- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for March, 2010

Bungie setur inn dularfulla mynd á Twitter

500x_bungie_tweet

Dularfull mynd birtist á Twitter síðu Bungie í gær með textanum “Just got this mysterious image and word that something big is dropping this week?!”

Nýr Halo leikur væntanlegur eða kannski bara aprílgabb?

Hvað heldur þú?

Kv. Game Tíví

Nýjasta stikla úr Metroid: Other M lofar góðu

49118_orig

Það lítur allt út fyrir það að Metroid: Other M eigi eftir að slá í gegn þegar hann kemur loksins út á Nintendo Wii. Í kvöld var gefin út ný stikla fyrir leikinn sem gefur okkur loksins til kynna hvernig leikurinn mun spilast og lítur það væga sagt mjög vel út.

Nintendo hafa því miður ekki verið viljugir til þess að staðfesta útgáfudag leiksins fyrir okkur Evrópu búa, en við fylgjumst að sjálfsögðu grannt með því og munum við láta ykkur vita við fyrsta tækifæri, hvenær sem það verður nú.

En nóg af lestri, sjáið þessa magnaða stiklu sem sýnir hvað leikurinn hefur upp á að bjóða.

Kveðja,
Game Tíví

Just Cause 2 fer vel af stað

just-cause-2-lost

Svo virðist sem að hinn Sænski sandkassa leikur Just Cause 2 frá Avalance studios sem kom út í lok síðustu viku sé að fara vel í fólk. Demóið var sótt yfir 2 Miljón sinnum og leikurinn skaust beint í fyrsta sætið á Breska listanum yfir mest seldu leikina fyrir allar vélar.

Að auki við góða sölu beggja megin við Atlantshafið hefur leikurinn verið að fá góða dóma;

1up gaf honum 10 af 10
Gameinformer gaf 9 af 10
IGN gaf 8.8 af 10
Giantbomb gaf 4 af 5
Eurogamer gaf 8 af 10

Að auki gafum við hérna á GameTíví leiknum 8 af 10.

Fyrir þá sem eru forvitnir mælum við að kíkja á demóið af leiknum og er það til á PC, PS3 og Xbox 360.

Kv. GameTíví.

P.S. Minntust við síðan á LOST glaðning leiksins sem myndin er að ofan úr? Við segjum bara grípa sér flugvél, flúgja til eyjunnar í Norð-Vestur og sjá hvað gerist!

Dularfullur niðurteljari á BioWare síðunni..?

500x_countdown

Á forsíðunni hjá BioWare er kominn niðurteljari sem telur niður…

Hvað er verið að telja niður í ?

Kv. Game Tíví

Nintendo tilkynnir nýja lófaleikjatölvu, Nintendo 3DS

Nintendo ákváðu að hafa hljótt um sig í dag þegar þeir birtu á heimasíðu sinni fréttatilkynningu um næstu kynslóð lófaleikjatölvu fyrirtækisins. Vélin ber nafnið Nintendo 3DS, en það gæti þó breyst þegar fram líða stundir. Eins og nafnið gefur til kynna mun nýja vélin vera búin þrívíddartækni, sem samkvæmt tilkynningunni virkar án þess að sérstakra gleraugna er þörf. Til viðbótar við 3DS leiki verður einnig hægt að spila gömlu DS og DSi leikina á henni.

Öfugt við Nintendo DSi og Nintendo DSi XL verður Nintendo 3DS arftaki DS þessara véla, sem þýðir að hún muni nær örugglega skarta öflugri örgjörva og flottari grafík, líklega eitthvað í svipuðum kantinum og GameCube. Þá er einnig möguleiki á að hún verði með betri myndavélar en Nintendo DSi og uppi eru þrálátir orðrómar um að vélin hafi einnig hreyfiskynjara.

Nintendo 3DS er væntanleg á markað fyrir lok mars 2011, en óvíst er hvort það eigi bara við Japan eða einnig aðra markaði á borð við Norður-Ameríku og Evríopu. Ætlar Nintendo að lyfta hulunni af vélinni á E3 í Los Angeles 15. til 17. júní næstkomandi. Við hjá GameTíví fylgjust að sjálfsögðu spenntir með framvindu mála.

Heimildir: Nintendo (í gegnum Kotaku)

Kveðja,
GameTíví

ndsphatNintendo DS er orðin ansi gömul og lúin og því ætla Nintendo að gefa út arftaka hennar á þessu eða næsta ári…

Kratos er mættur aftur í God of War III

gow3-logo

Kratos er mættur aftur í God of War® III á PlayStation®3

Hann er stór, hann er grófur og hann er mættur: Sýndu guðum Ólympusfjalls í tvo heimana í þessum stórbrotna lokakafla

Sony Computer Entertainment Europe (SCEE) kynnir útgáfu God of War III á PlayStation®3 (PS3™), en hér er á ferðinni lokakafli þessa stórbrotna þríleiks og nýjasti leikurinn í seríu sem selst hefur í meira en 3.9 milljónum eintaka.  Hér er á ferðinni leikur sem leikjaheimurinn hefur beðið eftir með mikilli eftirvæntingu, en leikurinn er glerhart ævintýri þar sem leikmenn ferðast um undirheima Grikklands til forna sem Kratos, einhver reiðasta tölvuleikjahetja allra tíma.  Í þessum lokakafla seríunnar hafa guðir Ólympusfjalls svikið Kratos og í raun heiminn allan – og Kratos er mjög, mjög reiður.  God of War III er þitt tækifæri til að berjast við guðina í lokauppgjöri sem inniheldur taumlausa eyðileggingu og sem dregur fram berserkinn sem býr innra með þér, en hann er nauðsynlegur til að láta stoðir Ólympusarfjalls nötra.

g3_gaia02

Þessi fyrstu skref Kratos á PlayStation 3 setja afl guðanna í þínar hendur og gefa þér tækifæri til að nota aflið gegn kvölurum þínum, en leikurinn hefst þar sem God of War II endaði.  Að þessu sinni setur Kratos stefnuna á Ólympusfjall þar sem hann mun hitta fyrir einhverja erfiðustu óvini sína hingað til, en  meðal þeirra eru allir helstu grísku guðirnir.  Kratos er reiður, brjálaður og vopnaður svakalegum vopnum sem þýðir aðeins eitt – hlutirnir eiga eftir að enda í rugli.  Þessi lokakafli God of War sögunnar jafnar allt það sem þekkist úr stórbrotnum Hollywood kvikmyndum.  Hér er sögð saga af svikum, hefndum, eyðileggingu og ákveðni sem berst um hina ýmsu vígvelli Grikklands til forna eða allt frá hýbýlum guðanna yfir í dimmustu skúmaskot goðafræðinnar.

g3_downloads_screen13-2

God of War III er stórbrotinn lokakafli í seríu sem hefur tekið leikjaheiminn með stormi.  Nú er einhver mest umtalaði tölvuleikur í sögu PlayStation 3 tölvunnar mættur og mun klárlega standast allar þær væntingar sem til hans eru gerðar.  Ert þú tilbúin(n) að leggja í lokabardagann?

Frekari upplýsingar um leikinn má finna á : www.godofwargame.com

Kv. Game Tíví

Hemild: Sena

Nýr Medal of Honor trailer

moh5-2182010-580px

EA hefur gefið út nýjan trailer fyrir endurræsinguna þeirra af Medal of Honor skotleikjaseríunni sem mun koma út síðar á árinu.

Það er áberandi hvaðan mikið af áhrifunum leiksins kemur frá. Modern Warfare serían hefur haft mikil áhrif síðustu árin svo að allir skotleikir sem koma út eru bornir saman við þá.

Við hérna á GameTíví líst bara vel á og erum spenntir að sjá hvernig leikurinn heldur áfram að þróast.

Kv. Game Tíví

Crackdown 2 kemur út 9 Júlí

crackdown-2

Microsoft hefur staðfest útgáfudag fyrir leikinn Crackdown 2 sem á að koma út þann 9 Julí í Evrópu og þann 6 Júlí fyrir Bandaríkjamenn á Xbox 360.

Framleiðandinn James Cooper sagði að það mun verða gefið út demó af leiknum fyrir útgáfuna sem ætti að gleðja marga.

Crackdown 1 kom út sumarið 2007 fyrir Xbox 360 og kom pínu á óvart með vanabindandi spilun og skemmtilegri Co-Op spilun.

Nr,2 mun leyfa allt að 4 leikmönnum að spila saman, kasta bílum í hverna annan og hlaupa um Pacidic City saman.

Hérna fyrir neðan er vídeó frá Joystiq sem ætti að sýna fólki meira af leiknum og hvað er í vændum í sumar.

Kv. Game Tíví

Deus Ex 3 teaser trailer

DX3_Logo2

Það eru margir sem bíða spenntir eftir þriðja leiknum í Deus Ex seríunni, en á GDC leikjasýningunni sem haldin var nýverið sýndu Eidos menn stuttan teaser trailer úr leiknum og má sjá hann hér að neðan:

Kv. Game Tíví

Steam að koma út á Mac í Apríl

500x_500x_04_heavy_sandvich

Undur og stórmerki eru að gerast. Steam þjónustan sem er líklega vinsælasta stafræna leikjadreifing í heimi er að koma til vina okkar með glansandi vélarnar enn hingað til fáa tölvuleiki.

Í Apríl mun Valve hönnuðir Steam gefa út Mac útgáfu af Steam. Þegar þjónustan byrjar munu þekkustu leikir þeira eins og; Left 4 Dead 2, Team Fortress 2, Counter-Strike, Portal, og Half-Life serían koma út til að starta þjónustinni með stæl.

Orðrómar um að Steam væri að koma út á Mac byrjuðu fyrir nokkrum vikum eftir að ný Beta útgáfa af Steam forritinu á PC kom út sem endurhannaði allt heila dótið, þegar að fólk byrjaði að rýna nánar í forritið komu ýmsar vísbendingar í ljós sem bentu á OSX sem er nafn á stýrikerfi Mac véla í dag.

Gabe Newell aðalsprauta Valve fyrirtækisins sagði þetta í viðtali við Kotaku.

“As we transition from entertainment as a product to entertainment as a service, customers and developers need open, high-quality Internet clients, the Mac is a great platform for entertainment services.”

Mac útgáfan af Steam mun innihalda alla hluta af PC útgáfunni ásamt nýjum hlut sem kallast Steam Play. Þetta leyfir þeim fjölmörgu sem hafa verið að nota Steam á PC að ræsa upp Steam á Mac og sækja leikina sem þeir hafa nú þegar verslað og sleppa við að kaupa þá aftur. Þetta er óvæntur glaðningur og ekki eitthvað sem við sjáum oft frá dreifingaraðilum.

John Cook stjórnandi Steam hafði þetta að segja um breytingarnar á Steam;

“We looked at a variety of methods to get our games onto the Mac and in the end decided to go with native versions rather than emulation,” said John Cook, Director of Steam Development. “The inclusion of WebKit into Steam, and of OpenGL into Source gives us a lot of flexibility in how we move these technologies forward. We are treating the Mac as a tier-1 platform so all of our future games will release simultaneously on Windows, Mac, and the Xbox 360. Updates for the Mac will be available simultaneously with the Windows updates. Furthermore, Mac and Windows players will be part of the same multiplayer universe, sharing servers, lobbies, and so forth. We fully support a heterogeneous mix of servers and clients. The first Mac Steam client will be the new generation currently in beta testing on Windows.”

Við hérna á GameTíví óskum Mac notendum til hamingju að geta notið margra af betri leikjum síðustu ára og væntanlegum leikjum eins og Portal 2 og Half-Life 2: Episode 3.

Kv. Game Tíví