Ertu orðinn þreyttur á því að gjörsigra vini þína í Modern Warfare 2, eða þráir þú að spila “retro” leik akkúrat á þessari stundu? Spilaðu þá PONG!
Fyrir nokkrum dögum rákumst við á þennan bráðskemmtilega leik enn á ný sem allir ættu að þekkja nú til dags, þó svo að hann hafi verið eitt af fyrstu tölvuleikjum sem gerðir voru. Við erum að tala um leikinn PONG.
Einhverjir snillingar tóku á sig það verkefni að hanna leikinn fyrir netvafrana góðu. Þ.e.a.s. í gegnum Internet Explorer, FireFox eða aðra vafra getur þú spilað PONG á nýjan og ferskan veg líkt og aldrei fyrr. Það eina sem þú þarft að gera er að smella á þennan “hlekk” sem opnar fyrir þig nýjan glugga í vafranum þar sem þú getur spilað þennan æðislega grip.
Endilega kíkið á þetta og segið ykkar álit á leiknum.
Kveðja,
Game Tíví




Þetta er epic!
yepp
Hey, btw, akkuru hafið þið ekki einhverskonar Jólakeppni!!! það væeri snildar gaman