- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


EA ætla sér stórt með endurræstri Medal of Honor seríu

Þó svo að Medal of Honor leikir Electronic Arts hafi verið þrælfínir í upphafi hafa nýrri leikir í seríunni ekki náð að heilla neytendur mikið upp úr skónum. Fyrirtækið hefur því ákveðið að breyta algjörlega um stefnu og færa seríuna yfir í nútímann.

Nýasta viðbótin í seríuna mun einfaldlega heita Medal of Honor og verður sögusvið leiksins Afghanistan nútímans. Leikurinn fókuserar á Tier 1 Operators, sérþjálfaða ofurhermenn sem eru sendir í sérstök verkefni úti um allan heim. Framleiðendur leiksins hafa unnið með Tier 1 Operators frá US Spec Ops til þess að skapa eins raunverulega upplifun og mögulegt er.

Fyrirtækið hefur reyndar gengið svo langt að birta mynd af hulstri leiksins, en eins og sjá má hér að neðan er alskeggjaður Tier 1 Operator með riffil sér í hönd sem prýðir frampart þess.

Tvö ólík stúdíó vinna að þróun Medal of Honor. EALA mun sjá um að þróa heimsklassa einspilunarreynslu á meðan Battlefield framleiðandinn DICE sér um fjölspilunarhluta leiksins.

Það er greinilegt að Electronic Arts ætla sér í hart við Call of Duty: Modern Warfare seríu Activision Blizzard, sem einnig var nútímavædd fyrir tveimur árum.

Medal of Honor kemur út á Xbox 360, PlayStation 3 og PC einkatölvur á næsta ári.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

medalofhonor

8 Responses to “EA ætla sér stórt með endurræstri Medal of Honor seríu”


Comments are currently closed.