
Fyrr í dag kom út hasarhlutverkaleikurinn Torchlight. Leikspilunin byggir nær algjörlega á Diablo seríunni, sem er ekki furða því nokkrir af fyrrum starfsmönnum Blizzard North, sem gerðu einmitt Diablo leikina, stofnuðu Runic Games, sem gerir Torchlight, fyrir um ári síðan.
Líkt og í Diablo fara Torchlight spilendur í hlutverk persónu sem þarf að kafa djúpt ofan í námurnar í grenndinni við bæinn Torchlight, en þar er ýmislegt skuggalegt á seyði. Á móti hetjunni, en hægt er að velja úr þremur mismunandi hetjum til að spila, taka heilu herirnir af skrímslum sem missa vænan skammt af gulli, vopnum, brynjum og öðrum gersemum þegar þeim er slátrað.
Ef fólk vill kynna sér leikinn betur er hægt að skoða myndbandið hér að neðan, kíkja inn á heimasíðu leiksins, eða skella sér á Steam og sækja prufuútgáfuna.
Þá er hægt að kaupa leikinn í gegnum Steam, Direct2Drive, eða beint í gegnum vefsíðu leiksins á 19,99 bandaríkjadali.
Kveðja,
GameTíví



Lookar helvíti nice…….fínt að hafa mann upptekinn við eitthvað meðan maður bíður eftir Diablo 3
hvenar kemur hann til íslands
Kaupir hann í gegnum STEAM. Hann kom 28 Október.
Líkt og SupeerSteebbi, og segir í fréttinni, þá er hann fáanlegur í gegnum Steam, Direct2Drive og svipaðar þjónustur, auk þess sem þú getur keypt hann beint af framleiðanda í gegnum vefsíðu leiksins (sjá frétt).
ok nice