- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for February, 2010

Uppfært: God of War III leikur Next Gen News í samvinnu með Gametivi.is og PSX.is

gow3contest2

Kæri leikjaspilarar,

Uppfært: Ef að ykkur skortir vídeókameru stendur einnig til að boða að senda inn myndir af ykkur með hrottafengið útlit og stíl, eitthvað í God of War stílnum eða tengt leiknum, haldandi á blaði sem segir “NextGn.com – God of War Contest” og síðan notendanafn ykkar á PSX.is eða NextGen síðunni.

Í tilefnni enduropnunar vefs Next Gen News og væntalegri útgáfu God of War III höfum við ákveðið að gefa ykkur tækifæri að tryggja ykkur eintak af leiknum fyrir útgáfu hans!

Með hjálp frá vinum okkur á PSX.is og GameTíví höfum við skipurlagt hæfileikakeppni. Reglurnar eru einfaldar og verðlaunin frábær; tækifæri til að klára God of War III fyrir útgáfu hans og geta monntað sig við alla sem þið þekkið!

Það eina sem þið þurfið að gera er að skrá ykkur á spjallborði okkar, upphlaða vídeó af ykkur og ykkar Guðlega hæfileika á Youtube, senda það inná spjallborðið okkar og senda okkur tölvupóst með fullu nafni og nafninu ykkar á spjallborðinu.

Keppninni líkur á miðnætti Sunnudagsins 7 Mars og sigurveigararnir verða kynntir daginn eftir.

Strákarnir á  PSX.is munu velja innlendan vinningshafa og Next Gen News velur sinn eigin erlendis frá. PSX.is mun síðan senda þeim sem vann God of War III leikinn í pósti.

Þið getið lesið um skilmálana og reglur keppninnar hérna á spjallborði PSX.is

Smellið hérna til að fara á vef Next Gen News og taka þátt í keppninni.

Gangi ykkur öllum vel!

Kv. GameTíví Next Gen News og  PSX.is

CCP opnar nýjar skrifstofur á Bretlandseyjum

Íslenska fyrirtækið hefur opnað sína fjórðu skrifstofu, en sú nýjasta er staðsett í Newcastle á Englandi. Mun nýja deildin vinna að núverandi og framtíðar leikjum á leikjatölvur. Af því má draga að skrifstofan gegni lykilhlutverki í framleiðslu á skotleiknum Dust 514, en stúdíó fyrirtækisins í Shanghai vinnur nú hörðum höndum að gerð leiksins.

Lykilkjarni nýju deildarinnar var myndaður af fyrrum starfsmönnum Midway í Newcastle, sem gerði leikinn Wheelman, en Midway varð gjaldþrota á síðastliðnu ári.

Dust 514 er væntanlegur á PlayStation 3 og Xbox 360 áður en heimurinn endar.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

dust514

Prófaðu God of War III strax í DAG!

god-of-war-3-screen_01

Ertu orðin(n) óþreyjufull(ur) á biðinni eftir God of War III? Langar þig að svala þorstanum, jafnvel þótt það sé ekki nema örlítil dögg?

Þá er heppnin með þér því God of War III demóið er aðgengilegt á PlayStation versluninni í þessum skrifuðu orðum.

Til þess að sækja prufuútgáfuna þarf ekki að gera annað en að smella sér á evrópsku eða amerísku PlayStation verslunina og hlaða henni niður. Hún er reyndar talsvert gömul og lúin, og ef marka má það sem netið hefur að segja er leikurinn jafnvel enn flottari í dag.

Fyrir þá furðufugla sem vilja ekki spila neitt fyrr en skrímslið kemur en samt skoða myndbönd, eða þá sem vilja eitthvað með demóinu, viljum við benda á nýjasta þátt Gametrailers TV, en þar má sjá fullt af hrikalega flottum myndböndum úr leiknum.

God of War III lendir 18. mars næstkomandi, að sjálfsögðu eingöngu á PlayStation 3.

Kveðja,
GameTíví

Ný stikla og útgáfudagur fyrir Alpha Protocol

alphaprotocol_ss01

Alpha Protocol hefur verið frestað í tvígang og brotið ansi mörg hjörtu í tíðina, en Obsidian Entertainment og SEGA, framleiðendur og útgefendur leiksins, hafa loksins staðfest útgáfudag fyrir skrímslið. Leikurinn er væntanlegur 28. maí næstkomandi, dagsetning sem ætti að vera ansi heppileg fyrir flesta mennta- og háskólanemendur Íslands, sem ættu um það leyti að vera sloppnir úr prófum (og 4. árs menntaskólanemar útskrifaðir).

Þá var ný stikla fyrir leikinn sýnd á IGN og má skoða hana hér.

Þetta er þriðji leikur Obsidian Entertainment, en fyrir gerðu þeir Star Wars: Knights of the Old Republic 2 og Neverwinter Nights 2.

Alpha Protocol er hlutverkaleikur sem gerist í nútímanum og fjallar um njósnarann Michael Thornton sem lendir í hremmingum og hasar víðs vegar um heiminn. Leikurinn er skrifaður af snillingnum Chris Avellone, en sá kappi er hvað þekktastur fyrir að hafa verið höfuðpaurinn yfir hlutverkaleiknum Planescape: Torment, en sá leikur hafði hvorki meira né minna en 800,000 orða handrit og nóg af áhugaverðum persónum og samtölum.

Alpha Protocol er væntanlegur á Xbox 360, PlayStation 3 og PC 28. maí næstkomandi. Þangað til er hægt að dútla sér á GameTrailers.com og skoða myndbönd úr leiknum…

Heimildir: IGN

Kveðja,
GameTíví

Super Mario Galaxy, Monster Hunter Tri o.fl. leikir fá útgáfudag

smg2

Nintendo héldu vel heppnaðan blaðamannafund í gær og í kjölfarið hefur Nintendo í Evrópu staðfest dagsetningar heitustu titlana sem koma út á Nintendo Wii á milli 1. apríl og 30. júní.

Fyrst ber að nefna fyrsta Monster Hunter leikinn á Nintendo vélar, Monster Hunter Tri, sem kemur út 26. apríl. Monster Hunter serían er ein heitasta leikjasería í Japan og loksins fá Wii eigendur að kynnast skemmtuninni sem fylgir spilun leikjanna. Trailer.

Sin & Punishment 2, framhaldið af Sin & Punishment sem kom fyrst út á Nintendo 64 í Japan og Kína, og á Virtual Console í Evrópu og Norður-Ameríku síðar meir, er svo væntanlegur í verslanir 7. maí næstkomandi. Sin & Punishment 2 er skotleikur í anda Virtua Cop leikjanna og eiga spilendur að plaffa óvini í gegnum fullt af æsispennandi borðum. Trailer.

Að lokum mun framhaldið af hinum frábæra leik Super Mario Galaxy koma út 11. júní næstkomandi. Super Mario Galaxy 2 lítur hreint stórglæsilega út, og ef vel heppnast gæti hann jafnvel slegið út fyrirrennara sínum – í skemmtun í það minnsta. Trailer.

Það vekur þó nokkra undrun að Metroid: Other M er ekki væntanlegur fyrir júnílok, en stefnt er á að gefa leikinn út á þriðja ársfjórðungi ársins, það er tímabilinu júlí-september.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

Worms Reloaded væntanlegur á Steam

Hönnuðir Worms leikjanna, Team17 tilkynntu nú fyrr í vikunni að þeir væru að vinna að splunkunýjum Worms leik sem verður aðeins seldur í gegnum Steam verslunina. Leikurinn ber nafnið Worms Reloaded og mun hann snúa aftur til fortíðarinnar, þ.e.a.s. aftur í gömlu góðu tvívíddina þar sem ormarnir nutu sín best.

Framleiðendur leiksins gáfu einnig í skyn að þeim hafi lengi langað að búa til nýjan Worms fyrir einkatölvurnar í tvívíddar formi og nú sé kominn tími fyrir einn slíkan. Ef þú villt bullandi hasar sem tíðkast mjög oft við spilun Worms leikjanna að þá mælum við með því að þú hafir augun opin þegar Worms Reloaded lendir á Steam, síðar í vor.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

worms-armageddon

Kynning Heavy Rain

heavy-rain-boxshot_uk_large

Til að koma fólki í gírinn fyrir hinn dularfulla leik Heavy Rain sem kemur út í vikunni á PS3. Birtum við hérna kynningu af leiknum birtu með góðfúslegu leyfi höfundar greinarinnar og birtist hún fyrst á www.psx.is

Heavy Rain er leikur frá hinu Franska fyrirtæki Quantic Dreams sem gerðu fyrir nokkrum árum hinn stórgóða Fahrenheit sem kom leikurinn út á PC, Xbox og PS2.  Leikurinn hét reyndar Indingo Prophecy í Bandaríkjunum og var breytt útaf Michael Moore myndinni, einnig var leikurinn ritskoðaður þarna og smá nektarpartar teknir út, enda við vitum öll hve viðkvæmir kanarnir eru fyrir því.

Leikirnir þeirra eru vanalega ævintýraleikir sem bjóða uppá marga valkosti í kringum söguna ofl. Leikurinn innihélt svokallað „Quick Time Event kerfi“ sem krafðist þess að þú myndir bregðast snögglega við á sama tíma og atburðarrásin var sýnd í öðrum ramma á skjánum svo að það þurfti að vera snöggur að pæla og síðan kom í ljós hvernig það hefði áhrif á atburðarás sögunnar sjálfrar. Eitt af því sem var athyglisverðast við Fahrenheit var að þú spilaðir sem margar persónur. Þú byrjar sem maður sem virðist hafa framið hrottalegan glæp og þarf að hreina til eftir sig (eða ekki) og koma sér snögglega í burtu. Í næsta parti leiksins ertu að spila rannsóknarlögreglupar sem er að rannsaka morðið. Svo maður strax spurði sig þarna spurningu.  „Hve vel langar mér að rannsaka morðmálið sem hin persónan sem ég stjórna átti að hafa framið?

screen56-2_large

Heavy Rain er næsti leikur frá þeim og sást hann fyrst árið 2006 á E3 sem tæknidemó sem sýndi atriði með ungri leikonu sem átti að vera í reynsluprufu fyrir kvikmynd. Hún byrjar að segja tala í myndarvélina eins og að hún sé að tala við eiginmann sinn. Hún rekur rómantíska sögu um hvernig þau kynntust og drógu sig saman, á meðan hún talar starði maður á persónuna og hve vel var lagt uppúr hennar hreyfingum, andliti og tilfinningum. Þegar leið á tal hennar kom í ljós að eiginmaðurinn hennar var ekki eins góður og í fyrstu sýn virtist vera og átti að hafa haldið framhjá henni. Á meðan þetta er að koma fram breytist umhverfið úr settinu yfir í eldhús í littlu húsi þar sem konar heldur áfram að segja söguna sína. Það er ábernandi hve ílla henni líður og hve mikið svikinn hún hefur verið. Tónninn verður dekkri og byssa kemur fram á sjónarsviðið.

Þetta voru fyrstu kynnin af leiknum, eftir á sagði David Cage hönnuður og Leikstjóri leiksins að þetta væri í raun bara tilraun á tækni og sögu og væri ekki endilega leikurinn sjálfur.

Heavy Rain sem kemur út seinni partinn í Febrúar, nánar 24 Febrúar segir sögu fjögurra persóna sem virðast eitthvað tengjast Origami rað-morðingjanum sem hrellir borgina og skilur eftir littlar Origami fígúrur. Quantic Dreams hefur hingað til ekki viljað fara mikið í söguna og tala um hve mikilvægt er að upplifa hana sjálfur.

Það sem er vitað um leikinn er að þú getur spilað sem fjórar persónur. Eina sem er Arkitekt sem leitar að syni sínum og leikurinn byrjar á, gamlan seigan einkaspæjara, unga blaðakonu og að lokum frekar vafasaman FBI mann. Hvernig þeirra saga tvinnst saman og hvernig endar er stóra ráðgátan.

heavy_rain_5-776888-2

Það er hægt að spila leikinn á svo marga vegu og stórar sem littlar ákvarðanir sem þú tekur munu hafa áhrif á endalokin. David Cage hefur oft rætt að ekki endilega allar persónurnar í leiknum þurfa að lifa af, og að sagan heldur áfram og breytist enn fór ekki nánar útí það.

Það er dálítið spes að stjórna leiknum eins og ég komst að eftir að hafa fengið að prufa leikinn í ókláruðu formi. Þú notar vinstri pinnnan til að horfa á kringum þig, hægri til að nota hluti ofl, R2 er haldið hinni til að labba og þá er vinstri pinnin notaður til að hreyfa höfuðið í áttina sem á að fara. L2 kallar fram hugsannir persónunnar eða hvað hann eða hún vill segja. Takkarnir á fjarstýringunni hinir eru notaðir til að bregðast við ýmsum hlutum ofl.

Ævintýraleikir eru ekki eins algengir í dag og var áður fyrr, og enn meira leikir sem taka sénsa og prufa nýja hluti.

Það er ekki hægt að klára svona grein án þess að ræða grafík leiksins sem er vægast sagt rosaleg og mun koma fólki talsvert á óvart í gæðum, nákvæmnin í persónunum og hvernig þær hreyfa sig og sína tilfiningar er skrefinu hærra enn nær í öllum öðrum sem eru á markaðnum í dag.  Rigningin spilar stóran parti í leiknum, enda er nefnd í nafni leiksins einnig. Að sjá vatnið renna niður andlit persónanna er meiriháttar og ætti þessi leikur að geta haft áhrif á fólk sem á ekki PS3 að fá sér hana jafn mikið og leikir eins og God of War III ofl.

Quantic Dreams hafa rætt DLC efni fyrir leikinn og verður eitthvað bitastætt af því strax í kringum útgáfu leiksins og eftir það.

Skrifað af:Bumbuliuz
© Sveinn A Gunnarsson

Öll afritun á texta er stranglega bönnuð nema með leyfi höfundar.

Nýr aukapakki fyrir BioShock 2 kynntur, “Sinclair Solutions Test Pack”

Frá því að BioShock 2 kom út þann 9. febrúar síðasta liðin hefur leikurinn verið að fá prýðis dóma frá leikjagagnrýnendum, eða allt að 87% samkvæmt gamerankings.com. Framleiðendur leiksins, 2K Games hafa nú þegar kynnt til sögunnar fyrsta aukapakkann fyrir leikinn sem kemur út mjög bráðlega.

Aukapakkinn heitir á því skemmtilegu nafni “Sinclair Solutions Test Pack” sem mun bæði bæta við fjölspilunarhluta leiksins sem og einspilunarhluta hans, en hann mun þó aðallega einblína á fyrri kostinn. Hér fyrir neðan má sjá nokkur atriði sem fylgir þessum ágætis pakka.

  • Staða leikmanna hækkar í allt að level 50
  • Tvær nýjar spilanlegar persónur, Louie McGraff og Oscar Calraca
  • 20 nýjar þrautir (sumar þeirra verða aðeins opnuð fyrir leikmenn á level 41 eða hærra)
  • Hægt verður að uppfæra öll vopn þrisvar sinnum
  • Fimm grímum verður bætt við (sumar þeirra verða aðeins opnuð fyrir leikmenn á level 41 eða hærra)

Ekki er vitað ennþá hverju verður bætt inn í einspilunarhlutann en það verður að koma í ljós þegar nær dregur að útgáfudegi aukapakkans. Sinclair Solutions Test Pack verður fáanlegur í gegnum Xbox Live fyrir 400 Microsoft stig sem gera rúmlega 5 Bandaríkjadali í PSN búðinni.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

bioshock_2_mp_e3_screenshot_2

Sony skrásetja nýtt veffang fyrir MotorStorm 3

Það lítur út fyrir að Sony ætli að hefja nýjan leik með MotorStorm seríuna ef marka má nýjust fregnir fyrirtækisins. Sony skrásettu í dag nýtt veffang undir heitinu “motorstorm3.com” sem leiðir þig beint inn á bresku Playstation síðuna eins og staðan er í dag.

Þetta bendir að sjálfsögðu til þess að MotorStorm 3 sé í uppsiglingu þó þeir hafi ekki ennþá staðfest gripinn opinberlega. Síðustu tveir leikir hafa selst bara nokkuð vel á Playstation 3 vélinni hingað til þannig að það er lítið sem kemur í veg fyrir að þeir gefi út fjórða leikinn fyrir þessa ágætis kappakstursseríu.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

MotorStorm-2-1627

Með hverjum stendur þú, GDI eða Kane?

ExistorCnC4Wallpaper3_preview

Um miðjan mars næstkomandi kemur út splunkunýr herkænskuleikur í Command & Conquer seríunni sem mun loksins binda enda á Tiberium söguna. Að þessu sinni hafa EA menn tekið allt aðra stefnu hvað varðar spilun leiksins þannig að aðdáendur Command & Conquer leikjanna munu fá að upplifa seríuna á nýja vegu.

Líkt og tíðkaðist í fyrrum Tiberium leikjum að þá munu þeir einblína mikið á sögu leiksins með þrælskemmtilegum myndskeiðum sem eru sérstaklega gerðar fyrir leikinn. Joe Kucan, sem fer með hlutverk Kane verður að sjálfsögðu á sínum stað og það verður spennandi að sjá hvernig honum tekst ætlunarverki sínu, sem hann hefur áætlað síðan fyrsti Command & Conquer var gerður.

Nú verður aðeins hægt að spila á milli tveggja liða, Global Defense Initiative og Brotherhood of Nod en þau voru þrjú í síðasta leik þeirra. Ólíkt fyrri leikjum að þá munt þú byrjar á því að sigra nokkrar orrustur og af þeim loknum færðu val hvort þú viljir starfa hjá GDI eða beint undir skipunum Kane og mun sagan sennilega breytast eftir því hvort þú velur.

Spurningin er þessi, hvort munt þú starfa með eða gegn sjálfum Kane?

Kveðja,
Game Tíví