
Þó svo að Modern Warfare 2 sé einhver stærsti leikur sem hefur nokkurn tímann komið út er Call of Duty serían enginn nýliði. Call of Duty kom upphaflega út á PC og Mac árið 2003, en síðan þá hefur serían heldur betur fært út kvíarnar og er líklega stærri á leikjatölvum en hún var á PC nokkurn tímann.
Á föstudaginn tilkynnti að leikirnir sex í seríunni hafi selst í meira en 55 milljónum eintaka um allan heim og skilað 3 milljörðum dala í kassann. Það er ekkert smáræði, enda er það hærri tala en lánið sem Ísland tekur beint frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.
Bobby Kotick, forstjóri Activision, var að sjálfsögðu ekki lengi að hampa leiknum sem einhverri mestu og bestu seríu sem finnst í nokkrum skemmtibransa. “Ef þú pælir í fjölda klukkustunda sem aðdáendur okkar hafa eytt í Call of Duty leikina er serían líklega einhver mest upplifða skemmtireynsla sögunnar.” Stór orð, Bubbi minn, stór orð.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví



Gaman að vera með 3 milljarða í vasanum.
Hvernig haldið þið að næsti call of duty verður. Vonandi betri (ef að það er hægt að gera betri).
Það er hægt að gera 100X betri leiki… og það er líka til hellingur af betri leikjum.
Næst COD leikur verður gerður af TreyArch og mun heita Call Of Duty 7. Ekki búast við miklu. Spila kannski smá zombie. Hef ekki áhuga á fortíð. Nútíð skiptir máli núna.