Í vikunni kemur út RPG leikurinn Mass Effect 2 frá EA og Bioware fyrir PC og Xbox 360. Fyrir þá sem ekki vita er Mass Effect hlutverkaleikur sem þriðju persónu elementum með djúpri og langri sögu.
Í Mass Effect 2 spilarðu sem Commander Sheppard og er hægt að vera annað hvort Kona eða Maður og hefur það áhrif á ýmsa parta sögunnar og hvernig fólk tekur þér. Fyrir þá sem hafa spilað Bioware hlutverkaleikina vita þeir að í þeim er mikið um valkosti og persónulegt frelsi og er Mass Effect eitt besta dæmi um það. Þú getur verið bjargvættur Alheimisins eða versti Óþokkinn í Stjörnuþokunni.
Hvað þú gerir og segir hefur áhrif á sögu leiksins og hreinlega hver lifir af eða ekki. Þetta er ekki nýtt á nálinni í leikjum, enn Bioware eru langt á undan öðrum í þessari deild. Sagan er líka virkilega vel skrifuð og persónurnar hafa áhrif á þig og þér er ekki sama hvað verður um þau eða hvernig þau taka þér.

Eitt af því sem er algerlega nýtt í Mass Effect 2 og það er að ef þú spilaðir fyrri leikinn annað hvort á PC eða Xbox 360 og átt ennþá savið þitt, þá er hægt að láta Mass Effect 2 leikinn lesa það og það hefur áhrif á sögu leikinn og hvernig sagan fer. T.d ef þú kálaðir ákveðni persónu í fyrri leiknum er hún ennþá mjög dauð, og margar ákvarðanir sem þú tókst munu hafa víðtæk áhrif á söguna og jafnvel littlu hlutirnir sem þú tókst ekkert fyrst ekki sem þú gerðir. Bioware hefur lengi talað um að þú munir geta spilað í gegnum alla leikina sem eiga að verða 3 með savið þitt og séð hvað þínir valkostir og aðgerðir hafa áhrif.
Þetta færir pælingarnar á nýtt svið og lætur fólk virkilega hugsa um hvað það gerir og að auki, eykur þetta endurspilunarmöguleika leiksins mikið.
Í Mass Effect 2 pikkar hann upp 2 árum eftir lok fyrri leiksins, við hérna á GameTíví viljum ekki spilla neinu fyrir ykkur með að segja hvað gerist í byrjun leiksins. Eftir ákveðna atburði þarf Cmdr. Sheppard að safna saman liði til að berjast við nýja ógn og finna hvernig það tengist hinum skelfilegu óvinum fyrri leiksins The Reapers.

Mass Effect 2 er byrjaður að fá dóma og gaf IGN honum 9.6 og lofaði hann hástert. Official Xbox 360 blaðið gaf leiknum 9.5.
Allir þeir sem hafa gaman af góðum RPG leikjum og Sci-Fi ættu klárlega að kíkja nánar á þennan þegar hann kemur í búðir í vikunni fyrir PC og Xbox 360.
Kveðja,
Game Tíví



Næs
Þessi leikur er EEEEEEEPPPPIIIIICCCCC
Fékk hann frá USA og er búinn að spila non stopping síðan!
Ættuð að tékka trailerin… hann er orsome!!! Þetta er eins og Star Wars bara einhvernvegin svo miklu betra!!!
“eins og Star Wars” that can’t be good
IGN heldur það líka… eitthvað movies inspiring Mass Effect 2 og á frontinu var star wars mynd… og hann fékk já dágóða dóma, verst er að ég á ekki 360
Búinn að spila í gegnum hann einu sinni og er að byrja núna að spila hann með gamla gaurnum úr fyrri leiknum þessi leikur er Svakalegur það eina sem ég get fundið að leiknum er að það getur verið þreytandi að skanna plánetur og það kom tvisavar fyrir að leikurinn buggaði og ég flaut upp í loftið annars er þetta leikur upp á 10 sem maður getur spilað aftur og aftur
Þessi leikur er dáldið eins og samblanda af Starwars, Halo og Wow.
Maður getur labbað um í allskonar borgum og gert margskonar mission og ákvarðarnir þínar skipta hellings máli og geta breytt söguþræðinum. Meiraðsegja sum lítil mission eru alveg jafn stór og þessi stóru og geta einnig haft áhrif á söguþráðinn. Spilunarmöguleikarnir eru þannig séð endalausir því maður getur verið bæði kona og karl sem er annaðhvort góð/ur eða vond/ur eða einhverstaðar mitt á milli. Brjálæðislega góð graffík er í leiknum og einnig mikill húmor.
Bardagakerfið er alveg frábært og ég er að spila sem Soldier en það er einn af 6 klössum sem hægt er að velja og þeir eru allir einstakir á sinn hátt. Maður þarf að fara út um allan heim að leita sér af liði til að spila með sér sem maður getur svo upgrade-að og bætt við og valið hverjir spila með sér en það eru bara 2 karakterar sem geta spilað með þér í hverju missioni.
Ekki nóg með að það eru fullt af byssum sem hægt er að nota og breyta þá er líka biotic powers sem eru svipaðir Jedi kröftunum sem maður getur notað á endalausa vegu hvort sem það er til að drepa óvininn eða t.d. látið hann svífa í loftinu og skjóta hann svo.
Ég er buinn að spila leikinn eins og brjálæðingur en það virðist alltaf vera meira og meira sem hægt er að gera.
Þó ég hafi aldrei verið fan af RPG leikjum þá í samantekt er þetta klárlega besti leikur sem ég hef spilað og mæli með honum fyrir alla leikjaunnendur!
hjhjhj.. aðeins að hugsa útí það að star wars voru góðar myndir.
Ef þú ætlar að dæma starwars as eithvað ömurlegt þá geturu alveg eins dæmt þessar nútíma geimmyndir…
ÞESSI LEIKUR ER AWESOME btw.