- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for November, 2009

Page 3 of 3

Viltu eignast fyrsta eintakið af Modern Warfare 2 ?

Nú ætlum við Gametíví menn að gefa ykkur áhorfendum tækifæri til að vinna ykkur inn fyrsta eintakið á Íslandi af Modern Warfare 2.

Til að eiga möguleika á að vinna eintakið þurfið þið að keppa í Paintball í Skemmtigarðinum.

Sá sem er besta skyttan og stendur uppi sem sigurvegari fær fyrsta eintakið.

6 heppnir fá að keppa, en til að skrá ykkur þurfið þið að senda okkur mail á gtv@skjarinn.is og við munum velja 6 heppna úr sem fá að keppa í Paintball í Skemmtigarðinum í hádeginu á laugardag.

Aldurstakmarkið er 18 ára !

Munið að hafa í póstinum nafn, aldur, símanúmer og aðrar upplýsingar sem gætu sveiflað valinu í ykkar átt :)

Hlökkum til að taka í byssurnar með ykkur !

Með kveðju,
Óli og Svessi

MW2

Game Tíví í kvöld

gtv_thattur

Í þættinum í kvöld fara Óli og Sverrir í einvígí í Fifa 10, sá sem tapar þarf að sæta harðri refsingu og fara í sjósund í kvennmannsfötum! Einnig verða leikirnir Brutal Legend og Ratchet & Clank Future a Crack in Time dæmdir. Meðal aðra leikja sem við skoðum í þættinum eru, Bioshock 2, Just Cause 2, Assasins Creed 2, Dragon Age Origins og margir fleiri…

Kv. Game Tíví

Prince of Persia: Sands of Time lítur ljómandi vel út

GisliOrnGardarson.PrinceOfPersia Mynd af Gísla Erni Garðarssyni í hlutverkinu sem The Vizier.

Frá framleiðendum Pirates of the Caribbean kvikmyndanna kemur út splunkuný kvikmynd á næsta ári sem er gerð eftir frægri tölvuleikja seríu, Prince of Persia. Kvikmyndin nefnist Prince of Persia: Sands of Time og verður fyrst sýnd í kvikmyndahúsum þann 28. maí 2010.

Í dag var fyrsta opinberlega stiklan úr kvikmyndinni gefin út á netið og má sjá hana hér fyrir neðan. Það má svo sönnu segja að myndin lítur bara nokkuð vel út miðað við aðrar kvikmyndir sem gerðar hafa verið eftir tölvuleikjum. Hver veit nema að þessi eigi eftir að slá í gegn, en það verður þó að koma í ljós þegar nær dregur að kvikmyndinni.

Einnig er gaman að benda á það að Íslendingur að nafni Gísli Örn Garðarsson fer með hlutverkið sem illmennið The Vizier í Prince of Persia: Sands of Time. 

Kveðja,
Game Tíví

Aðeins ein vika í Modern Warfare 2

modernwarfare247_11_preview
Frá og með deginum í dag er nákvæmlega ein vika þar til fyrstupersónu skotleikurinn Call of Duty: Modern Warfare 2 lendir loksins á PC, Xbox 360 og PS3. Leikurinn hefur hlotið gríðarlega mikla athygli frá og með byrjun sumarsins þar til dagsins í dag  og eru eflaust margir aðdáendur Call of Duty seríunnar farnir að missa sig af gleði og spenningi.

Undanfarna daga hafa Infinity Ward verið að leka ýmsum upplýsingum úr Modern Warfare 2 á netið, án þess að spilla sögu leiksins að sjálfsögðu. Nú á dögum birtu þeir t.d. vopnin úr leiknum, kortin í fjölspilunar hluta hans, „killstreaks/deathstreaks“ ásamt fjölmörgum „perks“ sem menn þekkja úr Call of Duty leikjunum.

Það er einnig gaman að segja frá því að nú hafa þeir bætt við nýrri stillingu í leikinn sem nefnist „3rd Person“ þar sem menn geta valið hvort þeir vilja spila á móti hvort öðrum í þriðjupersónu í stað fyrstupersónu, svona til tilbreytingar.

Það er nokkuð ljóst að Modern Warfare 2 verður stútfullur af fjöri líkt og allir þeir leikir sem Infinity Ward hafa lagt hendur á. Við mælum sterklega með Modern Warfare 2 og ætti enginn fyrstupersónu skotleikja aðdáandi að láta þennan leik fram hjá sér fara.

Heimildir: Modern Warfare 2 24/7

Kveðja,
Game Tíví

Niðurtalning í gripinn.

Nintendo afhjúpar nýja, stærri DSi – DSi LL

Leið(ur) á litla 3ja tommu skjáuunum á DS Lite vélinni þinni? Ekkert að óttast, Nintendo eru búnir að redda því! Seinna í þessum mánuði mun Nintendo gefa út nýja útgáfu af DSi í Japan, DSi LL, en sú útgáfa mun skarta nýjum 4,2 tommu skjám og stærri stylus fyrir vélina.

Það má þó gera ráð fyrir að nýja vélin sé ekki eingöngu gefin út til þess að svala þorsta þeirra sem vilja fá stærri skjá, heldur einnig til þess að gera stórhentu fólki auðveldara fyrir að nota lófaleikjatölvuna knáu.

Þeir sem munu ekki standa í því að flytja inn DSi LL frá Japan þurfa að bíða fram á fyrri hluta næsta árs, en búist er við að vélin komi út snemma árið 2010 í Evrópu og Norður-Ameríku.

Lítið hefur verið talað um verð á vélinni, en miðað við að það er 1.100 yena verðmunur á DSi og DSi LL í Japan má búast við því að vélin verðu nokkrum þúsundköllum dýrari en DSi á Íslandi.

Heimildir: Shacknews

Kveðja,
GameTíví

dsill

Microsoft hrellir Xbox moddara á Hrekkjavöku

Fyrir marga hefur þetta verið frábær helgi. Hrekkjavökuböll á skemmtistöðum borgarinnar í bland við hið klassíska sunnudags”chill”, sunnudagsmaturinn innifalinn. Margir þeir sem eiga moddaðar Xbox 360 vélar hafa hins vegar fundið sig bannaða af Xbox Live þjónustunni og hugsanlega grátið krókódílatárum í kjölfarið.

Það má reyndar heita algjör tilviljun að fullt af fólki sé bannað á hrekkjavöku – Microsoft hafa verið duglegir í gegnum tíðina að banna reglulega notendur sem spila ólögleg eintök af leikjum yfir netið. Þetta ætti þó að kenna fólki að það er ekkert rosalega sniðugt að modda vélina sína, því það er ekki nóg með að ábyrgðin hverfi, heldur er hægt að banna tölvur varanlega af Xbox Live, og skiptir því litlu máli þótt menn reyni að stofna nýja Xbox Live aðganga á vélinni, þeir munu ekki virka.

Munið krakkar – ef þið ætlið að spila leiki, gerið það á löglegan hátt. Það fæst ekkert gott úr því að stela!

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
GameTíví

modified-xbox-banned

Vonandi fengu bara þeir sem eiga það skilið svona skilaboð um helgina.