- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for November, 2009

Desert Bus for Hope safnar 100 þúsund dölum fyrir Child’s Play

desert_bus

Á hverju ári halda félagarnir í Penny-Arcade Child’s Play góðgerðarsöfnunina þar sem safnað er fyrir tölvuleikjum og tengdum búnaði fyrir sjúkrahús úti um allan heim og eru hundruðir einstaklinga og hópa sem leggja söfnuninni lið á ári hverju. Meðal þeirra sem söfnuðu fyrir Child’s Play þetta árið er hópurinn LoadingReadyRun, en þeir héldu úti “Desert Bus for Hope,” þar sem þeir sýndu beina útsendingu frá íbúð sinni þar sem kumpánarnir spiluðu tölvuleikinn Desert Bus, sem er vafalaust einn mest óspennandi leikur sem hefur verið gerður.

Desert Bus for Hope tóku sig til í liðinni viku, spiluðu í 5 daga (með hléum) og söfnuðu fyrir vikið 132 þúsund dollurum, um 16 milljónum króna. Glæsilegt!

Desert Bus er hluti af smáleikjasafni sem grínistarnir Penn & Teller ætluðu að gefa út fyrir rúmum áratug. Í leiknum fara spilendur í hlutverk rútubílstjóra sem þarf að keyra frá Tucson í Arizona til Las Vegas í Nevada á 45 mílna hraða á klukkustund. Ferðalagið tekur um 8 klukkustundir aðra leiðina. Rútan beygir smávegis til vinstri, svo leikmenn þurfa að vera við stjórn allan tímann til þess að fara ekki út af veginum. Ef svo óheppilega vill til að rútan fari út af veginum neyðist spilandinn að bíða eftir að hún sé dregin alla leiðina aftur til Tucson – á 45 mílna hraða. Með því að ljúka ferðalaginu til Vegas skorar spilandinn eitt stig og fær möguleikann á að keyra alla leiðina aftur.

Ekki beint spennandi, en þeir sem vilja prófa leikinn geta spilað hann á www.desertbus-game.org. Hér má svo fræðast betur um Desert Bus for Hope maraþonið.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví

Call of Duty serían hefur velt yfir 3 milljörðum bandaríkjadala…?!?

Modern-Warfare-2

Þó svo að Modern Warfare 2 sé einhver stærsti leikur sem hefur nokkurn tímann komið út er Call of Duty serían enginn nýliði. Call of Duty kom upphaflega út á PC og Mac árið 2003, en síðan þá hefur serían heldur betur fært út kvíarnar og er líklega stærri á leikjatölvum en hún var á PC nokkurn tímann.

Á föstudaginn tilkynnti að leikirnir sex í seríunni hafi selst í meira en 55 milljónum eintaka um allan heim og skilað 3 milljörðum dala í kassann. Það er ekkert smáræði, enda er það hærri tala en lánið sem Ísland tekur beint frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.

Bobby Kotick, forstjóri Activision, var að sjálfsögðu ekki lengi að hampa leiknum sem einhverri mestu og bestu seríu sem finnst í nokkrum skemmtibransa. “Ef þú pælir í fjölda klukkustunda sem aðdáendur okkar hafa eytt í Call of Duty leikina er serían líklega einhver mest upplifða skemmtireynsla sögunnar.” Stór orð, Bubbi minn, stór orð.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

Frítt að spila Champions Online um helgina

champions

Ef þig langar að spila góðan leik ókeypis um helgina þá er tilvalið að prufa Champions Online, en það er nefnilega frítt að spila hann um helgina, hægt er að nálgast leikinn hér og skrá sig hér.

Kv. Game Tíví

Game Tíví á nýjum tíma kl. 19:00

timi

Frá og með næsta þætti verður Game Tíví á nýjum tíma, eða kl. 19:00 á fimmtudögum.

Kv. Game Tíví

Back to the future MOD fyrir CRYSIS

cy

Fyrir þau ykkar sem hafið gaman af Back to the Future myndunum og eigið eintak af CRYSIS leiknum, þá er einhver snillingurinn búinn að búa til MOD fyrir leikinn þar sem hægt er að keyra De Lorean og ferðast í tíma. Þetta er allt einstaklega vel gert og mælum við með að þeir sem hafi áhuga á þessu kíki á þetta.

Hægt er að nálgast MOD-ið hér.


Smá vídeó sem sýnir þetta betur:



Borderlands: Zombie Island of Dr. Ned

zombie

Fyrsti aukapakkinn fyrir Borderlands er væntanlegur í dag á PS3 og Xbox360, og svo seinna meir á PC. Hann heitir Zombie Island of Dr. Ned og hér er trailer úr honum fyrir þau ykkar sem eruð að spá í að skella ykkur á hann:

Í Game Tíví á fimmtudaginn

fimtu

Í þættinum á fimmtudaginn gagnrýnum við leikina Saw og Assasins Creed 2, nörd vikunar er á sínum stað,  við kynnum okkur customization möguleikana í nýja Army of Two leiknum og Óli og Sverrir keppa í nýju einvígi þar sem refsingin var valin af ykkur hérna á heimasíðunni.

Aðrir leikir sem við skoðum í þættinum:

Kane & Lynch 2 Dog Days

Supreme Commander 2

Darksiders

Modern Warfare Reflex

Serious Sam HD

So Blonde

Jak & Daxter Lost Frontier

ofl…

Kv. Game Tíví

SEGA tilkynna Bayonetta sýnishorn, væntanlegt í næstu viku

Það er ekki alltaf í hverri viku sem við fáum spilanleg sýnishorn frá leikjaframleiðendum, en þegar það gerist að þá hrópum við „húrra!“.

SEGA fyrirtækið tilkynntu í gær að þeir ætla að gefa út sýnishorn fyrir Bayonetta sem er væntanlegur til landsins, snemma á næsta ári. Sýnishornið verður gefið út fyrir PS3 vélina í gegnum PSN búðina og einnig fyrir Xbox 360 í gegnum Xbox Live netþjónustuna.

Þeir sem hafa beðið lengi eftir Bayonetta ættu að tékka á því þegar það lendir þann 3. desember.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

bayonetta

No More Heroes væntanlegur á PS3 og Xbox 360

nomoreheroes

Suda51 (aka Suda Goichi) er einn af þessum goðsagnakenndu japönsku leikjaframleiðendum sem gera voðalega furðulega leiki sem annaðhvort hitta beint í mark eða missa algjörlega marks í sölu. No More Heroes, einn af nýlegri leikjum hans fyrir Nintendo Wii, var reyndar alveg þokkaleg skemmtun, en því miður keyptu hann ekkert rosalega margir.

Því hefur Suda51 og fyrirtæki hans, Grasshopper Manufacture, ákveðið að gefa leikinn út á PlayStation 3 og Xbox 360 í febrúar á næsta ári. Endurútgáfan, sem heitir No More Heroes: Heroes Paradise, heldur sama grafíkurstílnum, en gera má þó ráð fyrir að hann muni líta eitthvað aðeins betur út þar sem framleiðendur leiksins hafa aðgang að “aðeins” meira afli en þeir höfðu á Wii. Þá mun endurútgáfan innihalda nýjan spilunareiginleika sem fækkar spjörum kvenkynspersóna leiksins talsvert, auk þess sem öll samtöl leiksins verða talsett á japönsku.

Fyrir þá sem eru glænýir í öllu þessu No More Heroes dóti, þá fjallar leikurinn um herramanninn Travis Touchdown sem á sér þann draum heitastan að verða besti leigumorðinginn innan Sammtaka Sameinaðra Leigumorðingja, og með hjálp ljóssverðs (ekki geislasverðs!) síns heggur hann mann og annan á leið sinni á toppinn.

Leikurinn er væntanlegur í japanskar verslanir í febrúar næstkomandi, en óvíst er hvenær þessi eigulega endurútgáfa kemur út á vesturlöndum. Vonandi fyrr en síðar.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

Left 4 Dead væntanlegur á … NES?

8bitl4d

Allir elska Left 4 Dead, er það ekki? Æsispennandi hasarleikur þar sem maður þarf að berjast við uppvakninga sem láta sér ekki nægja að rölta hægt og rólega að manni, heldur hlaupa hraðar en Michelin maðurinn. Þeir líta líka helvíti vel út, nota tiltölulega nýlega þrívíddartækni og eru aðeins fáanlegir á Xbox 360 og PC. Þangað til 4. janúar.

Eric Ruth, ungur og upprennandi leikjahönnuður, er nefnilega að leggja lokahönd á 8-bita útgáfu af leiknum fyrir PC. Leikurinn er hannaður með NES (Nintendo Entertainment System) hermi og lítur út eins og hann hafi komið út árið 1986 en ekki 2010. Ruth stefnir á að klára leikinn fyrir 4. janúar næstkomandi, eins og áður segir, og munu öll kortin og campaignin úr upprunalega Left 4 Dead vera spilanleg í lokaútgáfunni.

Leikurinn höndlar líklega ekki jafn marga uppvakninga á skjánum og nútímavæddir forverar hans, og líklega býður hann ekki upp á sama adrenalínkikkið, en þeir sem sakna gömlu góðu 8-bita daganna ættu ekki að láta NES útgáfu Left 4 Dead fram hjá sér fara.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví