- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Supreme Commander 2 ræðst á einkatölvurnar í mars

Í byrjun mars næstkomandi, nánar tiltekið 5. mars mun Square Enix fyrirtækið gefa út hinn gríðarstóra herkænskuleik, Supreme Commander 2 sem lendir þá á einkatölvunum. Tveimur vikum síðar verður leikurinn gefinn út á Xbox 360 og fá þá harðir leikjatölvu unnendur að njóta gripsins þegar að því kemur.

Fyrir þá sem ekki þekkja Supreme Commander að þá býður leikurinn upp á risa stórt landslag sem menn notfæra sér með því að stýra þremur ólíkum herliðum til sigurs. Hægt er að velja á milli fjölda stríðstækja allt frá neðansjávar kafbátum að hraðskreiðum herþotum sem leggja lofthjúpinn undir á sitt vald.

Þeir sem líkuðu vel við fyrri leikinn ættu að tékka á þessum þegar hann lendir í mars.

Heimildir: Eurogamer

supremebreak1580

0 Responses to “Supreme Commander 2 ræðst á einkatölvurnar í mars”


Comments are currently closed.