- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for December, 2009

Sáttur með að fá Xbox360 í jólagjöf

kidxbox360

Sumar jólagjafir hitta betur í mark en aðrar, eins og í þessu vídeói þar sem strákur fær Xbox 360 í jólagjöf. Vonandi voruð þið svona ánægð með gjafirnar sem þið fenguð þessi jólin :)

Kv. Game Tíví

Spilaðu PONG líkt og aldrei fyrr

Ertu orðinn þreyttur á því að gjörsigra vini þína í Modern Warfare 2, eða þráir þú að spila “retro” leik akkúrat á þessari stundu?  Spilaðu þá PONG!

Fyrir nokkrum dögum rákumst við á þennan bráðskemmtilega leik enn á ný sem allir ættu að þekkja nú til dags, þó svo að hann hafi verið eitt af fyrstu tölvuleikjum sem gerðir voru. Við erum að tala um leikinn PONG.

Einhverjir snillingar tóku á sig það verkefni að hanna leikinn fyrir netvafrana góðu. Þ.e.a.s. í gegnum Internet Explorer, FireFox eða aðra vafra getur þú spilað PONG á nýjan og ferskan veg líkt og aldrei fyrr. Það eina sem þú þarft að gera er að smella á þennan “hlekk” sem opnar fyrir þig nýjan glugga í vafranum þar sem þú getur spilað þennan æðislega grip.

Endilega kíkið á þetta og segið ykkar álit á leiknum.

Kveðja,
Game Tíví

PONG

MAG betan opnar fyrir almenningi þann 4. janúar

Átt þú Playstation 3 leikjatölvu og hefur ekki enn fengið aðgang að MAG betunni? Þá eru þetta gleði fréttir fyrir þig.

Sony hafa ákveðið að opna MAG betuna fyrir almenningi í byrjun næsta árs og geta þá allir Playstation 3 eigendur sótt betuna í gegnum PSN búðina. Opna betan verður sett upp þann 4. janúar næstkomandi og varir í sex daga þar til hún verður lokuð aftur þann 10. janúar.

MAG bíður upp á splunkunýja kænsku í gerð fyrstu persónu skotleikja þar sem allt að 256 manns geta spilað sama leikinn á einum “server”. Hvernig sem það gengur fyrir sig verður þú svo að meta sjálfur með því að sækja betuna og þú ættir að fá nógu góða tilfinningu fyrir leiknum áður en þú ákveður hvort þú viljir verða þér um gripinn eður ei.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

mag

Fyrstu Final Fantasy XIII bikararnir afhjúpaðir

Final Fantasy XIII kemur út í Japan á morgun, og það á því ekki að koma neinum á óvart að það sé búið að afhjúpa bikarana sem hægt er að fá í leiknum.

Það eru samtals 36 bikarar, að platínumbikarnum meðtöldum, en af þeim eru einungis 16 sýnilegir – restin af þeim eru faldir bikarar. Það á því ekki að koma neinum á óvart að það muni taka sinn tíma að klára leikinn 100% og næla sér í platínumbikarinn. Líklega eru Xbox 360 Achievementin þau sömu og birtast í PS3 útgáfunni.

Hér er listi yfir þá bikara sem vitað er um:

Brons
Commando’s Seal – Mastered the Command Role
Sentinel’s Seal – Mastered the Sentinel Role
Synergist’s Seal – Mastered the Synergist Role
Ravager’s Seal – Mastered the Ravager Role
Saboteur’s Seal – Mastered the Saboteur Role
Medic’s Seal – Mastered the Medic Role

Silfur
Limit Breaker – Deal over 100,000 damage to an enemy
Adamant Will – Felled a heavyweight of the lowerworld wilds
Master’s Seal – Fully developed all characters

Gull
Treasure Hunter – Hold every weapon and accessory
Loremaster – Discerned the full attributes of 100 enemies

Final Fantasy XIII kemur út 9. mars í Evrópu og Bandaríkjunum.

Heimildir: Fabula Nova Crystallis Final Fantasy XIII

Kveðja,
GameTíví

ffx13boxartps3

Nintendo fjárfesta í nýju vörumerki, Zii

Ef marka má nýjust heimildir á eurogamer.net að þá lítur út fyrir að Nintendo í Japan hafi fjárfest í nýju vörumerki sem fær það skemmtilega heiti „Zii“. Þá er spurningin þessi, er þetta nýja heitið yfir næstkomandi Wii leikjatölvu, eða enn einn aukahluturinn fyrir vélina?

Mikið hefur verið rætt um undanfarið hvort Nintendo séu að undirbúa nýja leikjavél sem mun koma þeim inn í HD menninguna. Nintendo hafa þó neitað að svara öllum þeim spurningum sem viðkemur því máli þó svo að sjálfur leikjameistarinn, Shigeru Miyamoto sé byrjaður að ræða örlítið um hágæða vél.

Einnig minnir bókstafurinn “Z” örlítið á tölustafinn 2, en það er þó alltof snemmt að útiloka þetta vörumerki þar sem Nintendo hafa ekki viljað ræða um þetta sjálfir.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

wii-hd-fake-boxEr Wii HD málið?

Myndband – Medal of Honor

moh580cropnewea

Fyrir ekki svo löngu síðan sögðu við ykkur frá því að nú væri búið að staðfesta nýjan Medal of Honor leik sem mun taka allt aðra stefnu heldur en serían hefur gert hingað til. Nú sækja EA hart gegn Activision með því færa seríuna yfir í nútíma herferðir líkt og Infinity Ward gerðu með Call of Duty 4: Modern Warfare sem hefur heldur betur skilað fyrirtækinu mikinn gróða upp á síðkastið.

Á VGA sýningunni var sýnt úr fyrstu stiklu leiksins þar sem allt virðist vera í steik í miðausturlöndunum. Leikurinn er þó ekki væntanlegur fyrr en í haust á næsta ári þannig að við fáum ábyggilega að sjá helling af myndböndum þegar nær dregur að leiknum.

Kveðja,
Game Tíví

Myndband – Star Wars: The Force Unleashed 2

11in2b5

Sú tilkynning sem kom okkur hvað mest á óvart ásamt Batman: Arkham Asylum 2 ku vera Star Wars: The Force Unleashed 2 sem er nú í fullu framleiðslu hjá Lucas Arts fyrirtækinu. Leikurinn er væntanlegur á næsta ári og það verður mjög fróðlegt að sjá hvernig sagan verður sögð miðað við hvernig fyrri leikurinn endaði.

Kveðja,
Game Tíví

Myndband – Batman: Arkham Asylum 2

batman-arkham-asylum-trailer-2

Meðal þeirra leikja sem voru tilnefndir sem leikir ársins á VGA sýningunni var Batman: Arkham Asylum sem átti það svo sannarlega skilið. Nú er búið að staðfesta framhald af leiknum og það lítur út fyrir að Jókerinn muni ná sér aftur á strik og hrella Batman enn eina ferðina. Við bíðum að sjálfsögðu spenntir eftir þessum!

Kveðja,
Game Tíví

Mynd úr Dead Space 2, sýnir nýtt armour

ds2

Eins og flestum ætti að vera kunnugt þá tilkynnti EA um daginn að þeir væru að vinna að Dead Space 2, ekkert hefur verið gefið út um útgáfudag, en í næsta blaði af GameInformer verður leikurinn tekinn fyrir, og þar má sjá meðal annars þessa mynd sem sýnir nýja armour-inn sem Isaac verður í leiknum, við erum á því að hann verði jafnvel harðari og grimmari en í fyrri leiknum.

Kv. Game Tíví

Klassískir Sonic leikir væntanlegir á DS

Ertu alveg búin(n) að fá upp í kok af arfaslökum Sonic leikjum undanfarinna ára? Farin(n) að sakna gömlu Sega Mega Drive daga bláa broddgaltarins?

Þú getur upplifað þá aftur á Nintendo DS á næsta ári, því Sega ætla sér að gefa út Sonic Classic Collection, sem inniheldur Sonic the Hedgehog, Sonic the Hedgehog 2, Sonic the Hedgehog OG Sonic & Knukcles, á Nintendo lófaleikjatölvuna knáu. Endurútgáfan verður víst afar hliðholl Sega Mega Drive útgáfunum, en búið er að bæta við vistunarfídus svo hægt sé að stoppa og halda áfram hvenær sem er, auk þess sem hægt verður að horfa á myndband sem gefur spilendum dýpri skilning á hetju leikjanna.

Þetta er þó alls ekki í fyrsta skipti sem leikirnir koma á nútímavélar því þeir hafa verið endurútgefnir í gegnum Xbox Live Arcade, og þá eru þeir einnig fáanlegir á Xbox 360 og PlayStation 3 í gegnum Sega Mega Drive Ultimate Collection.

Sonic Classic Collection er væntanlegt einhvern tímann á næsta ári, væntanlega áður en nýjasti Sonic leikurinn, Project Needlemouse (þar sem serían fer aftur til tvívíddu daganna) kemur út.

Heimildir: Shacknews

Kveðja,
GameTíví

sonic-the-hedgehog