
[Uppfært: Svo virðist sem einhver hafi ýtt á vitlausan takka hjá Blizzard því starfsmenn fyrirtækisins vinna nú hörðum höndum að því að segja öllum að þetta séu ekki réttar vélbúnaðarkröfur. Úps!]
Það er ekki spurning að StarCraft 2 verður einn stærsti leikur ársins og eflaust eru ótal margir íslendingar sem bíða spenntir eftir að fá gripinn í hendurnar. Ef það er einhver sem óttast að tölvan sín ráði ekki við gripinn þá getur hinn sami andað léttar, því leikurinn keyrir jafnt á nýjum vélum sem gömlum. Blizzard hafa birt vélbúnaðarkröfurnar fyrir beta útgáfu StarCraft II, en þar sem leikurinn er enn í framleiðslu gætu tölurnar hér fyrir neðan breyst. Það er þó ólíklegt að breytingin verði mjög mikil þar sem fyrirtækið er vel þekkt fyrir að gera leiki með lágar vélbúnaðarkröfur.
Lágmarksvélbúnaðarkröfur
Örgjörvi: Intel Pentium IV 1.3GHz, AMD XP 1500+
Stýrikerfi: Windows XP / XP64 (Service Pack 3), Windows Vista / Vista64 (service Pack 1), Windows 7 Home Premium
Innra minni: (Windows XP) 512mb, (Windows Vista) 1024mb, (Windows 7) 1024mb
Skjákort: 3D graphics processor with Hardware Transform and Lighting with 32 MB VRAM such as an ATI Radeon 7200 or NVIDIA GeForce 2 class card or better
Pláss á harða disk: 15GB
DirectX: DirectX9.0c
Mælt með…
Örgjörvi: Intel Pentium D, AMD 64 X2
Stýrikerfi: Windows XP / XP64 (Service Pack 3), Windows Vista / Vista64 (service Pack 1), Windows 7 Home Premium
Innra minni: (Windows XP) 1024mb, (Windows Vista) 2048mb, (Windows 7) 2048mb
Skjákort: 3D graphics processor with Vertex and Pixel Shader capability with 128 MB VRAM such as an ATI Radeon X1600 or NVIDIA GeForce 7600 GT class card or better
Pláss á harða disk: 15GB
DirectX: DirectX9.0c
Þetta er ekki svo slæmt, er það nokkuð?
Heimildir: Kotaku
Kveðja,
GameTíví



Í vikunni kemur út RPG leikurinn Mass Effect 2 frá EA og Bioware fyrir PC og Xbox 360. Fyrir þá sem ekki vita er Mass Effect hlutverkaleikur sem þriðju persónu elementum með djúpri og langri sögu.









Nýleg comment