
Áttu PlayStation 3? Ertu háður Facebook? Ef þú svaraðir báðum spurningum játandi, þá ætti nýjasta fastbúnaðaruppfærsla PlayStation 3, útgáfa 3.10, að heilla þig upp úr skónum.
Nýja uppfærslan mun gera PS3 tölvunni þinni kleyft að uppfæra Facebook yfir þig og segja öllum hvað þú varst að kaupa PlayStation netverslunina, hvaða bikar þú varst að fá, og, ef leikjaframleiðendur vilja, hvaða afrek þú varst að klára í leiknum sem þú ert að spila í gegn. Þá hefur internetvafri PlayStation 3 vélarinnar verið uppfærður svo Facebook virkar jafnvel enn betur í honum.
Það er þó ekki það eina því meðal annara viðbóta er möguleikinn á að sjá fleiri ljósmyndir í gegnum XMB (cross media bar) viðmótið, minna fer fyrir vinalistanum en áður (en Sony bárust víst margar kvartanir vegna breytinga sem þeir gerðu í síðustu fastabúnaðsuppfærslu), og að lokum er hægt að breyta litnum á PlayStation Network prófílnum þínum. Húrra!
Endilega kíkið á myndbandið hér fyrir neðan til þess að skoða allar nýju viðbæturnar.
Heimildir: PlayStation Blog
Kveðja,
GameTíví












Nýleg comment