
Kæri leikjaspilarar,
Uppfært: Ef að ykkur skortir vídeókameru stendur einnig til að boða að senda inn myndir af ykkur með hrottafengið útlit og stíl, eitthvað í God of War stílnum eða tengt leiknum, haldandi á blaði sem segir “NextGn.com – God of War Contest” og síðan notendanafn ykkar á PSX.is eða NextGen síðunni.
Í tilefnni enduropnunar vefs Next Gen News og væntalegri útgáfu God of War III höfum við ákveðið að gefa ykkur tækifæri að tryggja ykkur eintak af leiknum fyrir útgáfu hans!
Með hjálp frá vinum okkur á PSX.is og GameTíví höfum við skipurlagt hæfileikakeppni. Reglurnar eru einfaldar og verðlaunin frábær; tækifæri til að klára God of War III fyrir útgáfu hans og geta monntað sig við alla sem þið þekkið!
Það eina sem þið þurfið að gera er að skrá ykkur á spjallborði okkar, upphlaða vídeó af ykkur og ykkar Guðlega hæfileika á Youtube, senda það inná spjallborðið okkar og senda okkur tölvupóst með fullu nafni og nafninu ykkar á spjallborðinu.
Keppninni líkur á miðnætti Sunnudagsins 7 Mars og sigurveigararnir verða kynntir daginn eftir.
Strákarnir á PSX.is munu velja innlendan vinningshafa og Next Gen News velur sinn eigin erlendis frá. PSX.is mun síðan senda þeim sem vann God of War III leikinn í pósti.
Þið getið lesið um skilmálana og reglur keppninnar hérna á spjallborði PSX.is
Smellið hérna til að fara á vef Next Gen News og taka þátt í keppninni.
Gangi ykkur öllum vel!
Kv. GameTíví Next Gen News og PSX.is






Epic!
indeed