- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for January, 2010

Page 2 of 2

Super Mario Bros. og Tetris verða að Tuper Tario Tros.

Það geta allir verið sammála um að Super Mario Bros. og Tetris eru hreint út sagt frábærir leikir og munu aldrei falla úr gildi.

Ákveðnir einstaklingar fengu þá skemmtilegu hugmynd að blanda þessum tveimur meistaraverkum saman í einn leik. Útkoman úr því varð til stuttleikur sem þeir nefndu Tuper Tario Tros., sem hefði þó mátt fá aðeins frumlegra heiti.

Leikurinn lítur bara nokkuð vel út og getið þið spilað leikinn með því að smella annað hvort á “þennan hlekk” eða myndina hér fyrir neðan.

Kveðja,
Game Tíví

tupertariobros_010510

Left 4 Dead mættur í 8-bita útgáfu

8bitl4d

Við sögðum frá því fyrir nokkru að Eric Ruth nokkur væri að vinna hörðum höndum að því að búa til 8-bita útgáfu af samspilunarskotleiknum Left 4 Dead. Hann hefur nú gefið leikinn út eins og hann lofaði og er hægt að spila í gegnum öll fjögur L4D “campaignin” í 8-bita útgáfu með öllu tilheyrandi.

Þessi nýja útgáfa heitir Pixel Force: Left 4 Dead og inniheldur eins og áður sagði öll fjögur campaignin úr Left 4 Dead í NES stíl með gamaldags tónlist og grafík. Ofan á það styður leikurinn einnig tveggja manna spilun – hvað væri Left 4 Dead einmitt án samspilunar?

Hægt er að nálgast PC útgáfu leiksins á vefsíðu Ruth þegar hún er uppi.

Kveðja,
GameTíví

Satoru Iwata, forseti Nintendo talar um nýjan Zelda leik, nýja DS vél

Eitthvað virðist hafa losnað um málbein Nintendo í byrjun ársins því ekki er vika liðin áður en Satoru Iwata, forseti Nintendo, dreifði nokkrum fréttabombum í viðtali við næst stærsta dagblað Japans, Asahi Shimbun.

Er það helst að frétta að nýjasta ævintýri Link og Zeldu mun koma út á Nintendo Wii á þessu ári, en ekki er víst hvort það eigi bara við Japan eða hvort Norður-Ameríka og Evrópa fái líka að vera með. Það gæti vel verið raunin því The Legend of Zelda: Spirit Tracks fyrir Nintendo DS kom út á vesturlöndin áður en hann kom út í Japan í síðasta mánuði.

Iwata-san tjáði sig einnig um arftaka Nintendo DS. Hann vildi ekki tjá sig eitthvað nákvæmlega um vélina, en sagði að hún myndi hafa “afar nákvæma grafík og skynjara sem nemur hreyfingar fólks sem er að spila.” Það er þó óvíst hvenær næsta DS vél kemur á markað að sögn forsetans, og verður væntanlega lítið um frekari fregnir á næstunni þar sem Nintendo DS varð enn og aftur söluhæsta leikjatölvan í bæði Bandaríkjunum og Japan árið 2009.

Herra Iwata fullyrti einnig að það verði haldinn blaðamannafundur í júlí næstkomandi þar sem Wii Vitality skynjarinn yrði aðal umræðuefnið, og að planið væri að setja gripinn á markað stuttu eftir það. Þá neitaði hann því að Nintendo ætli sér að fara í samkeppni við iPhone með því að breyta DS í farsíma, og að þeir muni ekki byrja að rukka mánaðarlegar greiðslur fyrir aðgang að leikjum.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví

spirit tracksLink ferðast ekki um á hesti í Spirit Tracks, heldur eimreið.

Game Tíví hefst aftur fimmtudaginn 28. janúar!

gtvhefst

Þá er biðin er senn á enda, Game Tíví hefst aftur kl. 19:00 fimmtudaginn 28. janúar eftir stutt frí, við erum á fullu að undirbúa og getum lofað því að biðin verður þess virði, haugur af nýjum raunveruleikum, ferskir leikjadómar, retró leikir, tölvuleikjakeppnir og margt fleira verður í boði. Nú er bara að byrja að telja niður dagana og vera límdur við skjáinn 28. janúar.

Kv. Game Tíví

Dragon Age Awakening er væntanlegur 16. mars

dragon-age-origins-awakening

Meistaraverkið frá BioWare, Dragon Age: Origins hefur hlotið frábæra dóma eða allt að 90.44% á gamerankings frá því að hann var gefinn út á síðasta ár. Leikurinn hreppti meðal annars nokkra vinninga sem besti hlutverkaleikurinn árið 2009 frá nokkrum þekktum leikjasíðum og hann átti það svo sannarlega skilið.

Í mars á þessu ári eru svo væntanleg ný viðbót fyrir leikinn sem ber heitið Dragon Age: Awakening. Viðbótin munu bæta við nýjum verkefnum við leikinn ásamt því að lengja sögu leiksins sem mun væntanlega kæta alla þá sem höfðu gaman að sjálfum leiknum. Dragon Age: Awakening verður gefinn út á PC, Xbox 360 og PS3 þann 16. mars 2010 og menn þurfa að eiga sjálfan leikinn, Dragon Age: Origins til þess að geta spilað Dragon Age: Awakening.

Hér fyrir neðan má svo sjá nýja stiklu sem sýnir leikmönnum hvað þeir eiga von á í nýju viðbótunum.

Kveðja,
Game Tíví

Franskur DJ upplýsir DJ Hero 2

Á eftir einum leik kemur oft framhald, allavega er það bókað mál ef Activision sjá um handleiðslu á leiknum.

Franskur DJ að nafni David Guetta kom þeim orðum af stað að nú sé DJ Hero 2 í vinnslu og það ætti alls ekki að koma neinum í opna skjöldu. Hér fyrir neðan má lesa örfáar setningar sem hann lét flakka í kanadísku blaðinu Kelowna.

„Mér þykir þessi leikur frábær og ég ætla vinna að leik númer 2.“

„Þetta er virkilega brjálaður leikur. Á aðeins 10 mínútum færðu að upplifa það sem DJ hefur verið að æfa í heil 10 ár. Ég hef mjög gaman að honum, en veistu hvað? Ég get ekki spilað í hæsta stiginu. Það er alltof erfitt fyrir mig. Það er brjálað.“

Þar hafið þið það. Activision hafa samt sem áður ekkert sagt til um DJ Hero 2. Hvernig þeir hafa farið með Gutitar Hero seríuna að þá er ekki ólíklegt að DJ Hero hljóti sömu meðferð.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

DJ_HERO_-_Grandmaster_Flash_-_Highway

Duke Nukem fan-kvikmynd í framleiðslu

DukeNukem_thumb

Nokkrir gallharðir aðdáendur eru að vinna að gerð á Duke Nukem kvikmynd, lítið er vitað um þetta verkefni en gaman að sjá að einhver er að reyna að halda nafni Duke á lofti :)

Hér er trailerinn fyrir myndina:

Kv. Game Tíví

Betaprufun á LOVE hefst 7. janúar

love

LOVE er merkilegur leikur sem margir bíða spenntir eftir, núna styttist í að það sé hægt að betaprófa leikinn, en samkvæmt frétt á LOVE síðunni þá verður það á fimmtudaginn 7. janúar sem hægt verður að skrá sig.

Fyrir þá sem ekki kannast við leikinn þá er hægt að kynna sér hann hér.

Kv. Game Tíví