectX 10.1

  • ok takk.. er samt með XP… smá lame en er að vonast til að fá Windows 7 bráðlega

  • Ekki gleyma að Windows XP kom út í Október 2001 svo það er kannski spurning að skoða að kíkja á nýtt. Windows 7 rúllar vel og þér ætti að líka það vel.

  • Alltof satt

  • Hæ heyriði ég var mikill aðdándi fyrri leiksinns var að spá í hvort þið væruð til í að gefa mér hann á ps3 ?????

    Það væri alveg geðveikt
    ef þið viljið ná í mig er netfangið mitt solonbirkir@gmail.com :)
    takk fyrir

  • þá seinni leikin just cause 2 :)

  • En virkar hann í windows xp? er nefnilega með xp og það er engin leið að fá pabba til að skipta

  • just cause 2 nr 1 fan

    kláraði leikinn á 19 tímum og 20 minutum

  • hann virkar ekki í XP það stendur þarna uppi.

  • já en það stendu bara “windows XP is UNSUPPORTED” hvað er mein með unsupported ef að það á að standa fyrir það að það virkar ekki af hverju skrifa þeir þá það bara ekki?

  • hvenær kemur hann í búðir semsagt á ps3 :j:j:j:j:j

  • þetta þýðir að leikurinn styður ekki XP eða öfugt man ekki hvort maður segir

  • Lost eyjan er snild.

Comments are currently closed.