Sögur herma að Microsoft hafi borgað Rockstar 50 milljón dollara fyrir að gefa út aukaefnið fyrir Grand Theft Auto IV eingöngu á Xbox 360, en alltaf voru einhverjir sem voru fullir efasemda um að aukaefnið myndi aldrei koma út á PC eða PlayStation 3. Svo virðist sem efasemdirnar hafi átt rétt á sér því Rockstar tilkynntu í dag að Grand Theft Auto: Episodes from Liberty City muni koma út fyrir einkatölvur og PlayStation 3 30. mars næstkomandi… vestanhafs, í það minnsta.
Grand Theft Auto: Episodes from Liberty City inniheldur aukapakkana The Lost and Damned og The Ballad of Gay Tony sem komu út á Xbox 360 á síðasta ári. Fyrir utan það mun PC útgáfan þar að auki styðja 32 manna fjölspilun og koma með forláta klippitóli til þess að búa til myndbönd.
Hægt verður að kaupa leikinn á tvo vegu. Annars vegar er hægt að kaupa hann á disk úti í búð, og inniheldur hann bæði The Lost and Damned og The Ballad of Gay Tony. Hins vegar verður hægt að kaupa og sækja sitthvorn aukapakkann í gegnum netið. Ekki er búið að gefa upp verðið á pakkanum/pökkunum í Evrópu, en vestanhafs mun diskurinn kosta 39,99 bandaríkjadali og niðurhalanlegu útgáfurnar munu kosta 19,99 dollara hvor.
Ekki er búið að staðfesta útgáfudag í Evrópu, en við getum fastlega gert ráð fyrir því að það verði ekki mikið seinna en í Bandaríkjunum, þ.e.a.s. í kringum mánaðarmótin mars/apríl.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví




næs
Über nice
já loksins