
Á hverju ári halda félagarnir í Penny-Arcade Child’s Play góðgerðarsöfnunina þar sem safnað er fyrir tölvuleikjum og tengdum búnaði fyrir sjúkrahús úti um allan heim og eru hundruðir einstaklinga og hópa sem leggja söfnuninni lið á ári hverju. Meðal þeirra sem söfnuðu fyrir Child’s Play þetta árið er hópurinn LoadingReadyRun, en þeir héldu úti “Desert Bus for Hope,” þar sem þeir sýndu beina útsendingu frá íbúð sinni þar sem kumpánarnir spiluðu tölvuleikinn Desert Bus, sem er vafalaust einn mest óspennandi leikur sem hefur verið gerður.
Desert Bus for Hope tóku sig til í liðinni viku, spiluðu í 5 daga (með hléum) og söfnuðu fyrir vikið 132 þúsund dollurum, um 16 milljónum króna. Glæsilegt!
Desert Bus er hluti af smáleikjasafni sem grínistarnir Penn & Teller ætluðu að gefa út fyrir rúmum áratug. Í leiknum fara spilendur í hlutverk rútubílstjóra sem þarf að keyra frá Tucson í Arizona til Las Vegas í Nevada á 45 mílna hraða á klukkustund. Ferðalagið tekur um 8 klukkustundir aðra leiðina. Rútan beygir smávegis til vinstri, svo leikmenn þurfa að vera við stjórn allan tímann til þess að fara ekki út af veginum. Ef svo óheppilega vill til að rútan fari út af veginum neyðist spilandinn að bíða eftir að hún sé dregin alla leiðina aftur til Tucson – á 45 mílna hraða. Með því að ljúka ferðalaginu til Vegas skorar spilandinn eitt stig og fær möguleikann á að keyra alla leiðina aftur.
Ekki beint spennandi, en þeir sem vilja prófa leikinn geta spilað hann á www.desertbus-game.org. Hér má svo fræðast betur um Desert Bus for Hope maraþonið.
Heimildir: Kotaku
Kveðja,
GameTíví



ég held að ég muni ekki spila leikin
nenni því
ekki
ætlið þið að fjalla um leiki eins og fat princess það sem að það er hægt að kaupa þá af psn búðinni?? http://www.elko.is/elko/product_detail/?ew_10_p_id=51619&serial=PS3PSNLC20&ec_item_14_searchparam5=serial=PS3PSNLC20&ew_13_p_id=51619&ec_item_16_searchparam4=guid=0797b21b-b798-48fc-8f97-d5769534efd0&product_category_id=1201&ec_item_12_searchparam1=categoryid=1201 (þetta er linkur copy past)
hér er annar http://www.elko.is/elko/product_detail/?ew_10_p_id=51620&serial=PS3PSNLC50&ec_item_14_searchparam5=serial=PS3PSNLC50&ew_13_p_id=51620&ec_item_16_searchparam4=guid=810fa2ae-2d67-4dd0-8d9d-cbcc4bc4c255&product_category_id=1145&ec_item_12_searchparam1=categoryid=1145
makeaði svona 10 min svo hætti eg